bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 18:53

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 144 posts ]  Go to page Previous  1 ... 5, 6, 7, 8, 9, 10  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Sep 2008 19:20 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 09. Jun 2003 16:50
Posts: 1154
Location: Reykjavík
Bjarkih wrote:
Kristjan PGT wrote:
Bjarkih wrote:
Kristjan PGT wrote:
Kristjan wrote:
Þetta er líka bara áhættan sem maður tekur þegar maður vinnur svart...


já okey...og ef maður er svikinn um þá vinnu er það þá bara tough luck? Það græða báðir aðilar á því að fá vinnuna svart og þú borgar það sem þú lætur vinna fyrir þig.


Hvernig græða báðir aðilar á því? Verkkaupi hefur enga tryggingu fyrir gæðum verksins og iðnaðarmaðurinn borgar t.d. ekki í lífeyrissjóð og þess háttar sem skiptir töluverðu máli ef maður hefur gáfur til að hugsa fram í tímann. Þeir sem vinna svart eru að taka vinnu af heiðarlegum iðnaðarmönnum sem borga sitt til samfélagsins þannig að ég vorkenni þeim ekki rassgat þó að þeir lendi í einhverjum svona hremmingum, líkur sækir líkan heim.


já, því að lífeyrissjóðir hafa verið að koma svo vel út? En það er nú alveg efni í nýjan þráð.

"Hvernig græða báðir aðilar á því?" Veistu hvernig svört vinna gengur fyrir sig? Munurinn á t.d. umræddum sólpalli þar sem vinna er 1,6 milljón uppgefinn gæti verið 500þúsund krónum ódýrari ef sanngjarnt er samið.
Að sjálfsögðu þurfa menn að fara varlega í þessum viðskiptum eins og öðrum. Og oftast er nú greitt eftir á þannig ef þér líkar ekki eitthvað þá er hægt að semja um það, bæta eða jafnvel slá af verðinu.

Þú skalt athuga það að það er sjaldnast iðnaðarmaðurinn sem hefur frumkvæði af því að hafa vinnuna nótulausa.

Og ertu gjörsamlega frá þér að segja að þeir sem vinna svart séu að taka vinnuna af heiðarlegum iðnaramönnum...blabla...

Nefndu mér einn iðnaramann sem nennir að vinna á kvöldin eða um helgar sem gefur allt upp og skrifar nótu á hverja einustu parketlögn...


Þetta er komið skuggalega OT en mig langar að vita hvort svona mikill sólpallur sé s.s. byggður á kvöldin og um helgar. Ég veit að ég myndi ekki standa í því. Ég hef byggt nokkra sólpalla og get alveg lofað þér því að þeir voru ekki nálægt því svona dýrir, að vísu ódýrt efni, og t.d. þegar ég byggði fyrir mig fyrir nokkrum árum þá tók þetta langan tíma, 3-4 helgar í mesta lagi.


Það er eitt sem þú verður að a.t.h í sambandi við tímann sem fer í að smíða sólpall, ég t.d. var að vinna eingöngu við sólpallasmíði í rúm þrjú ár, og þar af leiðum kann maður þessa smíði 120%
Og bara sem dæmi, að þá hef ég smíðað nokkra sólpalla seinustu mánuðina þó ég sé eiginlega bara í parketi og annari innivinnu núorðið, og það tekur ekki nema mesta lagi þrjá daga að smíða plain 100.fm pall, og fer kannski í viku eða tvær ef að girðingar, blómaker og annað slíkt er inni í því.
Þannig að það er nú ekki mikið mál að taka svona verkefni að sér svart af og til án þess að það bitni á lífeyrissjóðsgreiðslum og öðru slíku.

_________________
BMW e53 X5
Honda CRV
Gas Gas 450 FSE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Sep 2008 19:23 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 09. Jun 2003 16:50
Posts: 1154
Location: Reykjavík
Kom tvisvar

_________________
BMW e53 X5
Honda CRV
Gas Gas 450 FSE


Last edited by 98.OKT on Thu 25. Sep 2008 19:28, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Sep 2008 19:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Schulii wrote:
Það er engin tenging á milli viðskipta með peninga og líkamlegra áverka.


