///M wrote:
Klárlega besta lausnin að hætta að selja bensín utan höfuðborgasvæðisins
Mikill misskilningur, besti díllinn fyrir olíufélögin er að selja mikið af bensíni úti á landi. Hið sérstaka apparat Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara sér til þess.
Ég skrifaði lærða grein um þetta á árdögum internetsins, hún er því miður dottin út af netinu, en ég sé að rannsóknarblaðamaðurinn Stebbi Fr. hefur kvótað í greinina
"Flutningsjöfnun olíu hefur verið við lýði síðan um miðja síðustu öld og var henni komið á í skugga Marshall-aðstoðarinnar, þegar aðstæður voru með þeim hætti að nauðsynlegt þótti að niðurgreiða olíu til hinna dreifðu byggða og stuðla þannig að uppbyggingu atvinnufyrirtækja á landsbyggðinni. Í dag spyr maður sig þeirrar spurningar hvort sjóður þessi sé raunverulega nauðsynlegur og svarið er klárlega nei. Aðstæður í dag eru allt aðrar en þær voru árið 1950. Er það eðlilegt að bensínverð með niðurgreiðslu úr ríkissjóði sé það sama í Reykjavík og á Hveravöllum? Augljóslega ekki; þeir sem hafa einhverja þörf fyrir að ferðast um fjöll og firnindi geta greitt fyrir þá vöru sem þeir nota, það sem hún raunverulega kostar. Engum myndi til dæmis láta sér detta það í hug að krefja kaupmanninn í Hrauneyjum á Sprengisandi um að hann seldi sér mjólkurpottinn á sama verði og hann kostar í Bónus Holtagörðum."
_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991
Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual