..

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

Postby Ibzen » Thu 17. Apr 2008 01:38

Djöfull eruð þið allir vondir... :D
Fyrst þessi.
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=28744
Og svo næstum því þessi, var farinn að missa þolinmæðina þarna í endann.
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=27979

Og svo núna þessi sem er í þessum þræði.

Hver verður næstur? :twisted:
BMW 320 e36 "93 -í notkun-
User avatar
Ibzen
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 252
Joined: Fri 26. Sep 2003 23:08
Location: Hafnarfjörður

Postby Angelic0- » Thu 17. Apr 2008 03:32

Jæja strákar, þetta var nú kannski fullgróft!

En rétt skal vera rétt, 11-12ltr á hundraðið er ekki fræðilegur nema þú komist alla leið í hfj án þess að lenda á rauðu og án þess að lenda í umferðarteppu!

Ég ætla formlega að biðja þig afsökunar fyrir hönd kraftsins (og auðvitað sjálfs míns) og biðja þig að setja auglýsinguna aftur inn!

Vonandi tekuru afsökunarbeiðnina gilda.
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Aron M5 » Thu 17. Apr 2008 08:55

þetta endar þannig að fólk hætti að auglysa her nema kanski þeir sem eiga E30
BMW 525D E61 07 Facelift
Aron M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2389
Joined: Thu 07. Dec 2006 16:53
Location: keflavik

Postby hlynurst » Thu 17. Apr 2008 09:14

Angelic0- wrote:Ég ætla formlega að biðja þig afsökunar fyrir hönd kraftsins (og auðvitað sjálfs míns) og biðja þig að setja auglýsinguna aftur inn!

Fyrir hvað ertu að biðja afsökunar?

Ef menn geta ekki rökstutt það sem þeir halda fram í auglýsingunni og taka hana þessa í stað út þá myndi maður ætla að sá aðili hafi eitthvað að fela.

Persónulega finnst mér bara ekkert að því að menn dragi í efa eitthvað sem virðist vera óraunhæft. Sérstaklega í ljósi þess að margir hérna hafa átt einmitt svona bíl og vita hvað þeir eyða.
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby saemi » Thu 17. Apr 2008 09:45

Angelic0- wrote:Jæja strákar, þetta var nú kannski fullgróft!

En rétt skal vera rétt, 11-12ltr á hundraðið er ekki fræðilegur nema þú komist alla leið í hfj án þess að lenda á rauðu og án þess að lenda í umferðarteppu!

Ég ætla formlega að biðja þig afsökunar fyrir hönd kraftsins (og auðvitað sjálfs míns) og biðja þig að setja auglýsinguna aftur inn!

Vonandi tekuru afsökunarbeiðnina gilda.

Ég vil koma því á framfæri að Angelico hefur ekkert umboð til þess að gera eitt né neitt fyrir hönd kraftsins.

BMWKraftur hefur ekki ekki ennþá séð ástæðu til að biðja þennan aðila formlega afsökunar. Ef svo verður, þá gerist það ekki á þann hátt að óbreyttur meðlimur kraftsins geri það, það verður þá stjórnin sem gerir það og meðlimur hennar setur það þá inn.

Varðandi þetta og önnur dæmi þess að höfundar greina séu ósáttir og taki í fússi út auglýsingar sínar, þá finnst mér það miður.

En það er ekki þar með sagt að það sé við okkur notenda kraftsins að sakast. Ef fólk getur ekki tekið þeim ummælum sem koma fram og eru byggð á reynslu og rökum, þá getum við ekki tekið á okkur að við okkur sé að sakast að viðkomandi gefist upp.

Það er ekkert særandi í þessum skrifum sem voru höfð þarna frammi, ekkert verið að fara illa með viðkomandi osfrvs. Meirihlutinn á ekki að hrökkva til þó einn aðili segi Böhhh. það er meirihlutinn sem ræður og hann segir að það sé ekki eðlilegt að ná svona bíl í eyðslu niður í 11-12 ltr. á hundraðið.

Ég ætla ekki að rengja ÞENNAN aðila með eyðslu á ÞESSUM bíl. Það má vera að með ótrúlegum hætti hafi honum tekist þetta. En það er þá ekki keyrslumáti sem er ekki eðlilegur.

Ég persónulega átti svona bíl í 1 1/2 ár og þekki það af eigin raun. Bæði að hafa kvenmann sem hefur engan áhuga á að gefa í á honum og einnig mig að nota hann í langkeyrslu. Svona bíll er í 10 lítrum á 120 í langkeyrslu og því skil ég ekki að hægt sé að koma honum í það sama í innanbæjarakstri.