Skúli,,,,,, ég ætla ekki að fara að munnhöggvast við þig,,

en þar sem iðnaðarmaðurinn hefur blandast inn í þetta (( skiljanlegt svo sem )) hver er staðan hjá viðkomandi ef að sá aðili er búinn að láta af hendi miljónir ,,,,,, á REIKNINGI og kaupandi gerir ekkert í málinu,, fer í þrot osfrv, sýnir linkind varðandi uppgjör og er alveg sama,,

Þá kemur lögmál DARWIN sterklega inn í myndina

,,,,,, survivor of the fittest,,

menn bjarga sér........
oft með hótun eins og : ef þér finnst eiithvað VONT við snertingu ,, gerðu þá eitthvað í málinu og reyndu að sýna samnings vilja,,

Það er græn slikja fyrir vitunum á þér,,, þar sem þú neitar að horfast í augu við rammann og beiskann veruleikann
Veit að þú ert sóma piltur og hefur góðann mann að geyma,, en svona er þetta hvort sem fólk sé ánægt með þetta eður ei

Lögfræðiferlið er oft á tíðum dýrt og vonlaust með öllu,,,,,, EN,,,, einnig getur það verið þess eðlis að háir vextir hlaðast ofaná og menn fá bætur .. en það er of sjaldgæft



auðvitað hafa menn farið offari í þessum brútal innheimtu-aðgerðum
en þegar neyðin er orðin slík að fólk er komið á vonarvöl .. þá er ÞVÍ MIÐUR stundum eina úrræðið að láta finna fyrir sér með BODYTALK

er ansi hræddur um að afstaða þín væri ekki svona ef 1000.000 kr bíll hefði verið svikinn út úr þér og þú sætir eftir með sárt ennið og kaupandinn hefði falsað allann pakkann

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Sep 2008 19:25 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 09. Jun 2003 16:50
Posts: 1154
Location: Reykjavík
Bjarkih wrote:
Kristjan PGT wrote:
Bjarkih wrote:
Kristjan PGT wrote:
Kristjan wrote:
Þetta er líka bara áhættan sem maður tekur þegar maður vinnur svart...


já okey...og ef maður er svikinn um þá vinnu er það þá bara tough luck? Það græða báðir aðilar á því að fá vinnuna svart og þú borgar það sem þú lætur vinna fyrir þig.


Hvernig græða báðir aðilar á því? Verkkaupi hefur enga tryggingu fyrir gæðum verksins og iðnaðarmaðurinn borgar t.d. ekki í lífeyrissjóð og þess háttar sem skiptir töluverðu máli ef maður hefur gáfur til að hugsa fram í tímann. Þeir sem vinna svart eru að taka vinnu af heiðarlegum iðnaðarmönnum sem borga sitt til samfélagsins þannig að ég vorkenni þeim ekki rassgat þó að þeir lendi í einhverjum svona hremmingum, líkur sækir líkan heim.


já, því að lífeyrissjóðir hafa verið að koma svo vel út? En það er nú alveg efni í nýjan þráð.

"Hvernig græða báðir aðilar á því?" Veistu hvernig svört vinna gengur fyrir sig? Munurinn á t.d. umræddum sólpalli þar sem vinna er 1,6 milljón uppgefinn gæti verið 500þúsund krónum ódýrari ef sanngjarnt er samið.
Að sjálfsögðu þurfa menn að fara varlega í þessum viðskiptum eins og öðrum. Og oftast er nú greitt eftir á þannig ef þér líkar ekki eitthvað þá er hægt að semja um það, bæta eða jafnvel slá af verðinu.

Þú skalt athuga það að það er sjaldnast iðnaðarmaðurinn sem hefur frumkvæði af því að hafa vinnuna nótulausa.

Og ertu gjörsamlega frá þér að segja að þeir sem vinna svart séu að taka vinnuna af heiðarlegum iðnaramönnum...blabla...

Nefndu mér einn iðnaramann sem nennir að vinna á kvöldin eða um helgar sem gefur allt upp og skrifar nótu á hverja einustu parketlögn...


Þetta er komið skuggalega OT en mig langar að vita hvort svona mikill sólpallur sé s.s. byggður á kvöldin og um helgar. Ég veit að ég myndi ekki standa í því. Ég hef byggt nokkra sólpalla og get alveg lofað þér því að þeir voru ekki nálægt því svona dýrir, að vísu ódýrt efni, og t.d. þegar ég byggði fyrir mig fyrir nokkrum árum þá tók þetta langan tíma, 3-4 helgar í mesta lagi.


Það er eitt sem þú verður að a.t.h í sambandi við tímann sem fer í að smíða sólpall, ég t.d. var að vinna eingöngu við sólpallasmíði í rúm þrjú ár, og þar af leiðum kann maður þessa smíði 120%
Og bara sem dæmi, að þá hef ég smíðað nokkra sólpalla seinustu mánuðina þó ég sé eiginlega bara í parketi og annari innivinnu núorðið, og það tekur ekki nema mesta lagi þrjá daga að smíða plain 100.fm pall, og fer kannski í viku eða tvær ef að girðingar, blómaker og annað slíkt er inni í því. Þannig að það er nú ekki mikið mál að taka svona verkefni að sér svart af og til án þess að það bitni á lífeyrissjóðsgreiðslum og öðru slíku.

_________________
BMW e53 X5
Honda CRV
Gas Gas 450 FSE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Sep 2008 21:14 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Alpina wrote:
Schulii wrote:
Það er engin tenging á milli viðskipta með peninga og líkamlegra áverka.


Skúli,,,,,, ég ætla ekki að fara að munnhöggvast við þig,,

en þar sem iðnaðarmaðurinn hefur blandast inn í þetta (( skiljanlegt svo sem )) hver er staðan hjá viðkomandi ef að sá aðili er búinn að láta af hendi miljónir ,,,,,, á REIKNINGI og kaupandi gerir ekkert í málinu,, fer í þrot osfrv, sýnir linkind varðandi uppgjör og er alveg sama,,

Þá kemur lögmál DARWIN sterklega inn í myndina

,,,,,, survivor of the fittest,,

menn bjarga sér........
oft með hótun eins og : ef þér finnst eiithvað VONT við snertingu ,, gerðu þá eitthvað í málinu og reyndu að sýna samnings vilja,,

Það er græn slikja fyrir vitunum á þér,,, þar sem þú neitar að horfast í augu við rammann og beiskann veruleikann
Veit að þú ert sóma piltur og hefur góðann mann að geyma,, en svona er þetta hvort sem fólk sé ánægt með þetta eður ei

Lögfræðiferlið er oft á tíðum dýrt og vonlaust með öllu,,,,,, EN,,,, einnig getur það verið þess eðlis að háir vextir hlaðast ofaná og menn fá bætur .. en það er of sjaldgæft



auðvitað hafa menn farið offari í þessum brútal innheimtu-aðgerðum
en þegar neyðin er orðin slík að fólk er komið á vonarvöl .. þá er ÞVÍ MIÐUR stundum eina úrræðið að láta finna fyrir sér með BODYTALK

er ansi hræddur um að afstaða þín væri ekki svona ef 1000.000 kr bíll hefði verið svikinn út úr þér og þú sætir eftir með sárt ennið og kaupandinn hefði falsað allann pakkann


Sveinbjörn, ekki segja "ég ætla ekki að fara að munnhöggvast við þig" og koma svo með fullan skjá af slíku í minn garð. Þá er heiðarlegra að sleppa öðru hvoru.

