bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 24. Jun 2025 16:33

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 109 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 8  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 19:09 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 21. Jan 2003 13:43
Posts: 878
Location: Reykjavík
skjóta þetta ef þeir koma á land, ísbjörn sem er búinn að vera á reki í nokkrar daga, kannski vikur á eftir að drepa eitthvað eða einhvern

_________________
Bonjour 307 2005
BMW M-Zetor 2002
BMW 740 1996
Taxi 1972

BMW er reizing keppnistæki og bensar eru taxar
300.000 km eru nýju 200.000 km

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 19:09 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Kristjan wrote:

Ekkert mál samt að skella honum í frystigám og láta stoppa hann upp, það er örugglega ókeypis :wink:

Hann verður stoppaður upp.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 19:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
. wrote:
skjóta þetta ef þeir koma á land, ísbjörn sem er búinn að vera á reki í nokkrar daga, kannski vikur á eftir að drepa eitthvað eða einhvern

það er örugglega mikið til í því, kannski er hann búinn að éta nokkrar rollur, það á eftir að koma í ljós

_________________
Enginn BMW

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 19:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Posts: 1721
Location: 1 2 Selfoss
Ég held að það hefði alveg mátt skoða aðra kosti fyrst. En það þurfti að taka ákvörðun á staðnum og ekki hefði verið gott að tína 250 kg rándýri í grend við byggð.

Burtséð frá því hvað var rétt í stöðunni þá finnst mér ótrúlegt hvað fjölmiðlar geta japlað á þessu.

_________________
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 20:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
siggir wrote:
Burtséð frá því hvað var rétt í stöðunni þá finnst mér ótrúlegt hvað fjölmiðlar geta japlað á þessu.

Gúrkutíð.. ótrúlegustu hlutir eru að komast í fréttir þessa dagana

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 20:08 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
ValliFudd wrote:
Gúrkutíð.. ótrúlegustu hlutir eru að komast í fréttir þessa dagana

Nákvæmlega, eins og þetta með skjálftana, big deal, af hverju að vera að minnast á það eiginlega.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 20:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08
Posts: 3377
þetta er allt samsæri það er verið að reyna að svæfa 10-11 málið hjá löggunni og þess vegna kom jarðskjálfti og nú ísbjörn , HVA NÆST AAAHHHH :roll:

_________________
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 21:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
saemi wrote:
ValliFudd wrote:
Gúrkutíð.. ótrúlegustu hlutir eru að komast í fréttir þessa dagana

Nákvæmlega, eins og þetta með skjálftana, big deal, af hverju að vera að minnast á það eiginlega.

Já einmitt það er ekkert big deal að sumir hafi verið að missa heimilin sín...

comon Sæmi,,,

_________________
Enginn BMW

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 21:27 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Kristjan wrote:
saemi wrote:
ValliFudd wrote:
Gúrkutíð.. ótrúlegustu hlutir eru að komast í fréttir þessa dagana

Nákvæmlega, eins og þetta með skjálftana, big deal, af hverju að vera að minnast á það eiginlega.

Já einmitt það er ekkert big deal að sumir hafi verið að missa heimilin sín...

comon Sæmi,,,

:lol: sorrý, ég var bara að prófa hvað gerist ef maður setur ekki broskall með...

sorrý aftur.

:lol:

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 21:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08
Posts: 3377
saemi wrote:
ValliFudd wrote:
Gúrkutíð.. ótrúlegustu hlutir eru að komast í fréttir þessa dagana

Nákvæmlega, eins og þetta með skjálftana, big deal, af hverju að vera að minnast á það eiginlega.

já og það Daglega, eins og konan sagði í viðtalinu það eru senilega verri hlutir að gerast í heiminum en þetta :lol:

_________________
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Fúll
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 21:52 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Eins og svo oft áður get ég ekki orða bundist. Nú ælta ég að leiða ykkur í örlítinn sannleika. Það eru ákveðnar stéttir hér á landi sem vinna við að taka ákvarðanir og eðli stórra ákvarðanna er það að það er alltaf hægt að bítast um hvort rétt ákvörðun hafi verið tekin.

Þetta er spjall er að verða fullt af fólki sem virðist geta fátt annað en að drulla yfir störf annarra af hliðarlínunni án þess að koma með neinar almennilegar lausnir. Það er alveg ótrúlegt hvað þið getið dæmt störf hinna og þessara sitjandi heima fyrir framan tölvuna.