EN... ókei allt í lagi að viðkomandi haldi því fram. Hann má það alveg án þess að verða hent út af þessu spjallborði, hér má alveg hafa sínar skoðanir! En það er líka hluti af því sem meðlimir kraftsins eru ánægðir með, að hér er öll vitleysa ekki tekin góð og gild. Ef einhverju er haldið fram sem meirihlutinn er ekki sammála, þá er látið í sér heyra og það leiðrétt.

Það er ekki sjálfsagður hluti að hver sem er geti sagt allt hérna á þessu spjalli og það fái að standa óáreitt. Það á enginn höfundur rétt á því að ekki sé póstað inn í þráðinn hans. Þetta spjallborð er fyrir alla spjallverja, þ.a.l. verður stundum að hampa fjöldanum og þá hallar á einstaklinginn.

Ég skora á þennan aðila að sjúga upp í nefið og smella inn aftur textanum sem hann var búinn að setja inn, eða búa til nýjann þessvegna. Það er ekkert að því að ræða hlutina. Þetta hefur allaveganna haldið þræðinum hans uppi sem er söluvænt. Það græðir enginn á því að vera í fýlu, hvorki hann né við, það er leiðinlegt að vera í fýlu!

:)
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Muggi » Thu 17. Apr 2008 11:00

saemi wrote:

Ég er ekki fúll, aðalega sár út í stjórnendur þessa spjalls að geta ekki stoppað svona umræðu heldur taka þátt í að rakka mann niður.

Þessi eyðsla er langt frá því að vera óraunhæf, nú segi ég það aftur sem ég sagði fyrr, ég keyri venjulega minnst 20 km í einu, þar er í með bílin í cruise control á lágum snúning, c.a 80-90 km hraði. Ég keyri daglega niður ártúnsbrekkuna (áður en umferðarteppan þar byrjar þar sem ég fer fyrr en aðrir af stað, þar þarf ég að slá af til að á einni beygju niður og þaðan fer ég framnhjá sprengisand í cruise-inu og alla leið inni hfj.

Á þessum vegkafla eru nákvæmlega 4 ljós inní hfj og það 5 þegar ég stoppa á beygjuakrein við kaplakrika, þarna á þessum kafla dettur eyðslan gríðarlega niður þar sem þetta er beinn kafli og er meðalhraði hjá mér yfirleitt 75-80km.

Ég þarf sjaldnast að stöðva á ljósum þar sem eina ljósið sem virkilega böggar þarna er ljósið við sprengisand, hin er nánast alltaf græn nema það sé umferð úr öðrum áttum sem eru sjaldnast þegar ég er á ferð.

Heimleiðin er nákvæmlega eins nema þá fer ég alla leið uppí grafarholt en ekki yfir gullinbrú eins og oft á morgnana, ég næ nánast undantekningarlaust ALLTAF þessari leið svo gott sem alla leið í cruise-control nema auðvitað þessa fáu metra þar sem ég beygi inn í grafarvog.

Að þið sem stjórnendur og spjallverjar leyfið ykkur að kalla fólk heimst fyrir að trúa tölum, vita hversu marga lítra það setur á bílin hjá sér, vita hve marga km það keyrir á þessum lítrafjölda og geta þegar uppi er staðið reiknað eyðsluna út finnst mér alveg hreint merkilegt, eitt er víst að ég mun hvorki auglýsa þennan bíl hér aftur né nokkurn annan BMW sem ég kem til með að eiga.

Fyrir utan tel ég slæm ákveði um eyðslu bíls EKKI GERA HANN SÖLUVÆNNI

Ég vill þakka ykkur kærlega fyrir að eyðileggja söluþráð fyrir mér, fyrir að rakka mig persónulega niður og hrekja mig útaf þessu spjalli.

Mbk. Muggi.
Muggi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 76
Joined: Tue 15. Apr 2008 16:31

Postby arnib » Thu 17. Apr 2008 11:26

Það er augljóst mál hvað er í gangi hérna..

Muggi ekur bílnum bara í langkeyrslu innanbæjar og það virðast allir sammála um að þessi eyðsla geti staðist í langkeyrslu..