Það er engin spurning að svik og skipulagðir glæpir hafa aukist stórlega síðustu ár á Íslandi. Þú komst einmitt inn á það sjálfur í eldri þræði hérna ekki alls fyrir löngu. En það virðist sem við höfum enga mótstöðu fyrir því að smitast af þessu eitraða hugarfari sem gengur eins og eldur í sinu um allt þjóðfélagið.

Ég er engin sómapiltur frekar enn hver annar hér á þessu spjalli. Ég hef unnið svart og farið inn á þessi svæði þar sem ég veit að ég get hagnast meira á vissri áhættu. En að koma sér í slík skítamál fyrir það fyrsta að vinna svart fyrir einhvern sem maður varla þekkir eða treystir er bara hrein heimska. Hvað þá að versla efni fyrir einhverjar milljónir og hafa enga tryggingu eða neitt í höndunum og afhenda bara með heiðursmannasamkomulag í huga. (en auðvitað er það ekkert heiðursmannasamkomulag ef ég geri þetta og um leið hugsa með mér að ég muni bara fá handrukkara í málið ef það verður eitthvað vesen)
Þannig að ég hef ENGA samúð með mönnum sem koma viðskiptavini sínum í slíka skuld við sig.

Ég reiði ekki af hendi nema lítið af vinnu/vöru í einu ef viðskiptin eru ekki uppi á yfirborðinu PUNKTUR - Ef ég hinsvegar geri það er ég bara að taka áhættuna og hef alveg brennt mig á því.

Það sem kemur mér á óvart er hversu margir virðast líta á handrukkara sem eðlilegan hlut. Ég gerði mér enga grein fyrir því fyrr en þessi umræða fór af stað. Glæpamenn geta ALLTAF réttlætt það að þeir hafi góða, réttlætanlega ástæðu fyrir því sem þeir eru að gera:

- "Þessi ríkisstjórn er búin að hafa af mér svo mikla skatta að ég sé ekkert að því að vinna soldið svart" (Ég)

- "Ef ég hætti að díla þá skaffa þau sér þessu bara hjá einhverjum öðrum"

- "Það er vísindalega sannað að eiturlyf eru ekkert hættulegri en áfengi svo ég sé ekkert að því að neyta þeirra / selja þau"

- "Það er nú bara eftir því í hvaða landi þú ert hvort þú sért barnaníðingur eða ekki sko því lögaldurinn er svo misjafn sko"

- "Ef ég ræni ekki 10-11 til að borga dílernum verð ég limlestur"

- "Þessi bíll er svo miklu öruggari en flestir aðrir bílar að það er töluvert hættuminna að keyra hratt á honum en þessu japanska rusli"

- Veruleikinn er orðinn svo rammur og beiskur að ég verð bara, svei(nbjörn) mér þá að fá handrukkara í málið til að innheimta þessa skuld fyrir mig

Það sem ég vill að komi alveg skýrt fram er að ég veit ekkert hvað gerist ef ég stend frammi fyrir þeim aðstæðum að ég hef látið ríða mér svo smjörlíkislaust í endaþarminn að svíður undan eins og Wasabi hafi verið mokað í grammavís í stjörnuna á mér. Hver veit nema ég í bræði minni tali við einhvern af þeim sem ég kannast við og eru tengdir í þennan heim. En það er alveg ljóst að ég veit það að sama hverjar aðstæður mínar eru, þetta er ekki rétt leið!!! og ég mun taka þá meðvituðu ákvörðun að fara ranga leið.