Setjið ykkur í spor þess manns sem tók þessa tilteknu ákvörðun. Hann hafði ekki allar þær upplýsingar sem við höfum núna auk þess að hann þurfti að taka ákvörðunina, en ekki einungis að gagnrýna hana eins og þið gerið. Hann stóð frammi fyrir því að segja: ég tek ekki áhættuna, ég læt aflífi dýrið og tek ekki sénsinn á að það vafri að einhverjum bænum og ráðist þar jafnvel að fólki. Hann gerði það ekki af gamni sínu, þið sjáið hann ekki á myndinni af dýrinu, hann gerði þetta af skyldurækni, af því að hann ber ábyrgð á öryggi hinna í samfélaginu.

Einn hérna segir að þetta sé gert til að breiða yfir 10-11 málið. Hvaða mál spyr ég? Er það stór mál að ein lögga skyldi missa stjórn á sér og grípa óvarlega til ungs pilts í reiði sinni? Jú, sannarlega ámælisvert, en stórmál? Finns ykkur það í alvörunni? Ef svo er þá eigiði alvarlega bágt og þurfið að skoða virkilega hvort þið þjáist ekki af ofurviðkvæmni. Í því tiltekna máli er löggan enn heima hjá sér að díla við það að hann missti stjórn á sér. Etv. missir hann vinnuna. Missið þið vinnuna við mistök?

Eins og margir vita þá er ég lögga og það versta við það er hversu vanmetin störf mín eru. Ég vinn við það alla daga að reyna að gera þetta að betra þjóðfélagi, ég er ekki fullkominn en mér gengur þolanlega. Ég fæ sjaldan þakkir en alltaf þegar eitthvað fer mis þá er mér kennt um og jafnvel nafn mitt dregið í fjölmiðla. Lifið þið við það?

Lítiði í eigin barm, byrjiði þar, takið svo aðra fyrir.

Last edited by Þórir on Tue 03. Jun 2008 21:53, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 21:53 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Posts: 3939
Location: London
Er ekki allt í lagi með ykkur??

Áttu þeir að bjóða kvikindinu í kaffi ? Þetta er BJÖRN, þeir borða fólk ef það
er fyrir þeim. Það hefði engum fundist hressandi ef hann hefði drepið skyldmenni
einhvers. Þá hefði verið spurt af hverju var ekki löngu búið að skjóta kvikindið?

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 22:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
saemi wrote:
basten wrote:
Það er merkilegt hvað margir eru búnir að tjá sig um þetta mál á hinum ýmsu síðum og flestir virðast ekki hafa hugsað málið til enda og talið að dýrið hafi verið skotið bara upp á fjörið.

Fyrir það fyrsta þá er hvítabjörninn eitt það grimmasta rándýr sem lifir villt á jörðinni í dag. Þar sem dýrið var skotið var stutt í þéttbýliskjarna eins og Blönduós, Skagaströnd og Sauðárkrók. Hvað ef lögreglan hefði týnt dýrinu þarna og það horfið inn í þokuna? Þá væri enn verið að leita að dýrinu og fólk alveg brjálað yfir því að það hafi ekki verið skotið á meðan færi gafst. Hugsa að álit fólks á lögreglunni væri ekki uppá marga fiska ef svo dýrið hefði skyndilega birst á einhverjum þessara þéttbýliskjarna eða bara á bóndabæ og ráðist þar á mannfólk og drepið það.

Margir tala um að ekkert mál hafi verið að deyfa dýrið. Fyrir það fyrsta þá var ekki tiltæk deyfibyssa í nágrenninu og ekki víst að það væri tími til þess að hinkra eftir deyfibyssu í 2 klukkutíma þar sem björninn er fljótur yfir ef hann fer af stað, hvað þá ef hann týnist í þokunni. Hvað ætti svo að gera við dýrið þegar búið væri að svæfa það? Hvar er búr fyrir svona skepnu? Hvað ef dýrið vaknar þegar búið er að svæfa það? Hvert á að flytja dýrið? Hvað á svo að gera við það? Það er heldur ekki sama hvert farið er með dýrið og því sleppt.

Í Noregi eru ísbirnir skotnir ef þeir sjást í landi. Á Svalbarða, þar sem ísbirnir eru landlægir, eru þeir hræddir á brott ef þeir koma nálægt byggð. Ef sami björn kemur aftur nálægt byggð eftir að hafa verið rekinn á brott þá er hann drepinn.

Ísbirnir eru virkilega falleg dýr en þeir eru bara stórhættulegir og mjög grimmir. Ekki vildi ég vita af einum slíkum á vappi nálægt mínum heimkynnum.

