bebecar wrote:
Þórir wrote:
Sælir.
Ég vil þakka Schulii og Bebecar fyrir góð skrif.
Ég hef oft upplifað mig sem einn af siðferðislega minnihlutanum þegar ég les skrif hér eftir dæmda glæpamenn, ofbeldisseggi og aðra með vafasamt siðferði. Þó er það þannig að fleiri en færri, hérna á spjallboðinu, eru í raun venjulegt fólk sem hefur svipaðar skoðanir á lífinu og tilverunni og ég. En ég get sagt að þessi þráður hefur lýst nýju ljósi á þónokkra spjallara og opinberað þeirra skoðanir á þessu mikla meini samfélagsins og sýnt hvernig þeir eru hluti af vandanum. Það finnst mér sorglegt.
Ofbeldi á ekki að líðast. Ég hef séð nóg í mínu starfi til að sjá að ofbeldi er aldrei lausn og þegar menn réttlæta ofbeldi eru menn strax orðnir hluti af vandanum.
Kv.
Þórir I.
Vel orðað og í rauninni er þetta ekki flóknara en þetta...
Og svo fyrir spjallverjann Maxel (Axel) sem kom með þetta málefnalega "kominníþrotmeðrökoggeturekkikýltþigþvíþettaernetiðogskrifarþvíeitthvaðsvonaístaðin" svar þá bara.....já já.
Ha?
Wat, get ekki kýlt þig? Var einhver að tala um það?
Mér finnst þessi rök hjá þér vera meiri draumórar en staðreyndir.
Draumarnir þínir eru að það það þarf ALDREI ofbeldi til að leysa málin.
Staðreyndinn er sú að fólk er ekki að fara borga ógreiddar skuldir án þess.
Og fólk er oft að vinna svart fyrir kannski fólk sem það hélt það þekkti, en kemur síðan í ljós að þau eru ekkert annað en svindlarar...
Á maður þá að fara í lögguna eða fara í mál með alla pappirana sína...
Gera grín af því hvað ég er "ómálefnalegur" .... það liggur við að sum svörin séu í forníslensku hérna þeir eru að reyna skrifa svo punt...
En þó fólk hérna sé að segja að þetta sé oft eina lausnin eru þau ekkert glæpamenn sem dýrka handrukkara, þetta er bara þeirra eina og síðasta ráð við að fá peningana sína til baka.