Ég hef alveg gert mér grein fyrir því síðustu ár að mín viðhorf eru ekki beint eins og flestra hérna.
Ég stóð með löggunni í bensínstöðvarmótmælunum
og stend nánast alltaf með lögreglunni í þessum hitamálum
ég vill setja hærri álögur á bíla sem menga mikið
ég vill setja mörk á hversu aflmikla bíla þeir megi keyra sem eru nýkomnir með próf
ég vill harðari refsingar við umferðarbrotum
ég lít á það sem siðlaust athæfi að setja handrukkara í að innheimta peningaskuld
En við hverju öðru er að búast en þetta sé ekki alveg meðalviðhorfið í svona EGO-miðstöð eins og BMW-spjallborð hlýtur að vera :lol:

En að lokum, að segja að það "sé græn slikja fyrir vitunum" á mér af því ég hef ekki sömu viðhorf og þú Sveinbjörn og hugsanlega margir aðrir hérna og að ég "neiti að horfast í augu við ramman og beiskan veruleikann" af því ég vill ekki bregðast við vandamálum sem ÉG KEM MÉR Í á sama hátt og þú er vægast sagt mjög hrokafullt að mínu mati!

En ég veit að ég get sagt alla þessa hluti hérna því ég veit að við erum fullorðnir menn og höfum vitsmuni til að fara ekki í fýlu út í hvorn annan vegna umræðu á spjallborði um málefni líðasti stundar.

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Sep 2008 22:02 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Posts: 827
Location: Erlendis
Props.

Búandi erlendis hef ég eðlilega hvorki nennt né haft tíma né annað til að fylgjast með þessari umræðu náið.

Hinsvegar er þetta innlegg það fyrsta vitræna sem ég sé í þessu í langa tíma og tek því fagnandi.

G

_________________
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Sep 2008 23:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Eitt sem mig langar líka að koma að, ef iðnaðarmaður tekur að sér svarta vinnu þá verður hann að gera sér grein fyrir áhættunni. Ég hef staðið við hliðina á einum slíkum sem neitaði að taka að sér verkefni svart, vegna þess að hann vildi ekki taka áhættuna af því, þekkti ekki til aðilans og svoleiðis. Maður á einfaldlega ekki að treysta þeim sem maður þekkir ekki. Og ef manni finnst í lagi að berja fólk til að innheimta skuldir þá ættu menn að drullast til að gera það sjálfir í staðinn fyrir að vera það miklir aumingjar að þeir þurfi að senda aðra til þess :wink:

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Sep 2008 23:10 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 09. Jun 2003 16:50
Posts: 1154
Location: Reykjavík
Bjarkih wrote:
Eitt sem mig langar líka að koma að, ef iðnaðarmaður tekur að sér svarta vinnu þá verður hann að gera sér grein fyrir áhættunni. Ég hef staðið við hliðina á einum slíkum sem neitaði að taka að sér verkefni svart, vegna þess að hann vildi ekki taka áhættuna af því, þekkti ekki til aðilans og svoleiðis. Maður á einfaldlega ekki að treysta þeim sem maður þekkir ekki. Og ef manni finnst í lagi að berja fólk til að innheimta skuldir þá ættu menn að drullast til að gera það sjálfir í staðinn fyrir að vera það miklir aumingjar að þeir þurfi að senda aðra til þess :wink:


Menn eru eins misjafnir og þeir eru margir.
Ég hef aldrei á minni æfi hitt smið sem hefur aldrei eða vill ekki vinna svarta vinnu....
Ég vil frekar líta á málið þannig að ef þú ert ekki maður til að borga það sem samið er um, eða ert á þeim buxunum að ætla bara hreinlega ekki að borga, sama hvort vinnan er svört eða lögleg, að þá skaltu bara búast við því versta hvað innheimtu varðar.....
Áhættan eða ábyrgðin á ekki að liggja hjá verktakanum, þar sem það er verkkaupinn sem á frumkvæðið af viðskiftunum, sama hvort sem um er að ræða svarta vinnu eða ekki!!!!

_________________
BMW e53 X5
Honda CRV
Gas Gas 450 FSE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Sep 2008 23:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Málið er líka bara þannig að "iðnaðarmaðurinn" veit vel að hann hringir bara símtöl ef ekki er borgað, það er hugsunarhátturinn hjá mörgum sýnist mér.

Ég held að í gegnum GSTuning hafi ég selt tvisvar vörur án þess að fá borgað fyrirfram, ég sé það bara þannig að ef fólk á ekki efni á einhverju NÚNA hverjar eru líkurnar á því að fólk eigi pening eftir 2-3vikur??

