bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 24. Jun 2025 16:54

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 109 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 22:16 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 31. May 2005 19:39
Posts: 424
Location: Oslo
Eggert wrote:
2. Ég gat ekki séð neina þoku á þeim vídjóum frá staðnum þar sem hann var skotinn. Og Lögreglan átti að loka vegum til þess að sjá til þess að fólk myndi ekki flykkjast að staðnum.


Loka vegum til þess að fólk myndi ekki flykkjast af staðnum.... helvíti erfitt þar sem flestir voru víst komnir á undan lögreglunni þar sem fjölmiðlum var tilkynnt þetta á undan lögreglu.

Annars veit ég ekkert um það.

_________________
Neðanjarðarlestir, sporvagnar og strætisvagnar
BMW E36 '91 318i - Bifreið - R.I.P
Dethleffs Rondo RF3 '98 - Hjólhýsi - Í vetrardvala
CombiCamp 2000 '78 - Tjaldvagn - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 22:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Posts: 3836
Location: Vík í Mýrdal
Þetta hefði nú alveg verið skiljanlegt hefði þetta verið fullvaxinn björn, eru um helmingi stærri/þyngri en geta þó farið allt upp í 800kg

Ef þessi var bara 250kg þá er þetta bara smá tittur miðað við hvað þetta hefði getað verið....


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 22:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Posts: 3836
Location: Vík í Mýrdal
En miðað við þetta þá hefur þetta verið bara góð lausn hjá þeim...

Quote:
Í dýragörðum eru ísbirnir taldir mjög hættulegir og óábyggilegir. Það er aldrei hægt að vita hverju þeir taka upp á. Þeir bindast aldrei vináttuböndum við starfsmenn eins og mörg önnur dýr gera. Þeir rjúka oft upp í ofsa ef þeir eru truflaðir og eru taldir hættulegustu rándýrin í görðunum. Gagnstætt skógarbjörnum er erfitt að ala ísbirni upp í dýragörðum. Það kemur fyrir að móðir afneitar húnum sínum og ræðst á þá, drepur og étur.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 22:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Það er betra IMHO að skjóta villt dýr heldur en að loka það inni ævilangt í dýragarði.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 22:38 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Eggert wrote:

1. Það var dýralæknir á staðnum með deyfilyf sem hefði verið hægt að setja í kjöt, og alvöru deyfibyssa í nokkurra klukkustunda fjarlægð, eða á Egilsstöðum.

2. Ég gat ekki séð neina þoku á þeim vídjóum frá staðnum þar sem hann var skotinn. Og Lögreglan átti að loka vegum til þess að sjá til þess að fólk myndi ekki flykkjast að staðnum.

3. Þetta gerðist fyrir hádegi, sem þýðir að það er langt í myrkur og þar af leiðandi gefst meiri tími til að vinna úr úrræðum. Hringja í dýragarða erlendis, tala við dýralækna, etc. etc...

4. Þessar 5 skyttur hefðu alveg getað verið á standby í þónokkri fjarlægð meðan haft er samband við dýragarða eða whatever til að afla upplýsinga. En að drepa hann strax er bara vitleysa, hann var ekki það nálægt mannabyggðum að það hafi verið nauðsynlegt.

5. Okei, það myndi kosta pening og vinnu að vera að standa í þessu, en þetta er dýr í útrýmingarhættu og okkur ber eginlega skylda til þess að ALLAVEGA REYNA að komast hjá því að þurfa að drepa björninn. Landkynningin sem Ísland fengi fyrir að koma birninum aftur heim, myndi margborga sig fyrir þessar 2 kúlur sem þetta myndi kosta, eða hvað það var. Hver veit nema að einhver dýragarður útí heimi hefði viljað borga undir hann farið til að fá hann. OG þetta myndi hjálpa Íslandi í huga heimsins hvað varðar veiðar á "friðuðum dýrum", eins og hvölum, en þó er ég alveg sinntur veiðum á hvölum sem eru ekki í útrýmingarhættu. En í stað þess þá drepum við hvali og núna Ísbjörn.

