SævarM wrote:
Angelic0- wrote:
jon mar wrote:
Prófaðu að vera óþolandi hressi gaurinn í næstu 10 skipti sem þeir stoppa þig.
Slær þá alltaf útaf laginu, sumir verða svooooo vandræðalegir

Ég var einmitt farþegi afturí áðan þegar að löggan stoppaði Pabba...
Var fjári asnalegur svipur á lögregluþjóninum þegar að árið 1965 var fæðingarár á ökuskírteininu

Þetta var semsagt þannig að við vorum að koma reykjanesbrautina heim, þegar að lögregluþjónn sem að er duglegur að leggja mig í einelti hér í bæ ætlar að taka framúr okkur hægra megin... s.s. á hægri akrein...
Pabbi (sem að fílar kraftinn í E60) tók það ekki í mál og fór framúr honum og lokaði á hann, ég tók eftir því að gaurinn var að skima eftir því hvort að ég væri að keyra....
Þegar að við síðan komum inn í Njarðvík bíður þar lögreglubíll, og hann er lagður frekar asnalega úti í kanti (einsog þeir hafi lagt honum þarna í einhverjum flýti) og snýr við um leið og við fórum framhjá þeim, eltu okkur og stoppuðu okkur í snatri.
Eftir þetta sleppa þeir okkur en keyra sömu leið og við en beygja inn á lögreglustöðina, semsagt eini tilgangur lögreglunnar var að fara út á reykjanesbraut til að stoppa okkur og vera með stæla.
Magnað dæmi eða hvað

Einnig má koma því á framfæri að lögregluþjónninn var ENGAN VEGINN að aka löglega hvorki virti hraðatakmarkanir né veit ég til þess að það sé löglegt að taka framúr á hægri akrein

Ég nefni ENGAR tölur

ef að þú varst á tvöfölduninni er ekkert sem að bannar það .
Svo er voða gott að muna það að löggur eru nú líka menn og þetta er bara starf og þarf þetta fólk ekki að lifa eins og munkar. og ekki beygja lögin svona,
mér finnst alveg rosalega ólíklegt að lögga sem að er ekki á vakt hafi haft fyrir því að hringja eitthvað og láta bíl koma á brautina til að tékka á þér,
ég veit það að
þær löggur sem að ég þekki eru sko ekki í vinnunni á frítíma og hringja í vinnufélagana og benda á allt ef að eitthvað er gert vitlaust.PS. þá tel ég mig nú sem kunningja þinn og líkar bara fínt við þig ,
en þú ert nú líka búin að kalla þetta oft yfir þig, (alls ekkert ílla meint)
Sævar minn, þakka þér hlýleg orð... ég kann líka rosalega vel við þig
Ég veit ósköp vel að ég hef ekki verið barnanna bestur í gegnum tíðina með aksturslagið

en þetta er orðin rosalega þreytt klausa hjá lögreglunni...
Pabbi er búinn að vera svolítið á bílnum núna upp á síðkastið og hann sagði þetta vera farið að fara í taugarnar á sér, sama á við um Margréti
Hinsvegar veitti ég því athygli að maðurinn teygði sig yfir stýrið til að skima eftir því hver var að keyra og þegar að gamli kom með gusuna þá benti hann og snéri sér eitthvað að farþeganum og ég gat svona næstum lesið "blabla... Viktor... bladdíbla" af vörum hans...
Við létum okkur hverfa og skömmu seinna mættum við þessum lögreglubíl, ég þykist vita (þó svo að auðvitað geti þetta verið della) að hann hafi kallað til félaga sinn og þarna hafi planið verið að negla mig eitthvað, en lögregluþjónninn hafði EKKERT í höndunum, við mættum honum á 90kmh og í þokkabót var PABBI að keyra

algjört FACE...
En það væri rosalega gaman að lána allan flotann bara til aksturs hérna á suðurnesjunum... og fá svo report frá þeim sem að eru á bílunum hvað gerist