Ég talaði við einhvern sem á/átti spoiler kita fyrirtæki á sínum tíma/ennþá og sá tók að sér vinnu við málun, ásetningu og allt tengt því, skuldir stóðu vel yfir nokkrar milljónir á þeim tíma því að fólk "lenti í veseni" , "þurfti að borga eitthvað annað" , og þetta fólk var bara búið að koma og sækja bílinn sinn, ég er sko búinn að fá MÖRG pm/email sem eru svipuð, hvernig væri skúrinn hjá manni ef maður pantaði án þess að fá borgað.

Þeir sem velja að vinna svart ættu klárlega ekki að vera vinna fyrir ókunnugt fólk, og þeir sem kaupa vinnu ættu ekki að fá ókunnuga til að gera fyrir sig hluti.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 25. Sep 2008 23:42 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 03. May 2003 18:34
Posts: 1610
Mig langar að koma með eitt inní þessa umræðu.

Það er nefnilega tvennt ólíkt að rukka mann sem hefur lent í fjárhagslegum vandræðum og biður um frest og svo skítalabba sem nánast bera inn nýja sjónvarpið fyrir framan þig og snúa sér svo við og segja "æihh..ég á ekki pening"

Þetta verða menn svo að vega og meta sjálfir.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Sep 2008 08:05 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Manni stendur nú ekki alveg á sama hér. Það er ljóst að virðing mín fyrir nokkrum hér hefur nú dálítið breyst.

Það er hægt að reyna að réttlæta allan andskotann en enn og aftur þá skil ég ekki að mannorð sumra hér sé ekki meira virði en svo að því sé hent út um gluggan með því að vera í slagtogi við glæpamenn.

Maður á eftir að lesa innlegg hér hjá mönnum sem eru "hundeltir" af lögreglunni með alveg nýju hugarfari. Þeim væri kannski hollt að velta því fyrir sér hvort það sé kannski vegna þess að þeir eru í svona félagsskap.

Schulii hittir naglann á höfuðið algjörlega, bæði hvað varðar það að taka svona mikla áhættu í svona viðskiptum og einnig varðandi réttlætingu að baki svona viðbrögðum.

Maður kaupir sér ekki einn mann til að pína annan (andlega eða líkamlega). Það er bara gjörsamlega sjúkt og þeim sem finnst það í lagi þurfa að hugsa sinn gang.

Ég held það sé komin tími á almenna tiltekt á þessu spjallborði, loka fyrir off topic hreinlega og halda sig við bíla. Það er ekki verandi hérna lengur ef svona mikill tími fer í það að andmæla svona siðlausri vitleysu.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Sep 2008 08:55 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Posts: 860
Location: Reykjavík
bebecar wrote:
Ég held það sé komin tími á almenna tiltekt á þessu spjallborði, loka fyrir off topic hreinlega og halda sig við bíla. Það er ekki verandi hérna lengur ef svona mikill tími fer í það að andmæla svona siðlausri vitleysu.


Ég er ekki sammála því að loka fyrir offtopic. Finnst ekkert að því að hafa einhvern vettvang þar sem menn geta verið að skiptast á skoðunum.

Auk þess er enginn þvingaður til að skoða offtopic eða skrifa þar :wink:

_________________
Siggi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Sep 2008 09:05 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
basten wrote:
bebecar wrote:
Ég held það sé komin tími á almenna tiltekt á þessu spjallborði, loka fyrir off topic hreinlega og halda sig við bíla. Það er ekki verandi hérna lengur ef svona mikill tími fer í það að andmæla svona siðlausri vitleysu.


Ég er ekki sammála því að loka fyrir offtopic. Finnst ekkert að því að hafa einhvern vettvang þar sem menn geta verið að skiptast á skoðunum.

