bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 24. Jun 2025 16:17

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 109 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 12:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
Fólk er farið að hringja frekar í fjölmiðla en lögregluna :lol:

Af hverju var ekki hægt að gefa honum nokkrar kindur, þær eru orðnar svo dýrar í rekstri.
Svo sækja hann saddan og sælan um eða eftir helgi og fá hann til að koma inn í búr :lol:

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 16:20 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 09. Oct 2007 20:23
Posts: 559
Location: Halfpriceland
maxel wrote:
Held að menn þurfi að koma réttu myndinni inní höfuðið á sér...

Sumir hugsa um hana svona

Image











En ...get real

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 16:36 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Fri 23. Nov 2007 13:40
Posts: 716
Það má segja að maður hafi verið heppinn!!!
Ég og 5 félagar minir vorum við veiðar þarna upp á heiði laugardag og sunnudag .
Eftir að hafa labbað í 2 tima aðra leið og veitt í 6 tíma var labbað til baka .
A.T.H það voru fleiri þarna upp á heiðinni en við.
Eg hafði ekki lagt í það að hitta ísbjörn á leiðinni niður eftir svona labb !!
Isbjörninn var skotinn um 2 km. frá þeim stað þar sem við lögðum bílnum.
Þannig að þið sem haldið að eingin hætta hafi verið fyrir hendi hafið bara rangt fyrir ykkur.
fjöldi veiðimanna var þarna..
Eitt fyndið .....vötnin sem við veiddum í heita Bjarnavötn !!!!!!!!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 16:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
Af hverju var ekki hægt að gasa bangsa og öskra: "af veginum gasgas!"

Annars hefði það nú ekki verið slæmt í heimsfréttirnar ef íslenskir vísindamenn hefðu farið sér leiðangur í þyrlu eða á ísbrjóti og komið birninum aftur í sín réttu heimkynni.
Þá væru hvalveiðarnar gleymdar kannski í nokkra daga :lol:

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 17:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Viljið þið ekki bara hafa kertafleytingu eins og var fyrir lúkas??? Það er ekkert verið að skjóta dýrið upp á sport. Og þeir sem segja að það hefði verið hægt að svæfa hann, geta þeir þá komið með lausn á því hvað hefði átt að gera þegar hann vaknaði? Ef þú ætlar t.d. að halda hesti sofandi nógu lengi til að flytja hann einhverjar vegalengdir þá þarf að setja hann í öndunarvél. Og svo er verið að væla yfir því að hann hafi bara legið þarna í hlíðinni og ekki ógnað neinum, það breytist á mjög stuttum tíma, sérstaklega þegar fólk er í kring.

p.s. dýr éta, menn borða. Reynið að fara að skrifa almenninlega :wink:

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 18:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Posts: 3209
Location: inn í bílnum þínum.
Ef dýrið hafi verið svæft og sett í búr og átt að flitja Það aftur til grænlands og Dönsk stjórnvöld höfðu neitað að taka við dýrinu.....HVAÐ ÞÁ?
eins og kom fram í fréttum áðan þá væri það mjög líklekt að þeir vildu ekki taka við því.

_________________
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 20:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Jan 2005 10:50
Posts: 1908
Location: Akureyri
Veiða hann og setja í húsdýragarðinn maður!!

þyrfti reyndar að skíra staðinn eitthvað annað en HÚSDÝRAgarð :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 20:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
mattiorn wrote:
Veiða hann og setja í húsdýragarðinn maður!!

þyrfti reyndar að skíra staðinn eitthvað annað en HÚSDÝRAgarð :lol:


skella honum í laugina fyrir selina og fóðra hann á nokkrum kópum á hverjum degi ... maður myndi amk gera sér ferð þangað til að horfa á eitthvað áhugavert :D


:lol:

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 21:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
mattiorn wrote:
Veiða hann og setja í húsdýragarðinn maður!!


Þá er nú betra fyrir greyið að vera dauður. Öruglega nokkrir hérna sem muna eftir ísbjörnunum í sædýrasafninu og hvað þeim virtist líða illa.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 21:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Jan 2005 10:50
Posts: 1908
Location: Akureyri
Bjarkih wrote:
mattiorn wrote:
Veiða hann og setja í húsdýragarðinn maður!!


Þá er nú betra fyrir greyið að vera dauður. Öruglega nokkrir hérna sem muna eftir ísbjörnunum í sædýrasafninu og hvað þeim virtist líða illa.


læra þá bara af mistökunum og gera þetta almennilega næst;)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 05. Jun 2008 09:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Áhugaverð comment frá sérfræðingunum á mbl.is

Quote:
Ekki raunhæft að svæfa hvítabjörninn

Ísbjörninn fallinn Margt hefði þurft að koma til sem nú er ekki til að dreifa, að mati forstöðumanns Náttúrustofu Norðurlands vestra, svo telja mætti raunhæft að svæfa hvítabjörninn í Skagafirði. „Ég hef eiginlega verið í símanum frá því að björninn var felldur, að tala við fólk sem er heitt í hamsi vegna atburðanna," segir Þorsteinn Sæmundsson, forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra. „En ég tel að ákvörðunin hafi verið hárrétt miðað við þær aðstæður sem við var að etja."

