Til átaka kom fyrir stundu á milli lögreglu vörubílstjóra á Suðurlandsvegi og hafa nokkrir menn þegar verið handteknir.
Að sögn fréttamanns Stöðvar 2 kom til átaka þegar lögregla hugðist fara inn í bíl sem stóð á vegnum og hefur lögregla beitt bæði kylfum og táragasi í aðgerðunum. Tugir lögreglumanna eru á staðnum. Vísir vonast til að geta boðið upp á beina útsendingu frá staðnum innan stundar.
http://www.visir.is/article/20080423/FRETTIR01/818988026






