bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 24. Jun 2025 05:42

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 25 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Fri 04. Jul 2008 18:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Svo þarf að passa sig að kaupa réttu kolin. Royal Oak (þessi í rauðu pokunum) eru langbest miðað við mína reynslu. Endast betur en aðrar tegundir.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 04. Jul 2008 20:08 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Weber fær mitt atkvæði. Gamla settið keypti eitthvað voða flott Weber gasgrill um daginn og ég er kominn með allt annað álit á gasgrillum núna, alveg þvílíkt gott grill og eins og eitthver sagði, BMW grillana 8)

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 05. Jul 2008 09:26 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
ömmudriver wrote:
Weber fær mitt atkvæði. Gamla settið keypti eitthvað voða flott Weber gasgrill um daginn og ég er kominn með allt annað álit á gasgrillum núna, alveg þvílíkt gott grill og eins og eitthver sagði, BMW grillana 8)


Weber gasgrill er mjög gott gasgrill en Weber kolagrill er bara á allt öðru plani :wink: Ég er búin að grilla á öllum gerðum af Weber grillum og það toppar ekkert hefðbundið kúlugrill.

Ef maður endilega vill gas, þá er auðvitað Weber gasgrill mjög vandað en það á ekki séns í kúlugrillið.

En, já og Weber blöndungar eru líka svalir....

Persónulega hefur mér alltaf fundist Royal Oak slæm kol... en þau eru skárri en nánast öll önnur kol heima. Það voru til dönsk kol einu sinni heima í hvítum og bláum pokum sem voru mjög góð en annars eru bestu kolin Heat Beads - Weber nota þau sjálfir og þau duga þrisvar í grillið og halda hitanum eins lengi og þú vilt og það fýkur minimal aska úr þeim þegar það er hávaða rok úti.

Image

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 05. Jul 2008 16:07 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Posts: 3209
Location: inn í bílnum þínum.
Vitið þið hvað þetta grill kostar sirka?

Image

_________________
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 05. Jul 2008 16:33 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Mon 06. Nov 2006 23:53
Posts: 402
Location: Húsavík
Image

Outback Hunter Classic
Outback Hunter Classic gasgrill
Hunter Outback gasgrill.
Grillflöturinn er 60x50 sm
Þrír brennarar úr steypujárni 11,8 Kw.
Flame tamer hlíf yfir brennurum
Auðþrífanlegur lekabakki
Hitamælir á hlíf
Aðfellanleg hitagrind
Hjálmur með emeleraðri postulínshúð
Grillið og grillgrindin er húðað með postulínsemeleringu sem gefur góða vörn gegn háum hita og ryði
Innbyggð snúningskveikja

38.990 kr.




Fæst í Húsasmiðjuni hef góða reynslu af þessu

_________________
Hilux 36"
BMW e36 325I
Land Cruiser VX
BMW e34 530IA


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 05. Jul 2008 16:38 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Posts: 1278
Location: Keflavík
Ég var einmitt að spá í þessu Outback Grilli sem hnefill var að pósta, en ég endaði á að kaupa Landmann grill í Grillbúðinni á 39.900 kr. Ég átti svolítið erfitt með að ákveða mig, en ég endaði á að taka það yfir Outback grillið. Svo þarf bara að koma í ljós hvort þetta sé ekki í lagi :)

http://www.grillbudin.is/index.php?page ... &Itemid=30

_________________
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 06. Jul 2008 09:31 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Svona grill endast svo stutt... Weberinn endist í 20 ár ef hann fýkur ekki :wink:

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 06. Jul 2008 12:18 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Posts: 3939
Location: London
bebecar wrote:
Svona grill endast svo stutt... Weberinn endist í 20 ár ef hann fýkur ekki :wink:


Ég var einmitt að ræða þetta við félaga mína um daginn.
Weber gasgrill kostar minnst um 120 þúsund hérna heima.
Outback grill í sömu stærð kostar um 30 þúsund.
Þ.e. þú getur fengið 4 stk outback grill fyrir sama verð og 1 stk af hinu.