Auk þess er enginn þvingaður til að skoða offtopic eða skrifa þar :wink:


Jú, maður er þvingaður til þess ef maður hefur sómasamlega siðferðis tilfinningu.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Sep 2008 09:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
Pínulítil ábending í annars líflegum þræði.

Maður fær 60% af vsk-num greiddan tilbaka frá tollstjóra af allri þeirri
vinnu sem er innt af hendi við húsið þitt. Ferð bara með nótuna til þeirra
og þeir endurgreiða eftir einhverja viku tvær..

_________________
Carrera4 964 '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Sep 2008 09:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Schulii wrote:
Alpina wrote:
Schulii wrote:
Það er engin tenging á milli viðskipta með peninga og líkamlegra áverka.


Skúli,,,,,, ég ætla ekki að fara að munnhöggvast við þig,,

en þar sem iðnaðarmaðurinn hefur blandast inn í þetta (( skiljanlegt svo sem )) hver er staðan hjá viðkomandi ef að sá aðili er búinn að láta af hendi miljónir ,,,,,, á REIKNINGI og kaupandi gerir ekkert í málinu,, fer í þrot osfrv, sýnir linkind varðandi uppgjör og er alveg sama,,

Þá kemur lögmál DARWIN sterklega inn í myndina

,,,,,, survivor of the fittest,,

menn bjarga sér........
oft með hótun eins og : ef þér finnst eiithvað VONT við snertingu ,, gerðu þá eitthvað í málinu og reyndu að sýna samnings vilja,,

Það er græn slikja fyrir vitunum á þér,,, þar sem þú neitar að horfast í augu við rammann og beiskann veruleikann
Veit að þú ert sóma piltur og hefur góðann mann að geyma,, en svona er þetta hvort sem fólk sé ánægt með þetta eður ei

Lögfræðiferlið er oft á tíðum dýrt og vonlaust með öllu,,,,,, EN,,,, einnig getur það verið þess eðlis að háir vextir hlaðast ofaná og menn fá bætur .. en það er of sjaldgæft



auðvitað hafa menn farið offari í þessum brútal innheimtu-aðgerðum
en þegar neyðin er orðin slík að fólk er komið á vonarvöl .. þá er ÞVÍ MIÐUR stundum eina úrræðið að láta finna fyrir sér með BODYTALK

er ansi hræddur um að afstaða þín væri ekki svona ef 1000.000 kr bíll hefði verið svikinn út úr þér og þú sætir eftir með sárt ennið og kaupandinn hefði falsað allann pakkann


Sveinbjörn, ekki segja "ég ætla ekki að fara að munnhöggvast við þig" og koma svo með fullan skjá af slíku í minn garð. Þá er heiðarlegra að sleppa öðru hvoru.

Það er engin spurning að svik og skipulagðir glæpir hafa aukist stórlega síðustu ár á Íslandi. Þú komst einmitt inn á það sjálfur í eldri þræði hérna ekki alls fyrir löngu. En það virðist sem við höfum enga mótstöðu fyrir því að smitast af þessu eitraða hugarfari sem gengur eins og eldur í sinu um allt þjóðfélagið.

Ég er engin sómapiltur frekar enn hver annar hér á þessu spjalli. Ég hef unnið svart og farið inn á þessi svæði þar sem ég veit að ég get hagnast meira á vissri áhættu. En að koma sér í slík skítamál fyrir það fyrsta að vinna svart fyrir einhvern sem maður varla þekkir eða treystir er bara hrein heimska. Hvað þá að versla efni fyrir einhverjar milljónir og hafa enga tryggingu eða neitt í höndunum og afhenda bara með heiðursmannasamkomulag í huga. (en auðvitað er það ekkert heiðursmannasamkomulag ef ég geri þetta og um leið hugsa með mér að ég muni bara fá handrukkara í málið ef það verður eitthvað vesen)
Þannig að ég hef ENGA samúð með mönnum sem koma viðskiptavini sínum í slíka skuld við sig.

