Vargur wrote:
Ég hef vanaleg farið með mína bíla á þvottastöðvarnar og ekkert fundið að þær rispi bílinn. Einn veturinn var ég með Landcruiser sem þurfti að sprauta húdd og framenda á vegna tjóns, allan veturinn þvoði ég bílinn reglulega á þvottastöð og varð ekki var við að lakkið færi illa á því. Á sumrin þvæ ég með kústi en ekki ef kústarnir eru fullir af drullu.
Ég get ekki séð að lakkið á bílunum mínum hafi farið illa á þessum þrifum og sé eiginlega ekki munin á því og að nudda sandinum inn í lakkið með svampi.
Þarna hittir þú naglann á höfuðið. Svampurinn getur einmitt valdið eins miklu skaða og kústurinn. Flatur flötur svampsins á það einmitt til að festa óhreinindin á milli og svo er svampurinn dreginn eftir lakkinu og óhreinindin mynda þar af leiðandi örrispur svipað og kústurinn getur gert. Það er hins vegar spurning um hvernig verknaðurinn er framinn, þ.e.a.s. hvort svampurinn er hreinsaður vel á milli fleta, hvort óhreinindin og tjaran eru þvegin af bílnum fyrir lokaþvott þar sem svampurinn er loks borinn á lakkflötinn. Einnig ber að varast hvernig bíllinn er þurrkaður eftir þvott. Er handklæðið/vaskaskinnið öruggt um að mynda engar örrispur/"marring"? Góð leið til að sjá hvort það sé þvotturinn eða þurrkurinn er að þvo langsum en þurrka þversum. Þá má sjá hvort verkferlið er að framkvæma örrispurnar. Einnig er gott fyrir ykkur að venja ykkur á tveggja fötu þvott þar sem í einni fötunni er sápuvatnið og í hinni er skolvatnið. Endilega skoðið þetta myndband sem sýnir mjög vel aðferðina
skoðaEitt gott ráð handa ykkur kraftsmönnum. Þegar þið eruð búnir að þvo alla sápuna af bílnum með háþrýsisprautunni eða vatnsbyssunni þá skulu þið skola aftur bílinn eingöngu með vatnsslöngunni (taka festingarnar af) eða vatnskönnu. Við þetta þá rennur vatnið betur af flötunum og mikklu minna vatn er til staðar sem þarf að þurrka.
Fólk á nýlegum E65 á greinilega bara að fara með bílinn til þín.