bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 25. Jun 2025 10:58

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 45 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sun 09. Mar 2008 22:50 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
Mér finnst nokkuð sniðug hugmynd eins og fart kom með að aðeins hluti stjórnar sé kosinn. Allavega til að byrja með.

Ég veit ekki hvort ég væri tilbúinn til að bjóða mig fram í stjórn, einfaldlega því ég er ekki viss um að geta sinnt því sem skyldi. En ég gæti vel hugsað mér að hjálpa eitthvað til ef aðstoð vantar við eitthvað.

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 09. Mar 2008 22:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Alveg rólegir,,
það er ekki eins og að um HALLARBYLTINGU sé að ræða

Það er bara umræða um þetta,,

menn verða að geta tekið almanna rómi,, hér er ekkert verið að bera neikvæðni til stjórnarinnar,, heldur spyrja

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 09. Mar 2008 23:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
ég hef verið hérna síðan krafturinn var stofnaður sem spjall.
og hef líklega verið lengur loggaður á spjallið enn nokkur maður.

Ég hef líklega getað boðið mig fram í einhverskonar störf, enn hef látið það liggja, þar sem að ég hef ekki þann tíma sem ég myndi vilja leggja í svona, og það tekur tíma frá manni að vera bundinn svona, nóg hefur maður með sitt hafurtask.

ég get ekki séð að neinn ætti að fá umbunað peningalega séð,
auðvitað fínt að halda smá pizzupartý annarslagið þegar málin eru rædd eins og mér skilst að hafi verið gert :) , það þykir mér sem meðlim alveg fínasta mál.

Held að best væri að menn kynni skoðanir sýnar sem þeim finnst vanta í klúbbinn í staðinn fyrir að menn séu að slást um einhverjar stöður.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 09. Mar 2008 23:47 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Posts: 3939
Location: London
Alpina wrote:
Alveg rólegir,,
það er ekki eins og að um HALLARBYLTINGU sé að ræða

Það er bara umræða um þetta,,

menn verða að geta tekið almanna rómi,, hér er ekkert verið að bera neikvæðni til stjórnarinnar,, heldur spyrja


Það eru allir rólegir held ég. Ég er sammála þér um að þetta sér fín umræða,
mér finnst hún bara vera á svolítið röngum forsendum. Það er nú lágmark
finnst mér að sá sem veltir þessu uppi hafa áhuga,þor og dug til að taka að
sér slík verk! Það loðir bara alltaf við svona stöf (eins og t.d. nemendafélagsstörf
og klúbb eins og þennan) að þeir sem mestan kjaft rífa yfir því að hlutirnir
ættu að vera svona og hinsegin nenna ekki að leggja vinnu í þá sjálfir!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 10. Mar 2008 13:43 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Posts: 3217
Location: Vesturbærinn
Þessi umræða kemur alltaf við og við upp og á að sjálfsögðu að mörgu leyti rétt á sér.
Ég held reyndar eins og einhver bendir á hérna ofar að þessi umræða sem og kosningar, framboð og annað slíkt á miklu frekar heima undir einka spjalli Meðlima heldur en hérna undir Off-topic.

BMWKraftur hefur einfaldlega þróast heilmikið á þeim tíma sem hann hefur verið til. Upprunalega var þetta póstlisti (fyrir minn tíma) sem síðan þróaðist í spjallborð og svo framvegis. Til þess að tryggja að klúbburinn myndi halda áfram að þróast í þá átt sem stofnendur hans vildu sjá var ákveðið að stofnendurnir sjálfir myndu vera í stjórn og ráða ferðinni.
Hugmyndin að einhverjir gætu orðið meðlimir til að styrkja starf klúbbsins kom til vegna þess að mönnum var farið að langa að gera ýmsa hluti sem kosta peninga (prenta boli, límmiða, númeraplötur,,,) og erfitt var fyrir stjórnendur að leggja út fyrir því sjálfir - og það er alltaf frekar erfitt að rukka alla fyrirfram fyrir slíkar aðgerðir.

Það var því talið mjög sniðugt að klúbburinn ætti einhverja peninga milli handanna til að geta látið hluti gerast, og í staðinn fá meðlimir alla hluti, skemmtanir og slíkt ódýrar en aðrir, fyrir utan að þeir fá sinn pening hæglega til baka með þeim afsláttum og öðru sem klúbburinn verður þeim útum.

Anyway.

Það er alveg satt að það má alveg fara að endurskoða þetta núna.
Klúbburinn hefur blómstrað algjörlega í fjölda meðlima, fjölda notenda á spjallinu og svo framvegis og er kominn í mjög fast form. Við höfum gjarnan viljað fá ferkst blóð inn með því t.d. að stofna nefndir en ég sé ekkert því til fyrirstöðu ef að menn hafa áhuga á því að stýra klúbbnum meira að þeir geti komist í slíkar stöður. Aðkoma mín að klúbbnum hefur til að mynda farið minnkandi með tímanum og snýst að mestu leyti um það í dag að halda spjallborðinu og vefsíðunni gangandi.