Smelltu nú aftur inn auglýsingunni vinur :)
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Einarsss » Thu 17. Apr 2008 11:45

þetta meiri drama en í "guiding light"
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby saemi » Thu 17. Apr 2008 12:00

Muggi wrote:
Ég er ekki fúll, aðalega sár út í stjórnendur þessa spjalls að geta ekki stoppað svona umræðu heldur taka þátt í að rakka mann niður.

Þessi eyðsla er langt frá því að vera óraunhæf, nú segi ég það aftur sem ég sagði fyrr, ég keyri venjulega minnst 20 km í einu, þar er í með bílin í cruise control á lágum snúning, c.a 80-90 km hraði. Ég keyri daglega niður ártúnsbrekkuna (áður en umferðarteppan þar byrjar þar sem ég fer fyrr en aðrir af stað, þar þarf ég að slá af til að á einni beygju niður og þaðan fer ég framnhjá sprengisand í cruise-inu og alla leið inni hfj.

Á þessum vegkafla eru nákvæmlega 4 ljós inní hfj og það 5 þegar ég stoppa á beygjuakrein við kaplakrika, þarna á þessum kafla dettur eyðslan gríðarlega niður þar sem þetta er beinn kafli og er meðalhraði hjá mér yfirleitt 75-80km.

Ég þarf sjaldnast að stöðva á ljósum þar sem eina ljósið sem virkilega böggar þarna er ljósið við sprengisand, hin er nánast alltaf græn nema það sé umferð úr öðrum áttum sem eru sjaldnast þegar ég er á ferð.

Heimleiðin er nákvæmlega eins nema þá fer ég alla leið uppí grafarholt en ekki yfir gullinbrú eins og oft á morgnana, ég næ nánast undantekningarlaust ALLTAF þessari leið svo gott sem alla leið í cruise-control nema auðvitað þessa fáu metra þar sem ég beygi inn í grafarvog.

Að þið sem stjórnendur og spjallverjar leyfið ykkur að kalla fólk heimst fyrir að trúa tölum, vita hversu marga lítra það setur á bílin hjá sér, vita hve marga km það keyrir á þessum lítrafjölda og geta þegar uppi er staðið reiknað eyðsluna út finnst mér alveg hreint merkilegt, eitt er víst að ég mun hvorki auglýsa þennan bíl hér aftur né nokkurn annan BMW sem ég kem til með að eiga.

Fyrir utan tel ég slæm ákveði um eyðslu bíls EKKI GERA HANN SÖLUVÆNNI

Ég vill þakka ykkur kærlega fyrir að eyðileggja söluþráð fyrir mér, fyrir að rakka mig persónulega niður og hrekja mig útaf þessu spjalli.

Mbk. Muggi.

Ég (stjórnandinn sem þú ert væntanlega að vísa í) hef ekkert rakkað þig niður. Ég hef heldur ekki kallað neinn heimskan, hvað þá þig.

Þetta er allt sem ég hef sagt í þessum þræði, fyrir utan það sem stendur fyrir ofan þín skrif sem ég er að svara:

saemi wrote:
Ég mæli með að þú farir inn í tölvuna á honum og breytir úr Km/L í L/100km :wink:

Hitt stenst engan veginn sorrý. En þetta gæti skýrt málið!

saemi wrote:Ókei, allt í lagi. En í alvöru, hefurðu athugað hvort þú ert ekki með stillt á Km/l en ekki l/100 km. Ég var með þetta stillt óvart núna um daginn eftir að ég tók rafgeyminn úr sambandi á X5. Þá var ég að sjá tölu upp á 6.5 í langkeyrslu sem stóðst engan veginn. Ég skildi ekkert í þessu fyrr en ég fattaði að þessi stilling var í tölvunni.

saemi wrote::lol:

Það gerir þetta ekkert betra að fara með rangt mál og klína á mig einhverju sem ég hef ekki gert. Þú ættir nú að sjá sóma þinn í því að fara með rétt mál og vera ekki að búa eitthvað bull til um mig eins og þú varst að gera.

Það er ekki hlutverk stjórnenda hér að taka út ummæli sem þér (eða öðrum) finnst ekki eiga að vera inni í umræðu sem þeir hefja. Það er okkar hlutverk að sjá til þess að umræðurnar séu þannig að í þeim sé ekki bull sem kemur málinu ekkert við, ásamt því að taka út ærumeiðandi eða á annan hátt óviðeigandi pósta. Við erum ekki í því að ritskoða efni, eyða póstum eða á annan hátt að ráðskast með spjallið. Þú verður bara að taka því ef inn í póstinn þinn koma innlegg sem eru vitsmunaleg og á rökum byggð.

