Eggert wrote:
1. Það var dýralæknir á staðnum með deyfilyf sem hefði verið hægt að setja í kjöt, og alvöru deyfibyssa í nokkurra klukkustunda fjarlægð, eða á Egilsstöðum.
2. Ég gat ekki séð neina þoku á þeim vídjóum frá staðnum þar sem hann var skotinn. Og Lögreglan átti að loka vegum til þess að sjá til þess að fólk myndi ekki flykkjast að staðnum.
3. Þetta gerðist fyrir hádegi, sem þýðir að það er langt í myrkur og þar af leiðandi gefst meiri tími til að vinna úr úrræðum. Hringja í dýragarða erlendis, tala við dýralækna, etc. etc...
4. Þessar 5 skyttur hefðu alveg getað verið á standby í þónokkri fjarlægð meðan haft er samband við dýragarða eða whatever til að afla upplýsinga. En að drepa hann strax er bara vitleysa, hann var ekki það nálægt mannabyggðum að það hafi verið nauðsynlegt.
5. Okei, það myndi kosta pening og vinnu að vera að standa í þessu, en þetta er dýr í útrýmingarhættu og okkur ber eginlega skylda til þess að ALLAVEGA REYNA að komast hjá því að þurfa að drepa björninn. Landkynningin sem Ísland fengi fyrir að koma birninum aftur heim, myndi margborga sig fyrir þessar 2 kúlur sem þetta myndi kosta, eða hvað það var. Hver veit nema að einhver dýragarður útí heimi hefði viljað borga undir hann farið til að fá hann. OG þetta myndi hjálpa Íslandi í huga heimsins hvað varðar veiðar á "friðuðum dýrum", eins og hvölum, en þó er ég alveg sinntur veiðum á hvölum sem eru ekki í útrýmingarhættu. En í stað þess þá drepum við hvali og núna Ísbjörn.
6. Peningum skattborgara þessa lands er þvílíkt sóað þvers og kruss, að það myndi ekki nokkur maður finna fyrir þessu. Það mætti t.d. spara með því að kaupa BMW 730i undir forsætisráðherra í stað 735, og þar með væri ríkiskassinn kvitt.
7. Það að Ísbjörnum sé slátrað í gríð og erg í Noregi eða á Svalbarða afsakar þetta akkúrat ekkert.
8. Ég neita bara að trúa því að eina úrræðið sem hafi verið til taks í dag hafi verið að drepa dýrið, og það fyrir hádegi.
1. Það er alveg hægt að setja deyfilyf í kjöt, en hver ætlar að fara og gefa honum að borða? Við erum að tala um dýr sem getur hlaupið á 60km hraða. Á bara að láta það á jörðina og vona að hann borði það en fari ekki annað?
2. Það
var þoka upp í fjallinu sem hann var í hlíðunum í. Það var engin þoka niðri þar sem hann var. Það var óttast að hann færi upp fjallið og kæmi svo einhverstaðar niður.
3. Það tekur hann örskot að fara upp fjallið og þá er hann týndur í þokunni.
4. Að standa í þónokkri fjarlægð minnkar mjög líkurnar á að hitta og einnig geta skyttur ekki hlaupið á eftir með 60km hraða.
5. Þetta er bara matsatriði. En öll lönd hafa ekki sett Ísbirni í flokk með dýrum í útrýmingarhættu. Talið að um 25.000 dýr séu til í heiminum.
6. Á að sóa meira bara af því að það er sóað svo miklu hvort eð er? Hvernig væri frekar að fara að minnka frekar sóunina svo ég og þú þurfum ekki að borga eins háa skatta.
7. Það er enginn að tala um að Ísbjörnum sé slátrað í gríð og erg á Noregi og á Svalbarða, Grænlandi eða hvar sem er. Það er bara verið að segja að þeir sem hafa vit á þessu, vanir að eiga við þessi dýr gera þetta svona. Af hverju þurfum við að finna upp hjólið aftur?
8. Þetta var ekki eina úrræðið í dag. En hefðir þú verið tilbúinn að taka sénsinn og missa þetta dýr upp í fjall, hafa það ráfandi þar um kannski í nokkra daga hungrað. Svo bankar það upp á þegar e-r bóndi fer út í fjós, stekkur á hann og í besta falli rífur það af honum hönd eða svo. Líklega myndi hann drepa hann. Værir þú þá til í að hafa tekið sénsinn til að reyna að drepa ekki einn Ísbjörn?
Gott hjá þér samt að koma með rök