Axel Jóhann wrote:
Sælir strákar og stelpur.
Ég tók smá hring á 525i í dag og eins og margir vita þá er vélin í honum eða allt fyrir neðan hedd 87'' módel og búið að standa í svoldinn tíma ónotað(nokkur ár)
Og þegar bíllinn er kaldur þá vill hann oft drepa á sér en þegar hann er búinn að ganga í 5 mín þá er hann ok og helst í gangi, cirka 8-900rpm en samt þegar maður gefur snöggt inn þá dettur hann niður í svona 4-500 rpm og olíuljósið kemur á í 2 sec í mesta lagi og fer svo í eðlilegan snúning.
Ég var að spá hvort olídælan væri orðin svoldið stirð í blokkinni og jafnvel hægagangs skynjarinn(ICV? AFM? MAF?) (Eflaust orginal frá 1990) orðinn slappur og þyrfti að skipta út.
Fyrir utan þetta þá virkar hann mjög fínt, nema það að núna þegar ég set miðstöðina á 4 þá kemur óskaplegt ryk inní bílinn, gæti verið að elementið fyrir miðstöðina leki?
Bíllinn heldur þó eðlilegum hita og allt það.
Með von um góð svör, Axel Jóhann.

Þú getur gleymt því að olíudælan sé eitthvað stirð. Olíuljósið kemur bara á vegna þess að snúningurinn dettur niður og þá heldur hann ekki olíuþrýstingi.
Þetta er sennilega eitthvað tengt innspýtingunni, ICV eða AFM mögulega(það er ekki MAF í þessum bíl (þess utan getur ekki verið AFM og MAF í eina og sama bílnum).... ). Annars athuga vacuum slöngur.
Ef hitaelementið lekur kemur ekki
ryk inn í bílinn. Það geta bara verið óhreinindi og það tengist ekkert leka á elementinu.