6. Peningum skattborgara þessa lands er þvílíkt sóað þvers og kruss, að það myndi ekki nokkur maður finna fyrir þessu. Það mætti t.d. spara með því að kaupa BMW 730i undir forsætisráðherra í stað 735, og þar með væri ríkiskassinn kvitt.

7. Það að Ísbjörnum sé slátrað í gríð og erg í Noregi eða á Svalbarða afsakar þetta akkúrat ekkert.

8. Ég neita bara að trúa því að eina úrræðið sem hafi verið til taks í dag hafi verið að drepa dýrið, og það fyrir hádegi.


1. Það er alveg hægt að setja deyfilyf í kjöt, en hver ætlar að fara og gefa honum að borða? Við erum að tala um dýr sem getur hlaupið á 60km hraða. Á bara að láta það á jörðina og vona að hann borði það en fari ekki annað?

2. Það var þoka upp í fjallinu sem hann var í hlíðunum í. Það var engin þoka niðri þar sem hann var. Það var óttast að hann færi upp fjallið og kæmi svo einhverstaðar niður.

3. Það tekur hann örskot að fara upp fjallið og þá er hann týndur í þokunni.

4. Að standa í þónokkri fjarlægð minnkar mjög líkurnar á að hitta og einnig geta skyttur ekki hlaupið á eftir með 60km hraða.

5. Þetta er bara matsatriði. En öll lönd hafa ekki sett Ísbirni í flokk með dýrum í útrýmingarhættu. Talið að um 25.000 dýr séu til í heiminum.

6. Á að sóa meira bara af því að það er sóað svo miklu hvort eð er? Hvernig væri frekar að fara að minnka frekar sóunina svo ég og þú þurfum ekki að borga eins háa skatta.

7. Það er enginn að tala um að Ísbjörnum sé slátrað í gríð og erg á Noregi og á Svalbarða, Grænlandi eða hvar sem er. Það er bara verið að segja að þeir sem hafa vit á þessu, vanir að eiga við þessi dýr gera þetta svona. Af hverju þurfum við að finna upp hjólið aftur?

8. Þetta var ekki eina úrræðið í dag. En hefðir þú verið tilbúinn að taka sénsinn og missa þetta dýr upp í fjall, hafa það ráfandi þar um kannski í nokkra daga hungrað. Svo bankar það upp á þegar e-r bóndi fer út í fjós, stekkur á hann og í besta falli rífur það af honum hönd eða svo. Líklega myndi hann drepa hann. Værir þú þá til í að hafa tekið sénsinn til að reyna að drepa ekki einn Ísbjörn?

Gott hjá þér samt að koma með rök

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 23:19 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sat 23. Feb 2008 22:45
Posts: 81
Langar að benda ykkur á að hlusta á Síðdegisútvarp Rásar 2 í dag þegar fjallað var um björninn, þar hringdu bændur og fleiri sem vita margt og meira um skepnur og staðhætti f. norðan en þið snillingarnir og aðrir sérfræðingar að sunnan.
http://www.ruv.is/sdu/ (þátturinn byrjar á ísbjarnarumræðunni)
Mjög margt upplýsandi kom þar fram, t.d. að svæðið væri erfitt yfirferðar og stutt í næsta byggðakjarna auk nokkurra sveitabæja. Ef menn hefðu misst sjónar af dýrinu hefði það ekki verið auðvelt að finna það. Vegna þoku yfir svæðinu í dag hefði ekki verið hægt að nota þyrlu eða flugvél til leitar en það er í raun eini öruggi kosturinn.
Líklegt er að föngun og flutningur á villtu dýri gæti sturlað dýrið og valdið því andlegum skaða þannig að betra væri að lóga dýrinu eins og gert er í sveitinni.

