bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 06:30

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 20 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
PostPosted: Thu 18. Sep 2008 12:28 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
Heyrðu ég er hérna með BMW 520ia 1998 módel e39 og mig vantar að vita hvar magnarinn er fyrir græjurnar. Ég veit að í mörgum e39 módelum er magnarinn þarna í vinstra hliðarhólfinu í skottinu, þeir eru líka margir með magasín.

Bíllinn minn er með kasettuspilara. Hátalararnir í bílnum eru fínir en mig vantar að skella smá bassaboxi í skottið til að fá botn í tónlistina.

Ef einhver getur hjálpað mér eitthvað þá væri það frábært!

Takk


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 18. Sep 2008 14:04 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sat 28. Jul 2007 14:28
Posts: 5509
Location: 108 Reykjavík
Það er nú oftast mælt með því að nota aftermarket magnara með bassakeilum

_________________
Ódýrir OEM Bosch súrefnisskynjarar til sölu!

Vantar þig aðstoð við að panta af ebay eða annarstaðar á netinu? Sendu mér PM.

1994 BMW E36 332i sedan
1991 Chevrolet Camaro Z28
1982 Toyota Carina A60
2005 Ford Fiesta ST


Svezel wrote:
Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 18. Sep 2008 14:15 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
Já ég veit það, enda er ég með magnara fyrir bassaboxið. Einhvert þarf ég að tengja þann magnara ? Það er ekki nóg að setja það bara í bílinn.

Það er magnari í bílnum sem er fyrir allt hljóðkerfið og ég þarf að komast að honum því ég veit ekki hvar hann er. Hann er ekki í hliðarhólfinu eins og í mörgum nýrri eða stærri týpum af 5-línunni.
Þegar ég kemst að honum finn ég út hvernig ég tengi þetta við. Ég kann alveg nóg á græjur og hvernig á að tengja þetta allt, ég þarf bara að vita hvert.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 18. Sep 2008 17:34 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Wed 11. Jun 2003 00:53
Posts: 764
Sér ekki bara útvarpið/kassettutækið um að keyra þessa hátalara í bílnum og þar af leiðandi enginn annar magnari falinn einhversstaðar??

_________________
"I have not taken any drugs ore anything for a whole week now!" -Oh really? "Yeah, and feel so good I wanna get high!"
-Cheech&Chong

BMW E60 525i xDrive 2008


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 18. Sep 2008 17:48 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
Jahh nú veit ég ekki, þessvegna er ég að spurja hér, svo að ég geti fengið svar frá þeim sem vita meira en ég. Ég giska á að spilarinn keyri hátalarana bara sjálfur en hvað veit ég, bmw fela hlutina svo vel stundum.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 18. Sep 2008 18:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Posts: 9115
Location: Breiðholt, Reykjavík
Þú getur keypt svona smá box sem þú tengir inná annan hátalarann afturí, sem stelur JACK tengingu frá honum og REMOTE, svo þarftu bara að leggja POWER(+) sjálfur að magnaranum, geymirinn er eflaust afturí skotti þannig það er ekkert mál, og svo náttúrulega JÖRÐ einhverstaðar í boddý í skottinu.

_________________
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 21. Sep 2008 14:44 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
Já ég var að hugsa um að gera það, takk. En er hægt að nota vírana sem fara í hátalarana sem remote fyrir magnarann ? Ég er með hátalara í boxi og magnara sem passar vel við þannig að ég er ekki að fara að kaupa annað.

Hvernig fæ ég remote fyrir magnarann ?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 21. Sep 2008 17:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
Þú tengir "boxið" inn á báða hátalara... betri týpurnar af svona converterum eru með remote out... og þar ættiru að fá remote...

svo er spurning hvort að þú sért með góðan magnara, þá þarftu ekki boxið, heldur tengir bara í High Level Input á magnaranum...

DLS magnarar t.d. greina sjálfir gegnum High Level Input, merki til að ræsa magnarann ;)

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 22. Sep 2008 00:11 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
Málið er að þetta er bara aðeins öðruvísi í svona BMW. Ég átti Nissan Sunny '87 á undan þessum og var þar með mjög góðan pioneer spilara þar sem var sér tengi fyrir remote, svo að magnarinn væri ekki stöðugt í gangi.

Ég ætla að skoða þetta bráðlega og sjá hvort ég nái ekki að redda þessu.

