Þið skuluð allavega EKKI kaupa "noname" grill. Ekki blindast af stærð, ryðfríu stáli (sem síðan ryðgar) og endalausum brennurum. Þetta dót verður ónýtur El-grillo á einu ári við íslenksar möbelfacktaaðstæður.
Það sem skiptir máli er mögulegur hiti og einnig hvernig ristarnar eru unnar ásamt breiddin á þeim. En auðvitað er það þannig að mikil hitaskipti, grilla í kulda og raka, á eftir að veðra grillið svakalega hratt og þess vegna verður maður að spá í gæðin. Persónulega myndi ég fara í minna grill og meiri gæði heldur en eitthvað risa standpínukeppnigrill. Maður er miklu oftar að grilla fyrir 4 heldur en 20 og þess vegna eru risagrillin bara einfaldlega of stór, sérstaklega þegar gasið er orðið fjandi dýrt. Algerlega óþarft að setja 6 brennara í gang fyrir 2 borgara.
Ég keypti Sterling grill úti í Lúx (c.a. 1000 euro grill). Fyrir sama pening var hægt að fá frekar fátæklegan Weber en samt sem áður greinlega vel byggðan. Ég get hiklaust mælt með báðum þar sem að Stelingið hefur reynst alveg frábærlega (staðið úti í næstum 3 ár) og ef maður þrífur það og umgengst skynsamlega, virkar það enn eins og nýtt og batterísstartarinn líka.
Vinnufélagi minn fékk sér Weber og það er líka alveg frábært grill, mjög sambærilegur hiti, svipaðar ristar en færri aukahlutir fyrir sama pening.
Mig minnir reyndar að flest þessi "betri" grill séu framleidd af sama fyrirtæki (BMC) eða álíka.
Gasgrill eru ekki Tölvur, það er ekki mikl framför í þessum fræðum, þannig að það borgar sig að vanda valið aðeins.
WEBER er Rollsinn og maður þarf að eyða til að fá en gæðin eru óumdeilanleg, Sterling er á viðráðanlegra verði (allavega úti hjá mér) og maður fær mikið fyrir aðeins minna og að mér sýnist alveg hörku gæði.
KOLAGRILL: eru klárlega málið ef maður hefur aðstæður í það, ég er alveg sammála Ingvari að það jafnast ekkert á við Tudda sem hefur verið höndlaður af kolum

En kolagrill eru frekar óhagstæð fyrir íslenskar aðstæður þar sem að það er sjaldan logn og því erfitt að kveikja upp, askan á það til að þyrlast upp í steikina þannig að þetta getur orðið subbulegt.
ÉG er alveg búinn að sjá fyrir mér hlaðið konlagrill í bakgarðinu niðri við Mósel, 30gráðu hita og mjúkan tudda á feitum teinum yfir eldfjalli af kolum.
my 2 cents.