Hvað átti að gera? rölta á eftir dýrinu, hringja inná Sauðárkrók biðja menn að sjóða saman eitt búr í snarasti?? þú lokkar ekki svona skepnu inní búr sísvona! þó svo að dýrið hefði verið svæft þá þyrfti gríðarlegt magn af svæfingarlyfjum til að halda þvi sofandi. Amk hefðu liðið 3 klst eftir deyfibyssunni frá Egilsstöðum.

Annað;
Stærsta dýr sem hefur verið svæft og vigtað var 1000kgs
Stærsta dýr sem hefur verið fellt var rúm 700kgs
Meðalstórt dýr er 2,5-3,5 m á lengd. Kvk c.a. 300kgs og KK 5-600kgs
Getur orðið 5,5 metrar.
Eins og sést á myndunum er dýrið horað og þá er það stórhættulegt (annað en einhver hélt hérna fram ofar), dýrið er í stöðugri fæðuleit.
Ástæða þess að fleiri en einn vopnaður maður var á svæðinu er líklega vegna þess að ef dýrið myndi taka á rás í átt að þér er erfitt að hitta það fyrir utan það að úr 100m fjarlægð eins og dýrið var í dag tekur það einungis 6-8 sec að koma komast að skotmanninum (hvað tekur langan tíma að hlaða aftur? 2-3 sec??. Fyrir utan það að 2-4 skot sem ekki hitta dýrið beint í hjartastað eða heilann duga ekki til þess að fella það í árásarhug.

Það hefði aðrar raddir heyrst ef fréttin hefði verið á þann veg að lögregla hafi misst sjónar á dýrinu og nú væri þess leitað í þokunni. Nett panic ástand hefði orðið á Króknum og sveitabæjum í kring.

Hlustið bara á þáttinn, þar talaði fólk sem veit meira en þið fyrir utan Frey þáttastjórnanda sem hagar sér eins og mongóliti í umræðunni.

Síðan er spurning fyrst að ísröndin er svo nærri landi er þá ekki ráð að redda deyfilyfjum ef sá næsti kemur í heimsókn??


Last edited by JIS on Tue 03. Jun 2008 23:50, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 23:20 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Posts: 860
Location: Reykjavík
Hjartanlega sammála Sæma!!!
Málið er líka það að lögreglan BER ábyrgð á öryggi borgarana á svona stundum og hún er EKKI að fara taka einhverja óþarfa áhættu.
Ansi dýrkeypt ef e-ð fer úrskeiðis vegna þess að löggan tók sénsinn.

Mér fannst það athyglisvert að dýralæknir á Blönduósi talaði um að það væri lítið mál að smíða ísbjarnargildru á staðnum. Óheppilegt að enginn skyldi vera með ísbjarnargildrusmíðasettið sitt á sér þarna.

_________________
Siggi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 23:25 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Posts: 860
Location: Reykjavík
Virkilega gott innlegg JIS!!!! :clap:

Það er ansi auðvelt að sitja í stofusófanum sínum með heitt cappuccino og gagnrýna allt og alla út frá því sem maður sér í sjónvarpinu og les af bloggsíðum manna sem eru misvitrir.

_________________
Siggi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 23:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Það virðist vera voðalega í tísku að tala niður til þeirra sem hafa þá skoðun að það hafi ekki verið rétt að þessu staðið. Ég veit vel að ég hef það fínt í mínu sæti og get gagnrýnt allt og alla útí loftið með mínum heimska haus, en ég legg það nú yfirleitt ekki í vana og þá allra síst um störf Lögreglunnar.

Og ég veit það vel að það að deyfa björninn með deyfingarlyfi í kjöti vær ekki beint eins og að gefa öndunum brauð, og ég gaf aldrei í skyn að ég væri með það á hreinu að þetta yrði eitthvað auðvelt verk. En mér finnst bara á öllu eins og að það hefði ekki verið reynt að bjarga honum...

Verum bara sammála um að vera ósammála. :wink:

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 00:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Eggert wrote:
Það virðist vera voðalega í tísku að tala niður til þeirra sem hafa þá skoðun að það hafi ekki verið rétt að þessu staðið. Ég veit vel að ég hef það fínt í mínu sæti og get gagnrýnt allt og alla útí loftið með mínum heimska haus, en ég legg það nú yfirleitt ekki í vana og þá allra síst um störf Lögreglunnar.

