krullih wrote:
Vill benda þeim sem kommentaði á að lögreglan sem mætir á svæðið á að fylgja öllu í gegn. Hinsvegar ef ég er að fara með rétt mál á lögreglumaður á vakt skv. lögum og starfslýsingu að láta vaktstjóra vita um leið og hagsmunaáreksktur verður ljós og koma öðrum manni inní málið. Frá mínútu eitt.
Þannig að ekki er hægt að afsaka þennan slapagang þannig.
Það er nú bara þannig að Ísland er ekkert sérlega fjölmennt og ef að lögreglumenn ættu að lýsa sig vanhæfa í hvert einasta skipti sem þeir þekkja einhvern þá væri ansi erfitt fyrir lögregluna að vinna, tala nú ekki um í fámennari plássum.
En Stefán Eiríksson, lögreglustóri Höfuðborgarsvæðisins, kom inn á þennan punkt að málið hefði gengið greitt fyrir sig hjá lögreglunni og er búið að gefa út ákæru í því þannig að þessar dylgjur hjá Kompási standa einfaldlega ekki undir sér (frekar en þessi þáttur).
Svo talar Ragnar um að lögreglumaðurinn hafi spurt sig hvort hann ætli "nokkuð" að kæra. Ætli lögreglumaðurinn hafi ekki bara spurt hvort hann ætli að kæra og Ragnar bætt inn í þessu "nokkuð". Kæmi ekki á óvart m.v. hvernig karakter hann virðist vera.