Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Aron M5 » Fri 03. Oct 2008 15:23

Djöfulsins helviti eg er með allt mitt fé hja landsbankanum :x
BMW 525D E61 07 Facelift
Aron M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2389
Joined: Thu 07. Dec 2006 16:53
Location: keflavik

Postby Kull » Fri 03. Oct 2008 15:46

aron m5 wrote:Djöfulsins helviti eg er með allt mitt fé hja landsbankanum :x


Ég líka, og hef litlar áhyggjur :roll:
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!
User avatar
Kull
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1505
Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Location: Seltjarnarnes

Postby Thrullerinn » Fri 03. Oct 2008 15:51

Kull wrote:
aron m5 wrote:Djöfulsins helviti eg er með allt mitt fé hja landsbankanum :x


Ég líka, og hef litlar áhyggjur :roll:


Sama hér.. en áhyggjurnar eru þarna, bara litlar.
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby bimmer » Fri 03. Oct 2008 16:07

Fór og tók út smá cash svona just in case að það verði eitthvað
hikst eftir helgi.

Stappað af fólki í bankanum og allir frekar tense.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby gunnar » Fri 03. Oct 2008 16:09

Já manni rennur nú samt örlítill kaldur sviti vitandi af upphæðum hjá manni í peningabréfum í Landsbankanum.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Thrullerinn » Fri 03. Oct 2008 16:18

bimmer wrote:Fór og tók út smá cash svona just in case að það verði eitthvað
hikst eftir helgi.

Stappað af fólki í bankanum og allir frekar tense.


Það sást til þín :lol:

Image
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby bjornvil » Fri 03. Oct 2008 16:18

http://www.visir.is/article/20081003/VI ... 6884288/-1

Vonandi þarf fólk ekki að hafa miklar áhyggjur af Landsbankanum. Ég er hjá Landsbankanum, en er ekki með meiri fjárhæð en það sem er eftir af útborguninni minni inni á reikning. Annars á ég bara helling af skuldum hjá þeim :)

Skrapp einmitt í útibú Landbankans á Laugarveginum áðan, ætlaði að taka út smá aur, fór rakleitt aftur út þegar ég sá að það voru tæplega hundrað manns á undan mér! Þetta var klukkan 15:40.
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby íbbi_ » Fri 03. Oct 2008 17:08

hvað er samt í gangi með landsbankann núna.

ég þekki tvo persónulega sem gátu ekki leyst út peninginn sinn, sem getur ekki verið eðlilegt,

en samt eru mestu viðskiptin með akkurat þann banka, búið að marglýsa því yfir af stjórnendum bankans sem og stjórnmálamönnum að landsbankinn sé í traustri stöðu, og svo verið að ræða að landsbankinn kaupi jafnvel glitni?

hvað er eiginlega í gangi?
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Zyklus » Fri 03. Oct 2008 17:42

Þvílík vika. Maður er eiginlega bara feginn að markaðir opni ekki aftur fyrr en á mánudag.

Í mínum innleggjum hér á þessum þræði hef ég varað við því að ástandið ætti eftir að verða slæmt og sagt að það kæmi alltaf að skuldadögum en ekki óraði mig fyrir að það ætti eftir að gerast með þessum hætti sem við höfum orðið vitni að á seinustu dögum.

Þetta er enginn smá viðsnúningur. Fyrir ári síðan vorum við mestu bankasnillingar heimsins (eða það héldu Íslendingar) og við áttum að hafa fundið upp hjólið í viðskiptum (þjóð þar sem skipulögð verðbréfaviðskipti hafa verið stunduð í innan við 20 ár...). Þá var hver sá sem taldi að íslensku bankarnir ættu kannski aðeins að fara rólega í útrásinni talinn afturhaldssinni og þeir sem bentu á að þetta gæti endað illa voru taldir röflarar og svartsýnisrausarar. En hverja var nú meira mark á takandi, greiningadeildirnar eða „svartsýnisröflararnir“?

En að ástandið yrði það slæmt að hér væri verið að tala um hugsanlegan eldsneytisskort og vöruskort er einfaldlega eitthvað sem fáir hafa getað ímyndað sér. Þessar sviptingar á svona stuttum tíma eru einfaldlega ótrúlegar. Þvílík breyting á stuttum tíma.