Og ég veit það vel að það að deyfa björninn með deyfingarlyfi í kjöti vær ekki beint eins og að gefa öndunum brauð, og ég gaf aldrei í skyn að ég væri með það á hreinu að þetta yrði eitthvað auðvelt verk. En mér finnst bara á öllu eins og að það hefði ekki verið reynt að bjarga honum...

Verum bara sammála um að vera ósammála. :wink:


Vel sagt.

Líka mikið til í því sem JIS segir, ég er ekkert fúll eða reiður útaf þessu, mér finnst þetta bara allt saman mjög leiðinlegt útaf því að þetta er dýr í útrýmingarhættu og ég hef mikinn áhuga á Bjarndýrum.

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 02:21 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sun 03. Feb 2008 22:04
Posts: 217
Location: Árbær
til að byrja með var ég algerlega á því að þetta hafi verið rangt af þeim að drepa dýrið, en ég er orðinn frekar mengaður af hinni umræðunni núna,, ég segi að báðir aðilar hafi eitthvað til síns máls,, kannski hefði verið staðið öðruvísi að þessu ef dýrið hefði verið spikfeitt og rólegt,, og jafnvel engin þoka verið,, samt sem áður frekar skjót viðbrögð

kannski bara verið múgæsingur í 5 nöglum með riffla :D

vill líka bæta við að þessi pósmynd er fáránleg eins viðkvæmt og fólk gat getið sér til að þetta yrði :roll:

_________________
E30 325 '89 M-Tech 2--- VR-718,, í vetrardvala:)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 10:34 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
Það hefði mátt eyða skattpeningum okkar í þetta verkefni - hefði komið strax til baka með góðri umfjöllun erlendis.

En við skulum frekar eyða skattpeningum okkar í að kalla út þyrlu til að leita að bankaræningja sem rændi innan við 100.000 kr. Það er stórhættulegt.

Það væri enginn að "gráta" þetta dýr ef svona dýr væru ekki í útrýmingarhættu.

Það sem kom fyrst upp í huga fólks var "skjótum'etta'bara". Sem er klárlega ekki hugsunin við svona aðstæður. Ef DÝRALÆKNIR segir að það hafi verið rangt farið að þessu, þá er það þannig. Ég stórefast um að Lögreglumenn, eða bændur viti meira um hvítabirni en dýralæknir.

Menn hlupu á sér - ég er sammála því að þetta skuli vera "erfið" ákvörðunartaka, en rétt var hún ekki. Menn eru að "bjarga" stórthættulegum dýrum allann daginn út og inn víðsvegar um heiminn en við - Ísland ó Ísland, við drepum þetta bara... ekki sögunni meir... ekkert annað reynt....

Enda sást á myndunum að björninn var klárlega að stofna öllum í hættu, liggjandi í fjallshlíðinni í makindum sínum að "þefa" út í loftið.

Öll dýr þefa út í loftið til að athuga hverslags þefur eða óþefur er í loftinu.

Eigum við ekki að splæsa á þessa hreiknu veiðimenn Fálkaorðunni, þeir stóðu sig nú svo helvíti vel.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 11:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Posts: 1505
Location: Seltjarnarnes
Ég held nú að flestir séu sammála að eins og aðstæður voru þarna á staðnum var lítið annað að gera en að fella dýrið. Það sem menn eru ósáttir við er að engin áætlun er til um svona tilvik.

_________________
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 12:00 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Posts: 3828
Location: California
Klárlega að plaffa svona niður áður en þetta étur einhvern

_________________
2016 BMW X3 sDrive28i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 04. Jun 2008 12:18 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 01. Mar 2007 18:45
Posts: 5844
Held að menn þurfi að koma réttu myndinni inní höfuðið á sér...

Sumir hugsa um hann svona


Image











En ...get real

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 109 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group