íbbi_ wrote:
en æðisleg umræða..
nei ég er ekki með próf,
eins og hörður bendir nú á þá var síðast þegar ég vissi ennþá hægt að fara í prófið, hjólið er alveg sama leiktækið óháð því hvort ég á það eða ekki,
var s.s ekki í lagi að ég keypti hjól og léti það bíða inní skúr þangað til prófið væri komið eins og planið var?
Auðvitað var í lagi að þú keyptir hjólið og það er oft þannig að menn kaupa sér fyrst hlutinn og fá sér svo réttindi, bílinn sem ég átti þegar ég fékk prófið hafði ég átt í tæpan mánuð þegar prófið loksins kom, en ég keyrði hann samt ekki.
Ég held að mönnum sé aðallega umhugað um að menn sæki sér próf áður en þeir fara út að keyra. Það gæti nefnilega komið upp sú leiðindar aðstaða að próflaus maður veldur öðrum tjóni (líkamlegu eða peningalegu) og að því að hann er próflaus þá fær þriðji aðili sitt tjón ekki bætt.
En ekki taka þessu þannig Ibbi að þessu sé eitthvað sérstaklega beint til þín.
Enn og aftur til hamingju með hrikalega flott hjól.