Ég er ekki að leita eftir einhverjum premium græjum, bara smá botni til að fá meiri fíling í tónlistina, þannig að þó ég þurfi að gera smá skítamix varðandi snúrur og tengingar þá er það í lagi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 22. Sep 2008 00:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
geirisk8 wrote:
Málið er að þetta er bara aðeins öðruvísi í svona BMW. Ég átti Nissan Sunny '87 á undan þessum og var þar með mjög góðan pioneer spilara þar sem var sér tengi fyrir remote, svo að magnarinn væri ekki stöðugt í gangi.

Ég ætla að skoða þetta bráðlega og sjá hvort ég nái ekki að redda þessu.

Ég er ekki að leita eftir einhverjum premium græjum, bara smá botni til að fá meiri fíling í tónlistina, þannig að þó ég þurfi að gera smá skítamix varðandi snúrur og tengingar þá er það í lagi


Þetta er mjög simple....

Hvernig magnara ertu með :?:

Oft sem að á mögnurum er High Level Input rás...

í hana tengiru stelara á afturhátalarana, en þú kemst í vírana í afturhátalarana undir afturhillunni og hún fer úr þegar að þú ert búinn að losa afturbekkinn úr... smellir sessunni upp og 2 rær og voila hann er laus...

Þar steluru hljóðrás af afturhátölurum... og tengir inn á high level input...

ef að magnarinn er ekki með high level input þá kaupiru þér High Level to Low Level converter, í hann tengiru RCA snúru og oft er Remote gaur frá þessum breytiboxum...

Nissan Sunny 87 er vissulega ekki sambærilegur bíll við E39 :!:

Það er svo einfalt....

Ef að þú ert í einhverjum vafa, láttu þá fagmann sjá um ísetningu, ég veit að Tæknivík í Keflavík hafa verið að rukka 15þús með efniskostnaði... fyrir ísetningu í E39...

og allt MJÖG vel frágengið :!:

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Sep 2008 18:11 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
Já heyrðu ég er með eitthvað Kenwood dót sem er kannski orðið 2-3 ára en hefur staðið sig mjög vel.

Ég held að það sé ekkert sérstakt high input en annars þá hef ég ekki skoðað það nógu vel.

Ég ætla að prófa að tengja þetta eins og ég held að sé rétt og sjá hvað kemur úr því.

Ég læt vita hvernig þetta kom út svo!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 28. Sep 2008 16:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 25. Sep 2006 09:39
Posts: 3691
http://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.p ... 77983f5525

_________________
BMW E39 530D '03 ///M-Tech - Stations
BMW E39 540i '00 - Sedans

E39 k1ng
Sævar P.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 17. Oct 2008 10:55 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23
Posts: 242
Flott vídeó og hjálpar mér alveg helling.

En ég var að spá. Ég reddaði mér svona til að stela rafmagni af hátalaravírunum til þess að láta fara inn á magnarann fyrir bassaboxið. Það ætti alveg að vera safe að gera það.

Hinsvegar er ég með pælingu varðandi remote fyrir magnarann. Ég var að spá hvort hægt væri að tengja það við stöðuljósið aftan á til að fá smá rafmagn svo að magnarinn sé ekki alltaf í gangi þegar bíllinn er ekki í gangi ?
Spurningin er eiginlega bara, er það öruggt að tengja lítinn vír í ljósið ? Þetta mun aðeins þjóna þeim tilgangi að leiða litlu rafmagni inn á magnarann til þess að segja honum að fara í gang og slökkva á sér.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 17. Oct 2008 11:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
geirisk8 wrote:
Flott vídeó og hjálpar mér alveg helling.

En ég var að spá. Ég reddaði mér svona til að stela rafmagni af hátalaravírunum til þess að láta fara inn á magnarann fyrir bassaboxið. Það ætti alveg að vera safe að gera það.

Hinsvegar er ég með pælingu varðandi remote fyrir magnarann. Ég var að spá hvort hægt væri að tengja það við stöðuljósið aftan á til að fá smá rafmagn svo að magnarinn sé ekki alltaf í gangi þegar bíllinn er ekki í gangi ?
Spurningin er eiginlega bara, er það öruggt að tengja lítinn vír í ljósið ? Þetta mun aðeins þjóna þeim tilgangi að leiða litlu rafmagni inn á magnarann til þess að segja honum að fara í gang og slökkva á sér.


Færð alveg 110% villumeldingu í mælaborðið að þessi pera sem að þú stelur af sé sprungin...

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 17. Oct 2008 12:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 25. Sep 2006 09:39
Posts: 3691
Ég tengdi remoteið í stöðuljósið og það kom eins og peran væri sprungin.
Mér var alveg sama :lol:

_________________
BMW E39 530D '03 ///M-Tech - Stations
BMW E39 540i '00 - Sedans

E39 k1ng
Sævar P.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 20 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 10 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group