Alpina wrote:
Schulii wrote:
Það er engin tenging á milli viðskipta með peninga og líkamlegra áverka.
Skúli,,,,,, ég ætla ekki að fara að munnhöggvast við þig,,
en þar sem iðnaðarmaðurinn hefur blandast inn í þetta (( skiljanlegt svo sem )) hver er staðan hjá viðkomandi ef að sá aðili er búinn að láta af hendi miljónir ,,,,,, á REIKNINGI og kaupandi gerir ekkert í málinu,, fer í þrot osfrv, sýnir linkind varðandi uppgjör og er alveg sama,,
Þá kemur lögmál DARWIN sterklega inn í myndina
,,,,,, survivor of the fittest,,
menn bjarga sér........
oft með hótun eins og :
ef þér finnst eiithvað VONT við snertingu ,, gerðu þá eitthvað í málinu og reyndu að sýna samnings vilja,,
Það er græn slikja fyrir vitunum á þér,,, þar sem þú neitar að horfast í augu við rammann og beiskann veruleikann
Veit að þú ert sóma piltur og hefur góðann mann að geyma,, en svona er þetta hvort sem fólk sé ánægt með þetta eður ei
Lögfræðiferlið er oft á tíðum dýrt og vonlaust með öllu,,,,,, EN,,,, einnig getur það verið þess eðlis að háir vextir hlaðast ofaná og menn fá bætur .. en það er of sjaldgæft
auðvitað hafa menn farið offari í þessum brútal innheimtu-aðgerðum
en þegar neyðin er orðin slík að fólk er komið á vonarvöl .. þá er ÞVÍ MIÐUR stundum eina úrræðið að láta finna fyrir sér með BODYTALK
er ansi hræddur um að afstaða þín væri ekki svona ef 1000.000 kr bíll hefði verið svikinn út úr þér og þú sætir eftir með sárt ennið og kaupandinn hefði falsað allann pakkann
Sveinbjörn, ekki segja "ég ætla ekki að fara að munnhöggvast við þig" og koma svo með fullan skjá af slíku í minn garð. Þá er heiðarlegra að sleppa öðru hvoru.
Það er engin spurning að svik og skipulagðir glæpir hafa aukist stórlega síðustu ár á Íslandi. Þú komst einmitt inn á það sjálfur í eldri þræði hérna ekki alls fyrir löngu. En það virðist sem við höfum enga mótstöðu fyrir því að smitast af þessu eitraða hugarfari sem gengur eins og eldur í sinu um allt þjóðfélagið.
Ég er engin sómapiltur frekar enn hver annar hér á þessu spjalli. Ég hef unnið svart og farið inn á þessi svæði þar sem ég veit að ég get hagnast meira á vissri áhættu. En að koma sér í slík skítamál fyrir það fyrsta að vinna svart fyrir einhvern sem maður varla þekkir eða treystir er bara hrein heimska. Hvað þá að versla efni fyrir einhverjar milljónir og hafa enga tryggingu eða neitt í höndunum og afhenda bara með heiðursmannasamkomulag í huga. (en auðvitað er það ekkert heiðursmannasamkomulag ef ég geri þetta og um leið hugsa með mér að ég muni bara fá handrukkara í málið ef það verður eitthvað vesen)
Þannig að ég hef ENGA samúð með mönnum sem koma viðskiptavini sínum í slíka skuld við sig.
Ég reiði ekki af hendi nema lítið af vinnu/vöru í einu ef viðskiptin eru ekki uppi á yfirborðinu PUNKTUR - Ef ég hinsvegar geri það er ég bara að taka áhættuna og hef alveg brennt mig á því.
Það sem kemur mér á óvart er hversu margir virðast líta á handrukkara sem eðlilegan hlut. Ég gerði mér enga grein fyrir því fyrr en þessi umræða fór af stað. Glæpamenn geta ALLTAF réttlætt það að þeir hafi góða, réttlætanlega ástæðu fyrir því sem þeir eru að gera:
- "Þessi ríkisstjórn er búin að hafa af mér svo mikla skatta að ég sé ekkert að því að vinna soldið svart" (Ég)
- "Ef ég hætti að díla þá skaffa þau sér þessu bara hjá einhverjum öðrum"
- "Það er vísindalega sannað að eiturlyf eru ekkert hættulegri en áfengi svo ég sé ekkert að því að neyta þeirra / selja þau"
- "Það er nú bara eftir því í hvaða landi þú ert hvort þú sért barnaníðingur eða ekki sko því lögaldurinn er svo misjafn sko"
- "Ef ég ræni ekki 10-11 til að borga dílernum verð ég limlestur"
- "Þessi bíll er svo miklu öruggari en flestir aðrir bílar að það er töluvert hættuminna að keyra hratt á honum en þessu japanska rusli"
- Veruleikinn er orðinn svo rammur og beiskur að ég verð bara, svei(nbjörn) mér þá að fá handrukkara í málið til að innheimta þessa skuld fyrir mig
Það sem ég vill að komi alveg skýrt fram er að ég veit ekkert hvað gerist ef ég stend frammi fyrir þeim aðstæðum að ég hef látið ríða mér svo smjörlíkislaust í endaþarminn að svíður undan eins og Wasabi hafi verið mokað í grammavís í stjörnuna á mér. Hver veit nema ég í bræði minni tali við einhvern af þeim sem ég kannast við og eru tengdir í þennan heim. En það er alveg ljóst að ég veit það að sama hverjar aðstæður mínar eru,
þetta er ekki rétt leið!!! og ég mun taka þá meðvituðu ákvörðun að fara ranga leið.
Ég hef alveg gert mér grein fyrir því síðustu ár að mín viðhorf eru ekki beint eins og flestra hérna.
Ég stóð með löggunni í bensínstöðvarmótmælunum
og stend nánast alltaf með lögreglunni í þessum hitamálum
ég vill setja hærri álögur á bíla sem menga mikið
ég vill setja mörk á hversu aflmikla bíla þeir megi keyra sem eru nýkomnir með próf
ég vill harðari refsingar við umferðarbrotum
ég lít á það sem siðlaust athæfi að setja handrukkara í að innheimta peningaskuld
En við hverju öðru er að búast en þetta sé ekki alveg meðalviðhorfið í svona EGO-miðstöð eins og BMW-spjallborð hlýtur að vera
En að lokum, að segja að það "sé græn slikja fyrir vitunum" á mér af því ég hef ekki sömu viðhorf og þú Sveinbjörn og hugsanlega margir aðrir hérna og að ég "neiti að horfast í augu við ramman og beiskan veruleikann" af því ég vill ekki bregðast við vandamálum sem
ÉG KEM MÉR Í á sama hátt og þú er vægast sagt mjög hrokafullt að mínu mati!
En ég veit að ég get sagt alla þessa hluti hérna því ég veit að við erum fullorðnir menn og höfum vitsmuni til að fara ekki í fýlu út í hvorn annan vegna umræðu á spjallborði um málefni líðasti stundar.