saemi wrote:
basten wrote:
Það er merkilegt hvað margir eru búnir að tjá sig um þetta mál á hinum ýmsu síðum og flestir virðast ekki hafa hugsað málið til enda og talið að dýrið hafi verið skotið bara upp á fjörið.
Fyrir það fyrsta þá er hvítabjörninn eitt það grimmasta rándýr sem lifir villt á jörðinni í dag. Þar sem dýrið var skotið var stutt í þéttbýliskjarna eins og Blönduós, Skagaströnd og Sauðárkrók. Hvað ef lögreglan hefði týnt dýrinu þarna og það horfið inn í þokuna? Þá væri enn verið að leita að dýrinu og fólk alveg brjálað yfir því að það hafi ekki verið skotið á meðan færi gafst. Hugsa að álit fólks á lögreglunni væri ekki uppá marga fiska ef svo dýrið hefði skyndilega birst á einhverjum þessara þéttbýliskjarna eða bara á bóndabæ og ráðist þar á mannfólk og drepið það.
Margir tala um að ekkert mál hafi verið að deyfa dýrið. Fyrir það fyrsta þá var ekki tiltæk deyfibyssa í nágrenninu og ekki víst að það væri tími til þess að hinkra eftir deyfibyssu í 2 klukkutíma þar sem björninn er fljótur yfir ef hann fer af stað, hvað þá ef hann týnist í þokunni. Hvað ætti svo að gera við dýrið þegar búið væri að svæfa það? Hvar er búr fyrir svona skepnu? Hvað ef dýrið vaknar þegar búið er að svæfa það? Hvert á að flytja dýrið? Hvað á svo að gera við það? Það er heldur ekki sama hvert farið er með dýrið og því sleppt.
Í Noregi eru ísbirnir skotnir ef þeir sjást í landi. Á Svalbarða, þar sem ísbirnir eru landlægir, eru þeir hræddir á brott ef þeir koma nálægt byggð. Ef sami björn kemur aftur nálægt byggð eftir að hafa verið rekinn á brott þá er hann drepinn.
Ísbirnir eru virkilega falleg dýr en þeir eru bara stórhættulegir og mjög grimmir. Ekki vildi ég vita af einum slíkum á vappi nálægt mínum heimkynnum.
NÁKVÆMLEGA.
Þetta er nákvæmlega það sem ég vil meina. Ég held að þeir sem eru að segja að það hafi ekki verið nauðsyn að skjóta hann hafi ekki hugsað þetta til enda.
Þeir sem vilja meina að það hafi ekki þurft að skjóta hann, þeir mættu svara þessum spurningum
með úrræðum sem voru til taks í dag áður en farið er að tala um hvað þetta hafi verið mikill óþarfi.
Auðvitað er leiðinlegt að þurfa að aflífa svona dýr, en ég er ekki tilbúinn til að eyða milljónum í viðbragðsáætlun og viðbrögð við svona löguðu sem gerist kannski á hvað, 100 ára fresti?
Peningum skattborgarana er betur varið með að bíta í það súra og gera eins og var gert í dag í stað þess að hafa tilbúið allt og senda þyrlu norður með manni og deyfilyfjum, búri, flytja hann, fóðra hann bla bla bla bla.
Mikið er ég ósammála þér.
1. Það var dýralæknir á staðnum með deyfilyf sem hefði verið hægt að setja í kjöt, og alvöru deyfibyssa í nokkurra klukkustunda fjarlægð, eða á Egilsstöðum.
2. Ég gat ekki séð neina þoku á þeim vídjóum frá staðnum þar sem hann var skotinn. Og Lögreglan átti að loka vegum til þess að sjá til þess að fólk myndi ekki flykkjast að staðnum.
3. Þetta gerðist fyrir hádegi, sem þýðir að það er langt í myrkur og þar af leiðandi gefst meiri tími til að vinna úr úrræðum. Hringja í dýragarða erlendis, tala við dýralækna, etc. etc...
4. Þessar 5 skyttur hefðu alveg getað verið á standby í þónokkri fjarlægð meðan haft er samband við dýragarða eða whatever til að afla upplýsinga. En að drepa hann strax er bara vitleysa, hann var ekki það nálægt mannabyggðum að það hafi verið nauðsynlegt.
5. Okei, það myndi kosta pening og vinnu að vera að standa í þessu, en þetta er dýr í útrýmingarhættu og okkur ber eginlega skylda til þess að ALLAVEGA REYNA að komast hjá því að þurfa að drepa björninn. Landkynningin sem Ísland fengi fyrir að koma birninum aftur heim, myndi margborga sig fyrir þessar 2 kúlur sem þetta myndi kosta, eða hvað það var. Hver veit nema að einhver dýragarður útí heimi hefði viljað borga undir hann farið til að fá hann. OG þetta myndi hjálpa Íslandi í huga heimsins hvað varðar veiðar á "friðuðum dýrum", eins og hvölum, en þó er ég alveg sinntur veiðum á hvölum sem eru ekki í útrýmingarhættu. En í stað þess þá drepum við hvali og núna Ísbjörn.
6. Peningum skattborgara þessa lands er þvílíkt sóað þvers og kruss, að það myndi ekki nokkur maður finna fyrir þessu. Það mætti t.d. spara með því að kaupa BMW 730i undir forsætisráðherra í stað 735, og þar með væri ríkiskassinn kvitt.
7. Það að Ísbjörnum sé slátrað í gríð og erg í Noregi eða á Svalbarða afsakar þetta akkúrat ekkert.
8. Ég neita bara að trúa því að eina úrræðið sem hafi verið til taks í dag hafi verið að drepa dýrið, og það fyrir hádegi.