Það fyndna er að í flest skipti sem menn eru að kvarta yfir þessu stjórnunarmynstri er það einmitt þannig að þeir sömu hafa ekki sjálfir áhuga á því að taka í taumana. Það er spurning ef að það eru einhverjir sem hafa kraftinn í þetta að þeir láti í sér heyra.

_________________
BMW E46 328i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 10. Mar 2008 13:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Núverandi fyrirkomulag er í fínu lagi, góð starfsemi og skynsamir menn sem stjórna hlutunum.

Það er þessum mönnum aðallega að þakka að þetta spjall er ekki dottið í l2c fílinginn og öðrum dyggum meðlimum.

Ef það vantar menn í stjórn eða nefndir þá er ég til í að taka að mér einhver störf ef vantar.

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 10. Mar 2008 19:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
arnib wrote:
Þessi umræða kemur alltaf við og við upp og á að sjálfsögðu að mörgu leyti rétt á sér.
Ég held reyndar eins og einhver bendir á hérna ofar að þessi umræða sem og kosningar, framboð og annað slíkt á miklu frekar heima undir einka spjalli Meðlima heldur en hérna undir Off-topic.

BMWKraftur hefur einfaldlega þróast heilmikið á þeim tíma sem hann hefur verið til. Upprunalega var þetta póstlisti (fyrir minn tíma) sem síðan þróaðist í spjallborð og svo framvegis. Til þess að tryggja að klúbburinn myndi halda áfram að þróast í þá átt sem stofnendur hans vildu sjá var ákveðið að stofnendurnir sjálfir myndu vera í stjórn og ráða ferðinni.
Hugmyndin að einhverjir gætu orðið meðlimir til að styrkja starf klúbbsins kom til vegna þess að mönnum var farið að langa að gera ýmsa hluti sem kosta peninga (prenta boli, límmiða, númeraplötur,,,) og erfitt var fyrir stjórnendur að leggja út fyrir því sjálfir - og það er alltaf frekar erfitt að rukka alla fyrirfram fyrir slíkar aðgerðir.

Það var því talið mjög sniðugt að klúbburinn ætti einhverja peninga milli handanna til að geta látið hluti gerast, og í staðinn fá meðlimir alla hluti, skemmtanir og slíkt ódýrar en aðrir, fyrir utan að þeir fá sinn pening hæglega til baka með þeim afsláttum og öðru sem klúbburinn verður þeim útum.

Anyway.

Það er alveg satt að það má alveg fara að endurskoða þetta núna.
Klúbburinn hefur blómstrað algjörlega í fjölda meðlima, fjölda notenda á spjallinu og svo framvegis og er kominn í mjög fast form. Við höfum gjarnan viljað fá ferkst blóð inn með því t.d. að stofna nefndir en ég sé ekkert því til fyrirstöðu ef að menn hafa áhuga á því að stýra klúbbnum meira að þeir geti komist í slíkar stöður. Aðkoma mín að klúbbnum hefur til að mynda farið minnkandi með tímanum og snýst að mestu leyti um það í dag að halda spjallborðinu og vefsíðunni gangandi.

Það fyndna er að í flest skipti sem menn eru að kvarta yfir þessu stjórnunarmynstri er það einmitt þannig að þeir sömu hafa ekki sjálfir áhuga á því að taka í taumana. Það er spurning ef að það eru einhverjir sem hafa kraftinn í þetta að þeir láti í sér heyra.


Nei sko .. arnib á ögurstundu

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 10. Mar 2008 20:35 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Posts: 3217
Location: Vesturbærinn
Alpina wrote:
Nei sko .. arnib á ögurstundu


Þetta er nú bara klassískt dæmi um þessar umræður.

Þú kemur umræðunni af stað, en hefur hvorki áhuga á þessum störfum sjálfur - né heldur neitt málefnalegt fram að færa.

_________________
BMW E46 328i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 10. Mar 2008 22:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
arnib wrote:
Alpina wrote:
Nei sko .. arnib á ögurstundu


Þetta er nú bara klassískt dæmi um þessar umræður.

Þú kemur umræðunni af stað, en hefur hvorki áhuga á þessum störfum sjálfur - né heldur neitt málefnalegt fram að færa.


Var að kíkja á profílinn þinn,,

aðeins í febrúar,, smá í jan og des 2007

síðan oct 2007 og svo JÚNI áhugi hvað

Bæði þú Óskar Daðason og Birkir sem eruð æviráðnir ,, að eigin frumkvæði .. geta varla talist mjög virkir á spjallborðinu,,

M/// er með bilað lyklaborð þar sem svörin eru það stutt og skýr að ég get ekki trúað öðru en örfáir takkar virka..

Birkir er mjög prúðmælskur hérna og tjáir sig ,, ekki mikið..

arnib...................... langt síðan síðast,, var mjög virkur í den

þó að ég sé ekki að sækjast eftir neinu eða neinu í þessu .. þá ættu þeir sem eru í stjórninni að sýna sig sem oftast á samkomum og þessháttar
vera sýnilegir innann um þá sem eru að stunda þetta spjallborð..
og hafa áhuga á BMW og því sem tengist þeim bílum.

þegar ég minntist á ívilnun.. var ekki minnst á BEINGREIÐSLU.. en það var eitthvað sem sumir túlkuðu ,, Meira en sanngjarnt væri að menn fengju gratis á árshátið osfrv ,, bjórkvöld,, bla blablabla, leikdag osfrv,
Þó að þetta sé áhugamannafélag finnst mér sjálfsagt að gert sé eitthvað fyrir vel unninn störf,, fyrir þá aðila sem þau stunda
Vil gjarnan taka það fram að þeir sem hafa komið fram í nafni skemmtinefndar ,, hafa virkilega að mínu mati gert góða hluti og verið með frjóa dagskrárliði,, svo sem á Akstursbrautinni ,sé dæmi tekið


Algerlega óþarfi að koma inn á í seinni hálfleik og sína bara varnartilburði
Eðlilegt er að það komi doði yfir alla og menn missi áhuga ,,
en tilhvers að sitja sem fastast ef hugurinn liggur annars-staðar

Finnst eins og menn túlki að ég sé með einhvern einkahernað gegn stjórn
Kraftsins,,
Ég frábið mig slíka firru ..menn ættu að þekkja mig það vel að ég ber engann kala eða eitthvað slíkt til þeirra.. Ég þori þó að opna túlann og segja og spyrja,, nenni ekki kafbátahernaði
Þó að umræðan hafi opnast af minni hálfu og menn séu sammála eða ósammála að öllu eða einhverju leiti,,
Þá er spurt af minni hálfu......??
það er þó byrjunin ........ eða hvað

Búið :wink:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 10. Mar 2008 22:53 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sun 03. Oct 2004 19:08
Posts: 645
Location: Akureyri
Hehehehe...ef þér, Alpina, finnst ekkert að núverandi stjórn, og hefur ekki áhuga á þessu starfi, afhverju varstu þá að byrja á þessum umræðum?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 10. Mar 2008 22:55 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Posts: 3828
Location: California
Freyr Gauti wrote:
Hehehehe...ef þér, Alpina, finnst ekkert að núverandi stjórn, og hefur ekki áhuga á þessu starfi, afhverju varstu þá að byrja á þessum umræðum?



TEAM WANNA??????

_________________
2016 BMW X3 sDrive28i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 10. Mar 2008 23:19 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Posts: 3217
Location: Vesturbærinn
Þetta er nú bara hálf fáranlegt svar hjá þér Alpina,

Ég var að enda við að segja að mín aðkoma að kraftinum færi minnkandi, og þá kemur þú beint á eftir og ferð að skjóta á að ég sé sjaldan hérna?


Ég tók vel í hugmyndina að breyta þessu eitthvað, en þú talar eins og ég hafi farið í vörn,..

Lastu póstinn minn??

_________________
BMW E46 328i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. Mar 2008 00:03 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Ég er ekki sammála því að Sveinbjörn hafi neitt til málana að leggja.

Hann var að starta þessum þræði til að ympra á því hvort ekki væri eðlilegra að hafa kosningu í embætti í þessum félagsskap. Mér finnst það sýna málefnalega skoðun og sterkt og þroskað innlegg á þetta spjallborð.

Þó svo að einhver hafi ekki áhuga á að taka þátt í stjórnunarstörfum, þá þýðir það ekki að hann hafi ekki áhuga á félagsmálum. Það eru ekki allir sem vilja taka þátt í stjórnun, en hafa samt mikinn áhuga á félagsmálum og mjög virkir í þáttöku viðkomandi starfs. Ég myndi flokka Sveinbjörn (Alpina) sem slíkan einstakling.

Ég segi fyrir mína parta að ég hef ekki hug á að gegna trúnaðarstörfum í félagsskap á öðru sviði sem snertir mig töluvert, en ég hef mikinn áhuga á að starfið þar gangi vel. Mæti á fundi og stend reglulega upp og segi skoðun mína.

Það eru ekki allir sem vilja stjórna, þó svo þeir vilji taka þátt og leggja sitt af mörkum. Sumir telja sig ekki vel til fallna til að koma fram opinberlega, sumir hafa ekki tíma, sumir treysta sér ekki osfrvs. En það gerir þá að engu minni í því að hafa rétt til þess að gagnrýna og benda á það sem betur má fara.

Það er ekki stjórnin á þessu spjallborði sem heldur þessum félagsskap uppi. Það eru allir sem stunda þetta af heilum hug og áhuga. Mæta á samkomur, skrifa skemmtilegar greinar og komment. Eiga áhugaverða bíla og setja inn greinar um þá. Eru ekki hér inni til að rífa niður það sem aðrir skrifa með bulli og eða leiðindum. Heldur hafa þroska til að gera þetta að stað sem verður öðrum til ánægju.

Ég held að Sveinbirni gangi ekkert til í þá átt að agnúast út í núverandi stjórn, allavega tek ég því ekki þannig. Mér finnst þó að sumir stjórnendur taki þessu sem árás á sig.

Einnig finnst mér að Sveinbjörn sé aðeins að misskilja hlutverk stjórnenda. Það er ekkert sem segir að fólk geti ekki verið í stjórn ÁN þess að vera virkt í starfi klúbbsins. Á meðan fólk er ekki að gera neitt, þá er ekkert slæmt að gerast. EN það verður þá að vera fólk í staðin sem gerir eitthvað. Það væri slæmt ef allir í stjórninni gerðu ekkert!

Það er þarna sem ég er sammála Sveinbirni með að hafa kosna stjórn. Ef reglulega kemur inn nýtt fólk, þá endurnýjast sá þróttur sem einkennir stjórnunina. Það er til að fólki endist eldmóðurinn ár eftir ár, en oftar er það svo að það dofnar aðeins yfir honum með tímanum.

Ég segi fyrir mig að ég hef móral yfir því að vera ekki eins duglegur og sumir í þáttöku í hinum ýmsu viðburðum okkar. Sumir stjórnendur hér eig mikið hrós og hól skilið fyrir sýna þessu spjallborði okkar ótæmandi áhuga og gefa vinnu sína í að halda þessu uppi. Ég myndi glaður gefa öðrum tækifæri til að taka við mínum kyndli til að hlaupa með hann lengra því ég er ekki með sama hraða og í upphafi hérna. Ég tel mig þó enn labba í rétta átt og hef gaman af því að taka þátt í þessu. En ég finn þó hvernig ég nenni ekki eins miklu og í byrjun. Þess vegna vil ég endilega sjá nýtt blóð sem drífur kraftinn áfram.

Ekki misskilja mig á þann hátt að ég vilji komast út úr stjórninni, það er ekki það sem ég er að meina. Það sem ég er að meina er að ef það mættu bara vera hér segjum 10 manns í trúnaðarstörfum, þá fyndist mér það frekt af mér að taka eitt af þessum sætum ef það væri þróttmeiri og hæfari einstaklingur sem gæti gert kraftinum meira gott en ég. En á meðan þetta er eins og það er núna, þá finnst mér ég ekki vera að sitja eins og ormur á gulli. Ég vil bara koma því á framfæri að ég fagna nýju blóði í stjórn þessa félagsskapar og mun glaður láta mitt sæti af hendi ef þess er óskað og það má vera til þess að krafturinn verði betri.

Ég hvet alla sem skrifa hér inn að nota þetta tækifæri til að koma með heilbrigð skilaboð um stjórnun kraftsins, ekki til að fara að rífast, off-topica eða fara í persónuleg skrif.

Mér finnst þetta löngu tímabært, að heyra aðeins hvað YKKUR finnst um þetta. Endilega segið okkur hvað þið viljið. Ég er að tala um ykkur þarna skemmtilegu sem skrifið oft, sjaldan eða aldrei, en lesið þetta á hverjum degi ef þið eruð nálægt tölvu. Án ykkar væri þetta hundleiðinlegt og ómögulegt.

Að lokum mælist ég til að þetta verði flutt á stað sem meðlimir einir geta lesið þetta.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. Mar 2008 07:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
///M wrote:
Freyr Gauti wrote:
Hehehehe...ef þér, Alpina, finnst ekkert að núverandi stjórn, og hefur ekki áhuga á þessu starfi, afhverju varstu þá að byrja á þessum umræðum?



TEAM WANNA??????

Þú ert alltaf jafn langorður

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 11. Mar 2008 07:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
arnib wrote:
Þetta er nú bara hálf fáranlegt svar hjá þér Alpina,

Ég var að enda við að segja að mín aðkoma að kraftinum færi minnkandi, og þá kemur þú beint á eftir og ferð að skjóta á að ég sé sjaldan hérna?


Ég tók vel í hugmyndina að breyta þessu eitthvað, en þú talar eins og ég hafi farið í vörn,..

Lastu póstinn minn??


:shock:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 45 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 29 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group