Vörubílstjórar mótmæla

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby ValliFudd » Wed 23. Apr 2008 11:10

Táragas og kylfur :shock:
Til átaka kom fyrir stundu á milli lögreglu vörubílstjóra á Suðurlandsvegi og hafa nokkrir menn þegar verið handteknir.

Að sögn fréttamanns Stöðvar 2 kom til átaka þegar lögregla hugðist fara inn í bíl sem stóð á vegnum og hefur lögregla beitt bæði kylfum og táragasi í aðgerðunum. Tugir lögreglumanna eru á staðnum. Vísir vonast til að geta boðið upp á beina útsendingu frá staðnum innan stundar.


http://www.visir.is/article/20080423/FRETTIR01/818988026
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Wed 23. Apr 2008 11:21

komið vídjó á mbl.is
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... _taragasi/

Löggan virkar svolítið amateur í þessu myndbandi.. Það er eins og þeir viti í raun ekki hvernig þetta virkar allt saman.. Eins og þeir segja, "ef við erum ekki handteknir megum við fara" :lol:

Meira edit:
Mynd með frétt, þessi missti kúlið :shock:

Image
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Wed 23. Apr 2008 11:28

http://www.visir.is/article/20080423/FRETTIR01/490263054&sp=1
Þetta er reyndar aðeins áður en slagsmálin byrjuðu, einn vörubílstjórinn kom EKKI vel út þarna :?
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Aron Fridrik » Wed 23. Apr 2008 11:29

hverju eru þeir að mótmæla núna ?
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby ValliFudd » Wed 23. Apr 2008 11:31

Aron Fridrik wrote:hverju eru þeir að mótmæla núna ?

Þeir vilja geta keyrt lengur en 4,5 tíma.. Sem er bannað innan Evrópusambandsins eða eitthvað.. Ég reyndar vil ekkert sjá þá keyrandi í 10 tíma eða eitthvað án þess að hvíla sig.. Kannski er það bara ég... En ég vil allavega ekki mæta þreyttum bílstjóra á 40 tonna vörubíl..
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Aron Fridrik » Wed 23. Apr 2008 11:33

var það ekki bensínverð og þungaskattur í síðustu viku ? :-k
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby ValliFudd » Wed 23. Apr 2008 11:42

Já, þetta er orðið svolítið spes.. Það veit í raun enginn beint hverju er verið að mótmæla og kannski ekki þeir sjálfir heldur.. En samt eru allir með þeim í liði, bara af því að mótmæli eru töff? :drunk:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby bjahja » Wed 23. Apr 2008 11:52

ok, þetta eru nú samt ekki friðsamleg mótmæli............það er ekki hægt að ætlast til þess að löggan geri bara ekki neitt þegar þeir eru að loka vegum hægri vinstri.
En ég er ekki að segja að það sé í lagi að henda táragasi á fólk...
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby ///M » Wed 23. Apr 2008 11:59

bjahja wrote:ok, þetta eru nú samt ekki friðsamleg mótmæli............það er ekki hægt að ætlast til þess að löggan geri bara ekki neitt þegar þeir eru að loka vegum hægri vinstri.
En ég er ekki að segja að það sé í lagi að henda táragasi á fólk...


Stóð á mbl að mótmælendur hefðu grýtt lögreglu...
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby fart » Wed 23. Apr 2008 12:01

///M wrote:
bjahja wrote:ok, þetta eru nú samt ekki friðsamleg mótmæli............það er ekki hægt að ætlast til þess að löggan geri bara ekki neitt þegar þeir eru að loka vegum hægri vinstri.
En ég er ekki að segja að það sé í lagi að henda táragasi á fólk...


Stóð á mbl að mótmælendur hefðu grýtt lögreglu...


Þetta er nú komið alveg í stóra ruglið. Þessi Sturla er búinn að missa það.. "það má bara greinilega ekkert opna á sér munninn... " hehe.. er það sami hlutur að leggja bílnum sínum á stórri umferðargötu og opna á sér munninn.

og svo hinn gæjinn þarna í visis videoinu sem er alveg sturlaður, löggan mega róleg.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Aron Fridrik » Wed 23. Apr 2008 12:04

þeir vildu mótmæli eins og í útlöndum.. þá fylgir með lögreglan eins og í útlöndum :lol:
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby Aron Andrew » Wed 23. Apr 2008 12:05

Löggann hljóp bara á mótmælendahópinn og maceaði línuna :lol:

Frekar gróft finnst mér þegar fólk bara stóð þarna.
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby fart » Wed 23. Apr 2008 12:07

Aron Andrew wrote:Löggann hljóp bara á mótmælendahópinn og maceaði línuna :lol:

Frekar gróft finnst mér þegar fólk bara stóð þarna.


En ef það er búið að margbiðja menn um að færa sig, þeir standa á miðri götunni og loka umferð ?
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Aron Andrew » Wed 23. Apr 2008 12:11

fart wrote:
Aron Andrew wrote:Löggann hljóp bara á mótmælendahópinn og maceaði línuna :lol:

Frekar gróft finnst mér þegar fólk bara stóð þarna.


En ef það er búið að margbiðja menn um að færa sig, þeir standa á miðri götunni og loka umferð ?


Er þá bara næsta ráð að sprauta piparúða yfir hópinn? Það er ekki eins og löggunni hafi verið ógnað eða eitthvað, finnst að piparúðinn ætti ekki að vera notaður nema í algjöri neyð.
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Benzer » Wed 23. Apr 2008 12:11

Núna er ég búinn að missa ALLT álit á lögreglunni á Íslandi...

Þetta eru vitleysingar :lol: Þetta er ekki lýðræði ef það má ekki mótmæla.
BMW 750 il
BMW Z3
Jeep Grand Cherokee V8 99 árgerð
Husaberg 450 Götuprjónarinn
User avatar
Benzer
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1094
Joined: Wed 08. Jan 2003 18:13
Location: Vestmannaeyjar

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 37 guests