ég er ekki hlynntur hugsunarlausu drápi á dýrum.. en ég skil bara ekki hvernig menn geta reynt að halda því fram að það hafi verið bull að skjóta hann, menn höfðu engan tíma til að hugsa, dýrið er jú væntanlega ansi svangt eftir að hafa ferðast hingað á fyrsta farrými,
það kom einn sona björn fyrir vestan meðan ég bjó þar, hann var felldur á ísjakanum rétt ókominn í land, þetta er enginn voffi.. og ekkert grín að halda sjónar á honum í þoku uppi á fjöllum og fyrnindum, það þyrfti eflaust vel hraust fjórhjól til að hanga í honum
menn eru alltaf jafn rosalegir bakvið tölvuskjáina að hrauna yfir skytturnar og flr, af hverju meiga þeir ekki stilla sér upp? þeir vru jú að fella ísbjörn, í skagafirði í þokkabót, ekki eitthvað sem skeður á hverjum degi,
mér finnst hugmyndir um aðsmíða búr og flytja hann m/þyrlu aftur til grænlands e-h útí hött, eins og skattpeningum sé ekki nógu illa varið nú þegar, þetta er bara ekki raunhæft. jújú látum bara björninn vappa um sveitirnar í 3 tíma, veiðum hann svo.. ekkert mál og skutlum honum heim.
btw þessi hérna
ég sá þennan fyrir stuttu, og hann er bara MJÖG stór og scary í dag