Ég sé ekki betur en að þú akir bílnum þínum innanbæjar eins og um utanbæjarakstur væri að ræða. Það gerir "innanbæjareyðsluna" á þessum bíl ekki minni. Innanbæjareyðsla er skilgreind á ákveðinn hátt og þetta fellur engan vegin undir það. Það sem við erum að segja er einfaldlega að þessi bíll þinn eyðir í "innanbæjarakstri", ekki þínum sparakstri meira heldur en 10-11 lítrum sem þú segir. Það er ekki verið að gera bílinn ósöluvænni, heldur benda á staðreyndir.

Ekki vilt þú vera að reyna að segja væntanlegum kaupanda rangt til um staðreyndir eða hvað?

Að lokum:

Við eyðilögðum ekki söluþráð fyrir þér, við bentum á villu í staðhæfingu í honum.

Það rakkaði ENGINN þig niður né sagði nokkurt styggðaryrði um þig hér.

Þú varst ekki hrekinn í burt frá þessu spjalli (ef þú ferð) heldur fórst þú sjálfur héðan að eigin frumkvæði.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Angelic0- » Thu 17. Apr 2008 14:25

Ég bið þig (Sæmi) og rest af stjórnendum afsökunar á því að hafa gefið sjálfum mér það bessaleyfi að biðja manninn afsökunar!

Mér finnst bara slæmt að sjá 2 söluþræði detta út í sömu vikunni og fannst ég því vera að gera rétt!

Þegar að ég síðan lít á staðreyndir málsins, þá er maðurinn ekki að keyra bílinn neitt innanbæjar, hann gæti eins átt 320d sem að eyðir þá í innanbæjarakstri 4,5-5ltr/100km!

Skjóstu á bílnum í Keflavík og taktu nokkra hringi á Hafnargötunni og mældu langkeyrsluna á Reykjanesbraut!
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Angelic0- » Thu 17. Apr 2008 14:28

Damn 3G!

Þá fyrst færðu raunhæfar eyðslutölur!
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby saemi » Thu 17. Apr 2008 14:42

Angelic0- wrote:Ég bið þig (Sæmi) og rest af stjórnendum afsökunar á því að hafa gefið sjálfum mér það bessaleyfi að biðja manninn afsökunar!

Ekkert mál :D

Þú ert stundum bara svolítið bráður og hleypur á undan heilanum. Svo nær hann þér þegar þú stoppar í smá stund :wink:
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby íbbi_ » Thu 17. Apr 2008 19:30

þetta er mjög einfalt... svín fljúga ekki og m5 eyðir ekki 11-12, ef þessi m5 bifreið þín gerir það innanbæjar þá hlýtur hann að ganga á 4 og þú svo rólegur að það hafi ekki uppgvötast,

það er bara ekki fræðilegur sjens að bíllinn eyði einhverju 7lítrum minna hjá þér þrátt fyrir að vera ekinn 160, heldur bmw sjálfir gefa upp á bílin nýjan við kjöraðstæður

þar sem þú ert sona harður á að bíllinn eyði þetta, þá ætla ég að hafa það eftir þér að svín geti víst flogið..
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: ..

Postby Vargur » Thu 17. Apr 2008 20:40

Muggi wrote:Þegar menn þroskast hér skal ég auglýsa bílin minn aftur.

Það þarf sennilega ekkert að ræða þetta meira.
...en stundum eru menn dónalegir í söluauglýsingum en hér held ég að það hafi alls ekki verið svo, heldur voru hér vitrænar umræður um eyðslu sem hljómar ósennilega miðað við fengna reynslu margra spjallverja.
Allir held ég að séu sammála um að bíllinn er góður og enginn hafði neitt út á hann að setja og ég get ekki séð að þessar umræður spilli sölunni neitt, frekar að væntanlegur kaupandi verði sáttur seinna meir þegar kemur í ljós að hann keyrir ekki nákvæmlega sömu leið og fyrri eigandi í vinnuna og bíllinn eyðir meira hjá honum. :wink:
Ég held að í þessu máli hafi þroskaleysið verið hjá eigandanum sem hleypur í fílu og eyðir út auglýsingunni í stað þess að láta þetta bara sem vind um eyru þjóta ef hann er svona viss um eyðsluna.
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby Alpina » Thu 17. Apr 2008 22:56

Muggi vildi mönnum selja
margur ekki trúði þó
bensín vildi í bílnum dvelja
býst við því að margur hló :lol:
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

PreviousNext

Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 21 guests