Hann segir nauðsynlegt að hafa margt tiltækt svo raunhæft sé að svæfa ísbjörn. „Í fyrsta lagi yrði að vera deyfilyf og byssa á svæðinu þannig að ekki tæki nema örfáar klukkustundir eða skemur að komast yfir það," segir hann. „Í öðru lagi yrði að vera til búr til að geyma hann í, í þriðja lagi yrði að liggja fyrir hvernig ætti að flytja hann og hvert og þá yrðu menn að vera tilbúnir að leggja út í þann kostnað sem því fylgir, til dæmis ef á að flytja hann til heimkynna sinna. Og svo þyrfti náttúrlega mannskap sem kann með allt þetta að fara."

Ólafur Ingólfsson, prófessor við Háskóla Íslands, sem bjó um áraskeið á Svalbarða og hefur farið þangað í rannsóknarleiðangra, tekur undir með Þorsteini. „Ef ég mætti hvítabirni í Skagafirði þá myndi ég skjóta hann á staðnum," segir hann. „Hann er svo sem ekki sérlega árásargjarn í eðli sínu en ef hann ókyrrist og leggur til atlögu við fólk þá endar það annað hvort með því að maður lætur lífið eða björninn, eðli hans er þannig að það er enginn millivegur."

„Ég ætla ekki að rengja þá Þorstein og Ólaf, ég var heldur ekki á svæðinu og á því erfitt með að leggja mat á þetta," segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. „Hins vegar er alveg ljóst af viðbrögðum almennings að mikill meirihluti fólks vill að við verndum náttúruna og ef það var ekki gerlegt í Skagafirði þá tel ég alla vega mikilvægt að þannig verði búið um hnútana að við getum brugðist þannig við í framtíðinni að sómi verði af fyrir land og þjóð."

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 05. Jun 2008 16:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ég er ekki hlynntur hugsunarlausu drápi á dýrum.. en ég skil bara ekki hvernig menn geta reynt að halda því fram að það hafi verið bull að skjóta hann, menn höfðu engan tíma til að hugsa, dýrið er jú væntanlega ansi svangt eftir að hafa ferðast hingað á fyrsta farrými,

það kom einn sona björn fyrir vestan meðan ég bjó þar, hann var felldur á ísjakanum rétt ókominn í land, þetta er enginn voffi.. og ekkert grín að halda sjónar á honum í þoku uppi á fjöllum og fyrnindum, það þyrfti eflaust vel hraust fjórhjól til að hanga í honum

menn eru alltaf jafn rosalegir bakvið tölvuskjáina að hrauna yfir skytturnar og flr, af hverju meiga þeir ekki stilla sér upp? þeir vru jú að fella ísbjörn, í skagafirði í þokkabót, ekki eitthvað sem skeður á hverjum degi,

mér finnst hugmyndir um aðsmíða búr og flytja hann m/þyrlu aftur til grænlands e-h útí hött, eins og skattpeningum sé ekki nógu illa varið nú þegar, þetta er bara ekki raunhæft. jújú látum bara björninn vappa um sveitirnar í 3 tíma, veiðum hann svo.. ekkert mál og skutlum honum heim.

btw þessi hérna
Image

ég sá þennan fyrir stuttu, og hann er bara MJÖG stór og scary í dag

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 06. Jun 2008 00:11 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 24. Aug 2003 20:11
Posts: 1121
Location: Rvk
Sammála að það "varð" að fella dýrið... Mér þykir það leiðinlegt og þetta eru mjög flott dýr...

En common... Við erum að tala um Ísbjörn nokkra metra frá fólki... Held að fólk sé ennþá að horfa á kærleiksbirnina. Og haldi að það sé rétt mynd af bjarndýrum hehe

Og svo með veiðimennina... Auðvita voru þeir ánægðir... Þeir búa jú útí sveit og hafa unun margi á veiðum... hvað þá að veiða ísbjörn... Hefðu þið verið sáttari ef jón litli í bokkunum (18ára) hefði fengið byssu í hendurnar og reynt að drepa björnin? Eða eitthver sem hefði fundist það ofboðslega leiðinlegt að drepa hann hefði gert það?

_________________
Núið:
BMW 730d '04


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 06. Jun 2008 04:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
BMWaff wrote:
Sammála að það "varð" að fella dýrið... Mér þykir það leiðinlegt og þetta eru mjög flott dýr...


það er i.m.o akkurat málið, ég hrífst mjög af ísbjörnum, en þetta var bara eina skynsamlega lausnin á þessu akkurat þarna við þessar aðstæður,

það er svo annað mál að núna ættum við að vera betur undirbúinn undir það að þetta skeðí aftur, þetta var hvorki í fyrsta né síðasta skipti sem þetta skeður,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 08. Jun 2008 13:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
íbbi_ wrote:
BMWaff wrote:
Sammála að það "varð" að fella dýrið... Mér þykir það leiðinlegt og þetta eru mjög flott dýr...


það er i.m.o akkurat málið, ég hrífst mjög af ísbjörnum, en þetta var bara eina skynsamlega lausnin á þessu akkurat þarna við þessar aðstæður,

það er svo annað mál að núna ættum við að vera betur undirbúinn undir það að þetta skeðí aftur, þetta var hvorki í fyrsta né síðasta skipti sem þetta skeður,

Þetta hefur bara ekki verið vandamál hingað til. Undanfarin ár, sérstaklega eftir moggabloggið er allt blásið svo svaaaaaðalega upp í fjölmiðlum. Fyrir 10 árum hefði öllum verið skítsama. En í síðustu ár virðist alltaf vera hægt að gera stórmál út smámálum sem skipta engu máli.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 109 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 26 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group