Ég reiði ekki af hendi nema lítið af vinnu/vöru í einu ef viðskiptin eru ekki uppi á yfirborðinu PUNKTUR - Ef ég hinsvegar geri það er ég bara að taka áhættuna og hef alveg brennt mig á því.

Það sem kemur mér á óvart er hversu margir virðast líta á handrukkara sem eðlilegan hlut. Ég gerði mér enga grein fyrir því fyrr en þessi umræða fór af stað. Glæpamenn geta ALLTAF réttlætt það að þeir hafi góða, réttlætanlega ástæðu fyrir því sem þeir eru að gera:

- "Þessi ríkisstjórn er búin að hafa af mér svo mikla skatta að ég sé ekkert að því að vinna soldið svart" (Ég)

- "Ef ég hætti að díla þá skaffa þau sér þessu bara hjá einhverjum öðrum"

- "Það er vísindalega sannað að eiturlyf eru ekkert hættulegri en áfengi svo ég sé ekkert að því að neyta þeirra / selja þau"

- "Það er nú bara eftir því í hvaða landi þú ert hvort þú sért barnaníðingur eða ekki sko því lögaldurinn er svo misjafn sko"

- "Ef ég ræni ekki 10-11 til að borga dílernum verð ég limlestur"

- "Þessi bíll er svo miklu öruggari en flestir aðrir bílar að það er töluvert hættuminna að keyra hratt á honum en þessu japanska rusli"

- Veruleikinn er orðinn svo rammur og beiskur að ég verð bara, svei(nbjörn) mér þá að fá handrukkara í málið til að innheimta þessa skuld fyrir mig

Það sem ég vill að komi alveg skýrt fram er að ég veit ekkert hvað gerist ef ég stend frammi fyrir þeim aðstæðum að ég hef látið ríða mér svo smjörlíkislaust í endaþarminn að svíður undan eins og Wasabi hafi verið mokað í grammavís í stjörnuna á mér. Hver veit nema ég í bræði minni tali við einhvern af þeim sem ég kannast við og eru tengdir í þennan heim. En það er alveg ljóst að ég veit það að sama hverjar aðstæður mínar eru, þetta er ekki rétt leið!!! og ég mun taka þá meðvituðu ákvörðun að fara ranga leið.

Ég hef alveg gert mér grein fyrir því síðustu ár að mín viðhorf eru ekki beint eins og flestra hérna.
Ég stóð með löggunni í bensínstöðvarmótmælunum
og stend nánast alltaf með lögreglunni í þessum hitamálum
ég vill setja hærri álögur á bíla sem menga mikið
ég vill setja mörk á hversu aflmikla bíla þeir megi keyra sem eru nýkomnir með próf
ég vill harðari refsingar við umferðarbrotum
ég lít á það sem siðlaust athæfi að setja handrukkara í að innheimta peningaskuld
En við hverju öðru er að búast en þetta sé ekki alveg meðalviðhorfið í svona EGO-miðstöð eins og BMW-spjallborð hlýtur að vera :lol:

En að lokum, að segja að það "sé græn slikja fyrir vitunum" á mér af því ég hef ekki sömu viðhorf og þú Sveinbjörn og hugsanlega margir aðrir hérna og að ég "neiti að horfast í augu við ramman og beiskan veruleikann" af því ég vill ekki bregðast við vandamálum sem ÉG KEM MÉR Í á sama hátt og þú er vægast sagt mjög hrokafullt að mínu mati!

En ég veit að ég get sagt alla þessa hluti hérna því ég veit að við erum fullorðnir menn og höfum vitsmuni til að fara ekki í fýlu út í hvorn annan vegna umræðu á spjallborði um málefni líðasti stundar.


Ég held að þessi póstur sem bara með þeim allra gáfulegustu sem ég hef lesið á internetinu, lýsir minni skoðun alveg fullkomlega.

Kæri mig ekki um að blanda mér meira í þetta en bara til að hrósa þér fyrir góð skrif.

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 144 posts ]  Go to page Previous  1 ... 5, 6, 7, 8, 9, 10  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group