Við erum að tala um það að alþjóðlegir fjárfestar meta það sem svo að Ísland sé í raun gjaldþrota. Bankarnir séu einfaldlega búnir að keyra landið í kaf.

Skuldatrygginaálag (CDS-spread) á Kaupþing komið í 6250 punkta og greiða þarf fyrirfram, álagið á Landsbankann komið upp í 5800 punkta fyrirfram og Glitnir er með álag upp á 6000 punkta sem einnig þarf að greiða fyrirfram.
Greitt er fyrirfram fyrir skuldatryggingar þegar þeir sem selja tryggingarnar meta það sem svo að mjög mikil hætta sé á að sá aðili sem tryggja á fari í gjaldþrot.

Það sem er mest sjokkerandi er álagið á ríkið, sá sem ætlar að kaupa tryggingu gegn því að Ísland gjaldfelli á sínum lánum þarf að borga 1600 punkta fyrirfram. Fjárfestar meta það því sem svo að verulegar líkur séu á að landið stefni í gjaldþrot.

Nú ganga sögusagnir um að eitthvað gerist um helgina, hugsanlega neyðarlán frá IMF.

Það var eitthvað skítið í gangi með krónuna í dag, hún hreyfðist sama sem ekkert. Það er væntanlega vegna þess að gjaldeyrir er nú skammtaður. Íslenski gjaldeyrismarkaðurinn er einfaldlega frosinn.

Gengið er annað á milli erlendra banka.

http://www.reuters.com/article/rbssBanks/idUSL362414620081003

According to Icelandic central bank data, the euro was quoted at 155.95 crowns, 0.18 percent higher on the day <EURISK> by 1455 GMT, with contributions seen mainly from domestic banks.

But offshore dealers said the euro had been trading in smal amounts about 7 percent higher at between 162-167 crowns. One trader said the euro was quoted as high as 170 crowns.


Komandi kreppa er líklega sú versta síðan ´29 kreppan. Maður á bágt með að trúa því sem er að gerast núna.

En á svona tímum er mikilvægt að fólk paniki ekki og alls ekki missa sig í þunglyndis/svartsýnisgírinn. Því það gerir bara málin enn verri. Því Íslendingar eru svolítið þannig að þeir missa sig annað hvort í ofurbjartsýni (eins og seinustu ár) eða þá eins og núna þar sem margir virðast bara ætla að gefast upp. Það má náttúrulega alls ekki.

Varðandi Landsbankann þá er hann líklegast sá veikasti af bönkunum þremur, allavega miðað við það sem maður les. Útlánasafnið þeirra er víst ekki eins og best verður á kosið. En á móti kemur að það eru öflugir eigendur að baki Landsbankanum (Björgólfar).
En það er alveg ljóst að bankarnir eiga eftir að taka á sig mikið af afskriftum því hér stefnir allt í fjöldagjaldþrot einstaklinga og fyrirtækja ef ekki verða einhverjar drastískar breytingar.
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby Megadeth » Fri 03. Oct 2008 18:07

ValliFudd wrote:Dem, var að heyra fleiri fréttir, ein manneskja sem mætti með ferðatösku til að taka allt sitt fé út.. Var sagt að hún þyrfti að bíða í allavega klukkutíma, það væru ekki til peningar í bankanum..
Það var í Landsbankanum í Mjódd.. úff..

Ég er búinn að heyra 2 hluti.. 3 milljónir per kennitölu tryggt.. Eingöngu á bankareikningum, ekki í peningabréfum og svoleiðis..
Og hitt var að hver bankareikningur sé tryggður fyrir 3 milljónir óháð kennitölu..

Ekki að ég þurfi að hafa miklar áhyggjur af því en svona en veit einhver hér hvort er rétt?