Staðreyndin er sú að menn hugsa yfirleitt betur um hluti sem kosta meira,
þannig að sá sem kaupir sér Weber grill hugsar mun betur um það heldur
en "bensínstöðvargrillið". Ég get alveg lofað þér því að ef þú tækir grill
af sitthvorri gerðinni og færir nákvæmlega jafn vel með það mundi þetta
Outback grill duga þér svipað lengi og hitt :wink:

Og það þýðir ekkert að bera þetta saman við BMW vs. Toyotu útaf því
að þetta grillar matinn alveg eins :D


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 06. Jul 2008 13:04 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Þið skuluð allavega EKKI kaupa "noname" grill. Ekki blindast af stærð, ryðfríu stáli (sem síðan ryðgar) og endalausum brennurum. Þetta dót verður ónýtur El-grillo á einu ári við íslenksar möbelfacktaaðstæður.

Það sem skiptir máli er mögulegur hiti og einnig hvernig ristarnar eru unnar ásamt breiddin á þeim. En auðvitað er það þannig að mikil hitaskipti, grilla í kulda og raka, á eftir að veðra grillið svakalega hratt og þess vegna verður maður að spá í gæðin. Persónulega myndi ég fara í minna grill og meiri gæði heldur en eitthvað risa standpínukeppnigrill. Maður er miklu oftar að grilla fyrir 4 heldur en 20 og þess vegna eru risagrillin bara einfaldlega of stór, sérstaklega þegar gasið er orðið fjandi dýrt. Algerlega óþarft að setja 6 brennara í gang fyrir 2 borgara.

Ég keypti Sterling grill úti í Lúx (c.a. 1000 euro grill). Fyrir sama pening var hægt að fá frekar fátæklegan Weber en samt sem áður greinlega vel byggðan. Ég get hiklaust mælt með báðum þar sem að Stelingið hefur reynst alveg frábærlega (staðið úti í næstum 3 ár) og ef maður þrífur það og umgengst skynsamlega, virkar það enn eins og nýtt og batterísstartarinn líka.

Vinnufélagi minn fékk sér Weber og það er líka alveg frábært grill, mjög sambærilegur hiti, svipaðar ristar en færri aukahlutir fyrir sama pening.

Mig minnir reyndar að flest þessi "betri" grill séu framleidd af sama fyrirtæki (BMC) eða álíka.

Gasgrill eru ekki Tölvur, það er ekki mikl framför í þessum fræðum, þannig að það borgar sig að vanda valið aðeins.

WEBER er Rollsinn og maður þarf að eyða til að fá en gæðin eru óumdeilanleg, Sterling er á viðráðanlegra verði (allavega úti hjá mér) og maður fær mikið fyrir aðeins minna og að mér sýnist alveg hörku gæði.

KOLAGRILL: eru klárlega málið ef maður hefur aðstæður í það, ég er alveg sammála Ingvari að það jafnast ekkert á við Tudda sem hefur verið höndlaður af kolum 8) En kolagrill eru frekar óhagstæð fyrir íslenskar aðstæður þar sem að það er sjaldan logn og því erfitt að kveikja upp, askan á það til að þyrlast upp í steikina þannig að þetta getur orðið subbulegt.

ÉG er alveg búinn að sjá fyrir mér hlaðið konlagrill í bakgarðinu niðri við Mósel, 30gráðu hita og mjúkan tudda á feitum teinum yfir eldfjalli af kolum.

my 2 cents.

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 06. Jul 2008 14:17 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Sterling eru góð gasgrill.

Það vill svo til að ég vann við þetta í kringum 1997, þá fluttum við hjá Skeljungi inn Sterling og Weber þannig að ég þekki þetta vel og hef grillað á öllum gerðum af þessum grillum.

Weber gasgrill kosta formúgu og ég get lofað að það endist miklu lengur en Outback - betri efni, færri samsetningar = lengri ending. En sama er einmitt ástæða þess að Sterling gasgrill endast vel, þau eru einföld.

Weber kolagrill er svo hægt að fá með borði og lokuðum stampi undir þannig að rokið skiptir litlu máli. Það þyrfti að vera ansi mikið rok til þess að maður gæti ekki grillað og þá er hvort eð er kannski ekkert spennandi að grilla.

Uppkveikjan er lítið mál sömuleiðis - bara kaupa stamp til að hita kolin upp í og þá er bara gott að hafa smá golu.

En annars var ég að tala um endinguna á Weber kolagrilli. Þau eru nefnilega emileruð og meðan emileringin er óbrotin ryðgar grillið ekki og endist því verulega lengi.

Sveinn nefnir svo grindina - það skiptir miklu máli sömuleiðis.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 25 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group