NÁKVÆMLEGA.

Þetta er nákvæmlega það sem ég vil meina. Ég held að þeir sem eru að segja að það hafi ekki verið nauðsyn að skjóta hann hafi ekki hugsað þetta til enda.

Þeir sem vilja meina að það hafi ekki þurft að skjóta hann, þeir mættu svara þessum spurningum með úrræðum sem voru til taks í dag áður en farið er að tala um hvað þetta hafi verið mikill óþarfi.

Auðvitað er leiðinlegt að þurfa að aflífa svona dýr, en ég er ekki tilbúinn til að eyða milljónum í viðbragðsáætlun og viðbrögð við svona löguðu sem gerist kannski á hvað, 100 ára fresti?

Peningum skattborgarana er betur varið með að bíta í það súra og gera eins og var gert í dag í stað þess að hafa tilbúið allt og senda þyrlu norður með manni og deyfilyfjum, búri, flytja hann, fóðra hann bla bla bla bla.

Mikið er ég ósammála þér.

1. Það var dýralæknir á staðnum með deyfilyf sem hefði verið hægt að setja í kjöt, og alvöru deyfibyssa í nokkurra klukkustunda fjarlægð, eða á Egilsstöðum.

2. Ég gat ekki séð neina þoku á þeim vídjóum frá staðnum þar sem hann var skotinn. Og Lögreglan átti að loka vegum til þess að sjá til þess að fólk myndi ekki flykkjast að staðnum.

3. Þetta gerðist fyrir hádegi, sem þýðir að það er langt í myrkur og þar af leiðandi gefst meiri tími til að vinna úr úrræðum. Hringja í dýragarða erlendis, tala við dýralækna, etc. etc...

4. Þessar 5 skyttur hefðu alveg getað verið á standby í þónokkri fjarlægð meðan haft er samband við dýragarða eða whatever til að afla upplýsinga. En að drepa hann strax er bara vitleysa, hann var ekki það nálægt mannabyggðum að það hafi verið nauðsynlegt.

5. Okei, það myndi kosta pening og vinnu að vera að standa í þessu, en þetta er dýr í útrýmingarhættu og okkur ber eginlega skylda til þess að ALLAVEGA REYNA að komast hjá því að þurfa að drepa björninn. Landkynningin sem Ísland fengi fyrir að koma birninum aftur heim, myndi margborga sig fyrir þessar 2 kúlur sem þetta myndi kosta, eða hvað það var. Hver veit nema að einhver dýragarður útí heimi hefði viljað borga undir hann farið til að fá hann. OG þetta myndi hjálpa Íslandi í huga heimsins hvað varðar veiðar á "friðuðum dýrum", eins og hvölum, en þó er ég alveg sinntur veiðum á hvölum sem eru ekki í útrýmingarhættu. En í stað þess þá drepum við hvali og núna Ísbjörn.

6. Peningum skattborgara þessa lands er þvílíkt sóað þvers og kruss, að það myndi ekki nokkur maður finna fyrir þessu. Það mætti t.d. spara með því að kaupa BMW 730i undir forsætisráðherra í stað 735, og þar með væri ríkiskassinn kvitt.

7. Það að Ísbjörnum sé slátrað í gríð og erg í Noregi eða á Svalbarða afsakar þetta akkúrat ekkert.

8. Ég neita bara að trúa því að eina úrræðið sem hafi verið til taks í dag hafi verið að drepa dýrið, og það fyrir hádegi.

_________________
E53 X5 4.4i

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 22:14 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40
Posts: 3976
Eggert wrote:

Svo getum við kannski líka bara lækkað launin þeirra niðrí 150 þús á mánuði, óþarfi að borga eitthvað fancy hús þegar að þeir geta alveg eins búið í breiðholtinu!

Að skerða fríðindi og laun stjórnmálamanna er ávísun upp á grasserandi spillingu....við viljum nefnilega meira af henni

Hinsvegar varðandi þennan björn, þá sé ég ekkert eftir honum. Ég efast stórlega að ég, lífríkið og lífsgæði mannvera eigi eftir að skaðast á einhvern hátt ef að það sé einum færri ísbirni á vappi

Last edited by IceDev on Tue 03. Jun 2008 22:17, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 22:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Tók svona til orða.... sé ekki hvernig þetta styður spillingu.

_________________
E53 X5 4.4i

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 109 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5, 6 ... 8  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 10 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group