bebecar wrote:
Fjarki wrote:
Hugsuðu svona hvernig.? Hverju breytir það að þið séuð að væla að einhverjir séu með há lán á dóti sem þeir kaupa sér.? Fer samfélagið eitthvað minna til fjandans við það.? Ég er ekki að segja að allir eigi að vera með allt á bullandi lánum í mínus. Ég er bara að benda á það að við eigum ekkert að vera nöldra í þeim sem hafa þetta svona. Við breytum ekkert einhverju sem er skeð nú þegar. Sumir kjósa að hafa þetta svona.
Ótrúlegt nazista ríki sem sumir vilja hafa. Bara stjórna öllu hvernig fólk gerir hlutina.
Ég hef nú ákveðna samúð með þínu sjónarmiði enda mikið á móti hverskonar forsjárhyggju. EN, þetta er bara ekki svona einfalt því það geta verið veruleg áhrif af því ef fólk stendur ekki undir því að borga af "eignunum" sínum. það er ekki nema eitt og hálft ár í að bankarnir geti hækkað vextina á húsnæðislánunum - ímyndið ykkur hvað gerist hjá þeim sem tóku 100% lán!
Það er náttúrulega ekki við neinn að sakast annan en fólkið sem hefur farið þessa leið, jú og kannski foreldra og skort á kennslu í almennri skynsemi. Bankarnir hefðu svo líklegast átt að gæta þess viðskiptavinir séu borgunarmenn fyrir lánunum.
En reynið að sjá þetta fyrir ykkur aðeins: úr 4,15% í kannski 6,5% vexti. Hvað myndi greiðslubyrðin hækka á mánuði á láni sem stóð í 25 milljónum þegar það var tekið? Ég er því miður ekki sérlega flynkur í að reikna svona en ég myndi giska á 70 þúsund á mánuði, miðað við 2,5% verðbólgu. Og það gerist með nánast einu pennastriki.
Endilega leiðréttið ef þið kunnið að reikna svona út
Það segir sig sjálft að þá er kominn upp óþægileg staða fyrir fjölda fjölskyldna, einskonar sjálftilbúnir fjötrar - við þetta bætast svo bílar, sumarhús og önnur neyslulán. Og hvað er það fyrsta sem fólk losar sig við til að standa undir þessu - líklegast bílarnir sem eru að því er virðist nú þegar veðsettir í topp.
Já, og samfélagið færi þar af leiðandi minna til fjandans ef fólk hugsaði aðeins fram á við og hefði varan á sér - nú eða hugsaði aðeins um söguna og gerði sér grein fyrir að lífið er ekki stöðug uppsveifla.[/quote]
Ég er sko alveg að sjá stöðuna fyrir mér sem margir eru og munu lenda í. En það er þetta að vera nölla í einhverjum, jafnvel einhverjum sem þú kannast ekki við um lánið á húsinu hans, bílnum hans, bústaðnum hans, leiktækjunum hans og öllu draslinu. En haldiði að hann skipti um skoðun ef þið nöllið. Heyrðu já, þetta er rétt hjá þeim, þetta er alger vitleysa, ætla bara losa mig við draslið og flytja bara aftur í Breiðholtið og fá mér gamla Corollu.
Það er eflaust fullt af fólki undir venjulegum kringumstæðum sem mun aldrei geta fengið sér bíl sem þeim langar í, hús sem þau þurfa eða langar í, eða bara snjósleðann sem leiktæki ef þau ættu að safna fyrir. Og taka minimal lán fyrir fyrir. Eða þá bara yfir ævina bara geta látið einn draum rætast. Maður lifir bara einu sinni, maður á að gera það sem maður getur og langar til, ef maður þarf að taka lán fyrir einhverju af því þá stoppar það mig ekki.
kv, Kristján