Það er þannig að hver bankareikningur er tryggður fyrir 3 milljónir óháð kennitölu, ég hef þetta frá aðalhagfræðingi seðlabankans
Magnús Jón
2002 BMW 330 SMG
Megadeth
Kassabílstjóri
 
Posts: 109
Joined: Thu 05. Dec 2002 22:14
Location: Hafnarfjörður

Postby gunnar » Fri 03. Oct 2008 18:09

Megadeth wrote:
ValliFudd wrote:Dem, var að heyra fleiri fréttir, ein manneskja sem mætti með ferðatösku til að taka allt sitt fé út.. Var sagt að hún þyrfti að bíða í allavega klukkutíma, það væru ekki til peningar í bankanum..
Það var í Landsbankanum í Mjódd.. úff..

Ég er búinn að heyra 2 hluti.. 3 milljónir per kennitölu tryggt.. Eingöngu á bankareikningum, ekki í peningabréfum og svoleiðis..
Og hitt var að hver bankareikningur sé tryggður fyrir 3 milljónir óháð kennitölu..

Ekki að ég þurfi að hafa miklar áhyggjur af því en svona en veit einhver hér hvort er rétt?


Það er þannig að hver bankareikningur er tryggður fyrir 3 milljónir óháð kennitölu, ég hef þetta frá aðalhagfræðingi seðlabankans


Eru það ekki innlánsreikningarnir sem eru tryggðir ?

Ég var alla vega að komast að því að peningabréfin eru ekki tryggð.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Megadeth » Fri 03. Oct 2008 18:12

gunnar wrote:
Megadeth wrote:
ValliFudd wrote:Dem, var að heyra fleiri fréttir, ein manneskja sem mætti með ferðatösku til að taka allt sitt fé út.. Var sagt að hún þyrfti að bíða í allavega klukkutíma, það væru ekki til peningar í bankanum..
Það var í Landsbankanum í Mjódd.. úff..

Ég er búinn að heyra 2 hluti.. 3 milljónir per kennitölu tryggt.. Eingöngu á bankareikningum, ekki í peningabréfum og svoleiðis..
Og hitt var að hver bankareikningur sé tryggður fyrir 3 milljónir óháð kennitölu..

Ekki að ég þurfi að hafa miklar áhyggjur af því en svona en veit einhver hér hvort er rétt?


Það er þannig að hver bankareikningur er tryggður fyrir 3 milljónir óháð kennitölu, ég hef þetta frá aðalhagfræðingi seðlabankans


Eru það ekki innlánsreikningarnir sem eru tryggðir ?

Ég var alla vega að komast að því að peningabréfin eru ekki tryggð.


Já það eru innlánsreikningar, peningabréf eru ekki tryggð og mig minnir að skuldabréf séu ekki heldur tryggð
Magnús Jón
2002 BMW 330 SMG
Megadeth
Kassabílstjóri
 
Posts: 109
Joined: Thu 05. Dec 2002 22:14
Location: Hafnarfjörður

Postby Steini B » Fri 03. Oct 2008 19:08

En hvernig er það, er fólk ekki að gera illt verra með því að tæma bankana? :roll:
User avatar
Steini B
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3836
Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Location: Vík í Mýrdal

Postby Eggert » Fri 03. Oct 2008 19:26

Steini B wrote:En hvernig er það, er fólk ekki að gera illt verra með því að tæma bankana? :roll:


Jú.

Og svo er annað: segjum sem svo að Landsbankinn fari á hausinn og 3mkr séu tryggðar af ríkinu. Þetta getur t.d. verið peningur sem fjölskyldan treystir á fyrir mat og uppihaldi. Hvað ætli það taki langan tíma fyrir þetta allt að fara í gegnum kerfið áður en maður fengi svo þrjár millurnar sínar frá ríkinu?

Svona bjúrókrat langar mig ekki einu sinni að hugsa útí. Þetta væri t.d. nóg ástæða fyrir mig til að taka út minn pening þó svo það nái ekki 3mkr.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Angelic0- » Fri 03. Oct 2008 19:46

Ég á pening sem að er FASTUR í KB (með hærri fjárhæðum)... vonandi að það fari ekki allt í skrall þar.... tók út allt lausafé úr Landsbankanum, félagi minn fór í sparisjóðinn í dag til að fá yfirdrátt og það kom út á núlli.... ábyrgðarmaður með skuldlausa (óveðsetta) fasteign gekk ekki :!:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests