bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 24. Jun 2025 10:19

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 20 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Wed 25. Jun 2008 17:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Posts: 1505
Location: Seltjarnarnes
Auðvitað byrjar Atlantsolía á fjölmennustu svæðunum, segir sig sjálft.

Eftir því sem ég hef kynnst þarf alltaf að halda um "byssuna" á sjálfsafgreislustöðvum, þetta er gert svo heimskt fólk kvarti ekki yfir að það hafi dælst miklu meira en þeir ætluðu því byssan festist inni.

Hver veit hvað verðið væri ef Atlantsolía væri ekki á markaðnum, auðvitað passa hin olíufélögin að vera ekki dýrari en þeir, þá myndu þeir ekki fá nein viðskipti. Kannski er Atlantsolía einmitt ástæðan fyrir því að olíufélögin hafa ekki velt allri hækkun á innkaupsverði útí verðið.

Ég allavega reyni að taka olíu hjá þeim þegar ég get, vil frekar styðja þá en hin félögin sem hafa arðrænt mann í gegnum árin með verðsamráði.

_________________
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 25. Jun 2008 17:19 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40
Posts: 3976
Kull wrote:
Auðvitað byrjar Atlantsolía á fjölmennustu svæðunum, segir sig sjálft.

Eftir því sem ég hef kynnst þarf alltaf að halda um "byssuna" á sjálfsafgreislustöðvum, þetta er gert svo heimskt fólk kvarti ekki yfir að það hafi dælst miklu meira en þeir ætluðu því byssan festist inni.

Hver veit hvað verðið væri ef Atlantsolía væri ekki á markaðnum, auðvitað passa hin olíufélögin að vera ekki dýrari en þeir, þá myndu þeir ekki fá nein viðskipti. Kannski er Atlantsolía einmitt ástæðan fyrir því að olíufélögin hafa ekki velt allri hækkun á innkaupsverði útí verðið.

Ég allavega reyni að taka olíu hjá þeim þegar ég get, vil frekar styðja þá en hin félögin sem hafa arðrænt mann í gegnum árin með verðsamráði.


Þetta er gert til þess að ekki sé hægt að festa inni pinnan, skella honum í slíðrið og svo frussast allt út um allt þegar að dælan kikkar loks inn


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 25. Jun 2008 17:45 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Posts: 1117
Location: Hafnarfjörður
///M wrote:
Klárlega besta lausnin að hætta að selja bensín utan höfuðborgasvæðisins


Mikill misskilningur, besti díllinn fyrir olíufélögin er að selja mikið af bensíni úti á landi. Hið sérstaka apparat Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara sér til þess.

Ég skrifaði lærða grein um þetta á árdögum internetsins, hún er því miður dottin út af netinu, en ég sé að rannsóknarblaðamaðurinn Stebbi Fr. hefur kvótað í greinina :lol:

"Flutningsjöfnun olíu hefur verið við lýði síðan um miðja síðustu öld og var henni komið á í skugga Marshall-aðstoðarinnar, þegar aðstæður voru með þeim hætti að nauðsynlegt þótti að niðurgreiða olíu til hinna dreifðu byggða og stuðla þannig að uppbyggingu atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni. Í dag spyr maður sig þeirrar spurningar hvort sjóður þessi sé raunverulega nauðsynlegur og svarið er klárlega nei. Aðstæður í dag eru allt aðrar en þær voru árið 1950. Er það eðlilegt að bensínverð með niðurgreiðslu úr ríkissjóði sé það sama í Reykjavík og á Hveravöllum? Augljóslega ekki; þeir sem hafa einhverja þörf fyrir að ferðast um fjöll og firnindi geta greitt fyrir þá vöru sem þeir nota, það sem hún raunverulega kostar. Engum myndi til dæmis láta sér detta það í hug að krefja kaupmanninn í Hrauneyjum á Sprengisandi um að hann seldi sér mjólkurpottinn á sama verði og hann kostar í Bónus Holtagörðum."

_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 25. Jun 2008 17:53 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Spiderman wrote:
///M wrote:
Klárlega besta lausnin að hætta að selja bensín utan höfuðborgasvæðisins


Mikill misskilningur, besti díllinn fyrir olíufélögin er að selja mikið af bensíni úti á landi. Hið sérstaka apparat Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara sér til þess.

Ég skrifaði lærða grein um þetta á árdögum internetsins, hún er því miður dottin út af netinu, en ég sé að rannsóknarblaðamaðurinn Stebbi Fr. hefur kvótað í greinina :lol:

"Flutningsjöfnun olíu hefur verið við lýði síðan um miðja síðustu öld og var henni komið á í skugga Marshall-aðstoðarinnar, þegar aðstæður voru með þeim hætti að nauðsynlegt þótti að niðurgreiða olíu til hinna dreifðu byggða og stuðla þannig að uppbyggingu atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni. Í dag spyr maður sig þeirrar spurningar hvort sjóður þessi sé raunverulega nauðsynlegur og svarið er klárlega nei. Aðstæður í dag eru allt aðrar en þær voru árið 1950. Er það eðlilegt að bensínverð með niðurgreiðslu úr ríkissjóði sé það sama í Reykjavík og á Hveravöllum? Augljóslega ekki; þeir sem hafa einhverja þörf fyrir að ferðast um fjöll og firnindi geta greitt fyrir þá vöru sem þeir nota, það sem hún raunverulega kostar. Engum myndi til dæmis láta sér detta það í hug að krefja kaupmanninn í Hrauneyjum á Sprengisandi um að hann seldi sér mjólkurpottinn á sama verði og hann kostar í Bónus Holtagörðum."


Og þessi sjóður er náttúrulega til þess að jafna eldsneytisverð þannig að það er hálf asnalegt að vera að tala um samráð á þessu sviði á meðan ein höndin krefst samkeppni en hin krefst verðjöfnunar.

Eitt annað sem menn ættu að hafa í huga er að stóru olíufélögin keyptu alltaf sama eldsneyti á heimsmarkaði og náðu þannig fram stærðarhagkvæmni. Ég veit ekki hvort þetta er svona í dag en mér þykir það líklegt að það sé enn að miklu leiti svona. Þetta þýðir auðvitað að það er erfitt fyrir Atlantsolíu að selja ódýrar en stóru félögin gera í gegnum sín afsláttarfélög. Það er aðeins hægt að ná verðinu niður með minni þjónustu, yfirbyggingu og oft hefur stöðum úti á landi verið lokað þar sem gamla Esso fær líklega enn mest úr flutningsjöfnunarsjóð.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 25. Jun 2008 18:30 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Posts: 1117
Location: Hafnarfjörður
bebecar wrote:
Og þessi sjóður er náttúrulega til þess að jafna eldsneytisverð þannig að það er hálf asnalegt að vera að tala um samráð á þessu sviði á meðan ein höndin krefst samkeppni en hin krefst verðjöfnunar.


Góður punktur Ingvar, lög um sjóðinn krefjast þess að félögin skiptist á sölutölum. Þessi rök voru einmitt notuð sem varnir í olíumálinu.

_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 20 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 48 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group