saemi wrote:
Angelic0- wrote:
Jæja strákar, þetta var nú kannski fullgróft!
En rétt skal vera rétt, 11-12ltr á hundraðið er ekki fræðilegur nema þú komist alla leið í hfj án þess að lenda á rauðu og án þess að lenda í umferðarteppu!
Ég ætla formlega að biðja þig afsökunar fyrir hönd kraftsins (og auðvitað sjálfs míns) og biðja þig að setja auglýsinguna aftur inn!
Vonandi tekuru afsökunarbeiðnina gilda.
Ég vil koma því á framfæri að Angelico hefur ekkert umboð til þess að gera eitt né neitt fyrir hönd kraftsins.
BMWKraftur hefur ekki ekki ennþá séð ástæðu til að biðja þennan aðila formlega afsökunar. Ef svo verður, þá gerist það ekki á þann hátt að óbreyttur meðlimur kraftsins geri það, það verður þá stjórnin sem gerir það og meðlimur hennar setur það þá inn.
Varðandi þetta og önnur dæmi þess að höfundar greina séu ósáttir og taki í fússi út auglýsingar sínar, þá finnst mér það miður.
En það er ekki þar með sagt að það sé við okkur notenda kraftsins að sakast. Ef fólk getur ekki tekið þeim ummælum sem koma fram og eru byggð á reynslu og rökum, þá getum við ekki tekið á okkur að við okkur sé að sakast að viðkomandi gefist upp.
Það er ekkert særandi í þessum skrifum sem voru höfð þarna frammi, ekkert verið að fara illa með viðkomandi osfrvs. Meirihlutinn á ekki að hrökkva til þó einn aðili segi Böhhh. það er meirihlutinn sem ræður og hann segir að það sé ekki eðlilegt að ná svona bíl í eyðslu niður í 11-12 ltr. á hundraðið.
Ég ætla ekki að rengja ÞENNAN aðila með eyðslu á ÞESSUM bíl. Það má vera að með ótrúlegum hætti hafi honum tekist þetta. En það er þá ekki keyrslumáti sem er ekki eðlilegur.
Ég persónulega átti svona bíl í 1 1/2 ár og þekki það af eigin raun. Bæði að hafa kvenmann sem hefur engan áhuga á að gefa í á honum og einnig mig að nota hann í langkeyrslu. Svona bíll er í 10 lítrum á 120 í langkeyrslu og því skil ég ekki að hægt sé að koma honum í það sama í innanbæjarakstri.
EN... ókei allt í lagi að viðkomandi haldi því fram. Hann má það alveg án þess að verða hent út af þessu spjallborði, hér má alveg hafa sínar skoðanir! En það er líka hluti af því sem meðlimir kraftsins eru ánægðir með, að hér er öll vitleysa ekki tekin góð og gild. Ef einhverju er haldið fram sem meirihlutinn er ekki sammála, þá er látið í sér heyra og það leiðrétt.
Það er ekki sjálfsagður hluti að hver sem er geti sagt allt hérna á þessu spjalli og það fái að standa óáreitt. Það á enginn höfundur rétt á því að ekki sé póstað inn í þráðinn hans. Þetta spjallborð er fyrir alla spjallverja, þ.a.l. verður stundum að hampa fjöldanum og þá hallar á einstaklinginn.
Ég skora á þennan aðila að sjúga upp í nefið og smella inn aftur textanum sem hann var búinn að setja inn, eða búa til nýjann þessvegna. Það er ekkert að því að ræða hlutina.
Þetta hefur allaveganna haldið þræðinum hans uppi sem er söluvænt. Það græðir enginn á því að vera í fýlu, hvorki hann né við, það er leiðinlegt að vera í fýlu!

Ég er ekki fúll, aðalega sár út í stjórnendur þessa spjalls að geta ekki stoppað svona umræðu heldur
taka þátt í að rakka mann niður.
Þessi eyðsla er langt frá því að vera óraunhæf, nú segi ég það aftur sem ég sagði fyrr, ég keyri venjulega minnst 20 km í einu, þar er í með bílin í cruise control á lágum snúning, c.a 80-90 km hraði. Ég keyri daglega niður ártúnsbrekkuna (áður en umferðarteppan þar byrjar þar sem ég fer fyrr en aðrir af stað, þar þarf ég að slá af til að á einni beygju niður og þaðan fer ég framnhjá sprengisand í cruise-inu og alla leið inni hfj.
Á þessum vegkafla eru nákvæmlega 4 ljós inní hfj og það 5 þegar ég stoppa á beygjuakrein við kaplakrika, þarna á þessum kafla dettur eyðslan gríðarlega niður þar sem þetta er beinn kafli og er meðalhraði hjá mér yfirleitt 75-80km.
Ég þarf sjaldnast að stöðva á ljósum þar sem eina ljósið sem virkilega böggar þarna er ljósið við sprengisand, hin er nánast alltaf græn nema það sé umferð úr öðrum áttum sem eru sjaldnast þegar ég er á ferð.
Heimleiðin er nákvæmlega eins nema þá fer ég alla leið uppí grafarholt en ekki yfir gullinbrú eins og oft á morgnana, ég næ nánast undantekningarlaust ALLTAF þessari leið svo gott sem alla leið í cruise-control nema auðvitað þessa fáu metra þar sem ég beygi inn í grafarvog.
Að þið sem stjórnendur og spjallverjar leyfið ykkur að kalla fólk heimst fyrir að trúa tölum, vita hversu marga lítra það setur á bílin hjá sér, vita hve marga km það keyrir á þessum lítrafjölda og geta þegar uppi er staðið reiknað eyðsluna út finnst mér alveg hreint merkilegt, eitt er víst að ég mun hvorki auglýsa þennan bíl hér aftur né nokkurn annan BMW sem ég kem til með að eiga.
Fyrir utan tel ég slæm ákveði um eyðslu bíls
EKKI GERA HANN SÖLUVÆNNI
Ég vill þakka ykkur kærlega fyrir að eyðileggja söluþráð fyrir mér, fyrir að rakka mig persónulega niður og hrekja mig útaf þessu spjalli.
Mbk. Muggi.