geirisk8 wrote:
Málið er að þetta er bara aðeins öðruvísi í svona BMW. Ég átti Nissan Sunny '87 á undan þessum og var þar með mjög góðan pioneer spilara þar sem var sér tengi fyrir remote, svo að magnarinn væri ekki stöðugt í gangi.
Ég ætla að skoða þetta bráðlega og sjá hvort ég nái ekki að redda þessu.
Ég er ekki að leita eftir einhverjum premium græjum, bara smá botni til að fá meiri fíling í tónlistina, þannig að þó ég þurfi að gera smá skítamix varðandi snúrur og tengingar þá er það í lagi
Þetta er mjög simple....
Hvernig magnara ertu með
Oft sem að á mögnurum er High Level Input rás...
í hana tengiru stelara á afturhátalarana, en þú kemst í vírana í afturhátalarana undir afturhillunni og hún fer úr þegar að þú ert búinn að losa afturbekkinn úr... smellir sessunni upp og 2 rær og voila hann er laus...
Þar steluru hljóðrás af afturhátölurum... og tengir inn á high level input...
ef að magnarinn er ekki með high level input þá kaupiru þér High Level to Low Level converter, í hann tengiru RCA snúru og oft er Remote gaur frá þessum breytiboxum...
Nissan Sunny 87 er vissulega ekki sambærilegur bíll við E39
Það er svo einfalt....
Ef að þú ert í einhverjum vafa, láttu þá fagmann sjá um ísetningu, ég veit að Tæknivík í Keflavík hafa verið að rukka 15þús með efniskostnaði... fyrir ísetningu í E39...
og allt MJÖG vel frágengið
