Seðlabankastjóra sagt upp

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Eggert » Wed 08. Oct 2008 23:12

Það er nú bara þannig að þessir hlutir sem við erum að sjá seinustu daga hafa aldrei gerst áður... þannig að það er ekki til nein concrete uppskrift að því hvernig eigi að bregðast við. Hvað virkar og hvað hefur engin áhrif getur enginn sagt með vissu, en það geta allir kastað getgátum. Þeir eru soldið að finna upp hjólið með þeim aðgerðum sem þeir eru að beita.

Að sitja við stjórn seðlabankans þýðir ekki að þú stjórnir efnahaginum, heldur hafa þeir tól sem þeir nota til þess að reyna að stýra verðbólgu og flr. Það er engin trygging fyrir því að þeirra vinna hafi sín áhrif og virki alltaf, ekki frekar en að skurðaðgerðir heppnist alltaf hjá læknum.

Þannig að ég verð bara að taka undir það sem var sagt hérna fyrir ofan; ætli Davíð og hans lið sé ekki hæfast til þess að takast á við það sem blasir við. Hann sýndi það allavega í Kastljósi að þó svo að seðlabankinn sé þekktur fyrir að vera lúxusheimili fyrir gamla pólitíkusa, að þá er hann nú ekki beinlínis af baki dottinn.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby gardara » Wed 08. Oct 2008 23:15

Afstýrði Davíð ekki verðbólgu þegar hann tók við sem borgarstjóri á sínum tíma?
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Postby totihs » Wed 08. Oct 2008 23:26

Davíð er fínn í jobbið. Hinir eru líka alveg 150% hæfir.

Væri fásinna að fara að skipta honum út í dag.

Hann tekur náttúrulega ekkert einhverjar geðþóttaákvarðanir sísvona. Og hann situr ekkert einn og hugsar bara hvernig hann skuli hefna sín a Glitnismönnum.
User avatar
totihs
Getawaybílstjóri
 
Posts: 503
Joined: Mon 10. Dec 2007 16:16

Postby elli » Wed 08. Oct 2008 23:31

totihs wrote:Davíð er fínn í jobbið. Hinir eru líka alveg 150% hæfir.

Væri fásinna að fara að skipta honum út í dag.

Hann tekur náttúrulega ekkert einhverjar geðþóttaákvarðanir sísvona. Og hann situr ekkert einn og hugsar bara hvernig hann skuli hefna sín a Glitnismönnum.

Sammála síðasta ræðumanni!
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby sh4rk » Wed 08. Oct 2008 23:51

ég tel það nú ekki gáfu legt að hafa hann Davíð þarna fær bara alla upp á móti sér bara
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP
User avatar
sh4rk
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2837
Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Thu 09. Oct 2008 00:07

En af hverju er lögfræðingur í stöðu seðlabankastjóra en ekki t.d. hagfræðingur eða viðskiptafræðingur?

Ég er ekki að setja út á störf Davíð hér. En er bara að spá hvenær við ætlum að fara að ráða í seðlabankastjórastöðu eftir hæfni en ekki pólitískum ákvörðunum. Þetta er og hefur jú bara verið eftirlaunastaður fyrir hátt setta pólitíkusa hingað til..
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby gardara » Thu 09. Oct 2008 00:09

sh4rk wrote:ég tel það nú ekki gáfu legt að hafa hann Davíð þarna fær bara alla upp á móti sér bara


Held það sé sama hver væri í þessarri stöðu á þeim tímum sem er núna... Menn reyna alltaf að finna einhvern blóraböggul.
1974 BMW 1802
1994 BMW E36 332i sedan
2008 BMW E92 335i
2013 BMW F30 320d


Svezel wrote:Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:
User avatar
gardara
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5510
Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Location: 108 Reykjavík

Postby ValliFudd » Thu 09. Oct 2008 00:19

gardara wrote:
sh4rk wrote:ég tel það nú ekki gáfu legt að hafa hann Davíð þarna fær bara alla upp á móti sér bara


Held það sé sama hver væri í þessarri stöðu á þeim tímum sem er núna... Menn reyna alltaf að finna einhvern blóraböggul.

Sérstaklega þeir sem skitu upp á bak... As in stjórnir bankana :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby arnibjorn » Thu 09. Oct 2008 08:06

Eru menn ekki í lagi???

Haldiði virkilega að ef það væri einhver annar seðlabankastjóri að þá væri landið bara í gúddí? :lol:

Það er alheimskreppa í gangi og Ísland er að koma virkilega illa útúr henni.. er það allt Davíð Oddsyni að kenna?

Ég hef fulla trú á kappanum. :)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby grettir » Thu 09. Oct 2008 09:31

Þetta snýst ekki endilega um það hvort Davíð getur eða getur ekki afstýrt þjóðargjaldþroti.

Sú staðreynd að seðlabankinn hefur ekki verið undir verðbólgumarkmiðum sínum undanfarin ár, í góðæri, styrkir mig ekki í þeirri trú að hann geti eitthvað frekar bjargað verðbólgu og gengisfalli í kreppu.

Þarna á að vera að störfum fagfólk. Ekki mynduð þið láta Davíð taka úr ykkur botnlangann?

Seðlabankinn hefði getað stýrt vexti bankanna með aukinni bindiskyldu (eða sleppa því að lækka hana), en bindiskylda þvingar bankana til að eiga pening inni á reikning í seðlabankanum.

Það er í sjálfu sér alveg í lagi að vera með risavaxið bankakerfi, en seðlabankanum ber þá skylda til að standa undir því þegar kreppir að hjá bönkunum, honum ber að lána þeim pening í skammtíma lausafjárvandræðum eins og þeir stefndu í á þessu ári. Honum ber að styrkja gjaldeyrissjóðinn til að vernda gengi krónunnar.

Ekkert af þessu hefur verið gert, þrátt fyrir að Davíð segist hafa séð þetta vandamál snemma hausts 2007.
Ef hann sér vandamálið og gerir ekkert í því fyrr en allt er komið í þrot þá eru það stórkostleg embættisglöp og eru að kosta sparifjáreigendur og húsnæðiseigendur stórkostlegar upphæðir í formi verðbóta á húsnæðislán, verðrýrnunar á sparifé og aukna greiðslubyrði á erlendum lántökum.

Getur Davíð reddað því hvernig komið er? Vonandi.

Getur einhver annar en Davíð reddað því hvernig komið er? Vonandi.

Hefði fagfólk séð vandamálið fyrr og gripið til aðgerða og komið í veg fyrir algert hrun? Engin spurning.

Það er enginn vafi að öll lönd í heiminum eru í vandræðum eins og staðan er í dag, en í venjulegum löndum þar sem eru starfandi seðlabankar með fagfólki innanborðs er verðbólga og gengishrun ekki eins stór hluti vandamálsins eins og hér. Hlutir sem koma beint við kauninnn á almenningi sem er að reyna að borga af sínum húsum og gefa sínum börnum að borða.

Þegar ríkið gerði tilboð í 75% hlut Glitnis segir Davíð að stutt sé í að hinir bankarnir fari sömu leið. Samstundis lokast á lánamöguleika Landsbankans og að einhverju leyti Kaupþings.

Í þessum kastljósþætti gerir hann Breta alveg brjálaða með óábyrgu tali um tryggingar á sparireikningum þeirra í Landsbankanum og blaðrar því að Seðlabankinn sé að lána Kaupþingi, sem veldur því að Kaupþing er sett í greiðslustöðvun erlendis og ríkið tekur bankann yfir í nótt.

Menn eiga auðvitað ekki að tala svona. Það er eins og hann átti sig ekki á því að heimurinn er að hlusta núna. Og heimurinn leggst ekki á hnén og bugtar sig þegar Davíð talar. Heimurinn tekur peninginn út úr bönkunum hérna og flýr.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby grettir » Thu 09. Oct 2008 09:39

Og Kaupþingsmenn virðast kenna Davíð um það hvernig komið er:
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/10/09/atburdir_i_bretlandi_felldu_kaupthing/

Það þýðir fyrir ykkur sem eigið hlutabréf í Kaupþingi að þau eru 0 kr. í dag líkt og hlutabréf Glitnis og Landsbanka.
Velkomin í hópinn.

Hressandi.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby gunnar » Thu 09. Oct 2008 09:41

grettir wrote:Og Kaupþingsmenn virðast kenna Davíð um það hvernig komið er:
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/10/09/atburdir_i_bretlandi_felldu_kaupthing/

Það þýðir fyrir ykkur sem eigið hlutabréf í Kaupþingi að þau eru 0 kr. í dag líkt og hlutabréf Glitnis og Landsbanka.
Velkomin í hópinn.

Hressandi.


Takk takk :?
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Angelic0- » Thu 09. Oct 2008 09:43

gunnar wrote:
grettir wrote:Og Kaupþingsmenn virðast kenna Davíð um það hvernig komið er:
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/10/09/atburdir_i_bretlandi_felldu_kaupthing/

Það þýðir fyrir ykkur sem eigið hlutabréf í Kaupþingi að þau eru 0 kr. í dag líkt og hlutabréf Glitnis og Landsbanka.
Velkomin í hópinn.

Hressandi.


Takk takk :?


Þetta er nú ekki alveg á núlli er það... ég átti einhver hlutabréf í Glitni.. og þau eru ekki alveg verðlaus... en það er alveg GÍFURLEG rýrnun :!:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Tommi Camaro » Thu 09. Oct 2008 10:04

Angelic0- wrote:
gunnar wrote:
grettir wrote:Og Kaupþingsmenn virðast kenna Davíð um það hvernig komið er:
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/10/09/atburdir_i_bretlandi_felldu_kaupthing/

Það þýðir fyrir ykkur sem eigið hlutabréf í Kaupþingi að þau eru 0 kr. í dag líkt og hlutabréf Glitnis og Landsbanka.
Velkomin í hópinn.

Hressandi.


Takk takk :?


Þetta er nú ekki alveg á núlli er það... ég átti einhver hlutabréf í Glitni.. og þau eru ekki alveg verðlaus... en það er alveg GÍFURLEG rýrnun :!:

Nei þú átt ekki krónu í glitni í dag, Í staðinn fyrir að kaupa bankan þá tóku þeir hann FME :wink:
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE
User avatar
Tommi Camaro
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3377
Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08

Postby íbbi_ » Thu 09. Oct 2008 11:37

haha.. mannfýlan kemur í einn helvítis kompás þátt og hálft spjallið ræður sér varla fyrir löngun til að hoppa uppí hjá kallinum,

þetta skeði á hans vakt!! bæði stjórnmálalega og í stöðu seðlabankastjóra, seðlabankinn er búinn að sitja aðgerðalaus hjá alltof lengi, sömuleiðis stjórnvöld, kreppan er slæme, en hún er það slæm að þetta gæti verið helmingi betra en samt talað um kreppu,

ég vill ekki sjá þennann mann í seðlabankanum..
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests