íbbi_ wrote:
er það bara ég.. eða er samt ekki bara vitleysa að vera að þessu.. þetta er verðandi safngripur, ég hefði ekki breytt neinu frá því sem hann var þegar þú fékst hann, og myndi passa km stöðuna, sona fyrst að þessi bíll varðveittist sona til að byrja með
Veit alveg að eftir 2-5 ár þá muni verða hægt að telja á annari hendi þá e34 sem væru í sýningar hæfu ástandi og eigulegir.
En langar að gera ákveðan hluti við hann til að bæta útlit hans og búnað
s.s :
Lækkan að framan,
Fá glær stefnuljós allan hringin,
leðurklæða sætin jafnvel rafmagns ef ekki of mikið vesen,
Obc, Cruise control,
Fínar græjur sem surga ekki endalaust þegar manni að langar að hlusta á góð lög,
Gera felgunar perfect,
Samlita kannsi neðasu listana og stuðarana, er ekki búnnað akveða mig með það, og fleirra svona smá dót
Bíllin er frekar hrár að innan og boddíið situr MJÖG asnalega eins og
hann er núna, Mikið verra en ég læt sjást á myndum.
Brenndi mig allsvakalega á aftermarket þegar ég keypti angel eyesin,
eftir mánuð voru þau ryðguð í druslur og helmingurinn af perunum í
hringjunum sprungnar og ég fékk þetta NÝTT. Eftir það er það bara oem
eða eitthvað sem er í því gæðastigi
Því er ég svo hræddur með þessa lækkun því ég
vill ALLS EKKI stífan upp. finnst hann æðislega þægilegur og alveg
nægilega gaman að henda honum í beyjur fyrir mig allaveganna.
Ég passað mig mikið að halda lakkinu og bílum sem fínustum, ófáir haldið
að ég væri geðveikur
Soldið skondið að það tók nánast eingin eftir þessum bíl hér í eyjum fyrr
en ég keypti fegunar á hann. Eftir það hef ég séð þó nokkra snúa sig úr
hálslið kaeyrandi framhjá vð að sjá hann stífbónaðan fyrir utan vinnu á sólríkum degi.
Svo er planið að reyna að finna góðan skúr til að hafan í vetur og notan bara á góðum dögum
Mér er skítsama þótt ég sé að eyða eitthverjum hundruðum þúsundum
í viðhald og aukadót í hann. Væri sáttur ef ég fengi hann til að endast í önnur 8 - 10 ár í góðu standi sem mér finnst alveg raunhæft.
Þetta eru allavegnna mín plön með framtíð þessa bifreiðar
