bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 25. Jun 2025 22:43

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 91 posts ]  Go to page Previous  1 ... 3, 4, 5, 6, 7  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 00:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Kaupverð: + 3.000.000 kr.
Vextir: (Verðtryggt) 10,1 %
Innborgun: - 0 kr.
Hlutfallstala kostnaðar: 12,75 %
Stofngjald ( 3,5 %): + 110.576 kr.
Lánshlutfall: 100 %
Stimpilgjald (1,5 %): + 47.400 kr.
Heildarkostnaður: 1.302.043 kr.
Þinglýsingarkostnaður: + 1.350 kr.
Lánsupphæð: = 3.159.326 kr.
Meðalgreiðsla er: 51.214kr.

Æðislegt 1.3 millur í ekki neitt.
Þetta þýðir það sama þótt að menn séu að borga af öðrum bílum seinna svipaða upphæð,. maður er alltaf að borga vexti.
Semsagt eiga bíl á lánum sem er verið að greiða cirka 50-55k á mánuði og er nálægt 100% láni.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Last edited by gstuning on Sun 03. Feb 2008 00:58, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 00:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
Fjarki wrote:
Fór inná vef Glitnis, sló inn 3 milljón króna lán í 100% íslenskri mynt.

Vextirnir á mánuði er vel undir 30 þúsund krónum á mánuði. Hvernig færðu út hálfa milljón á ári í vexti??

http://www.glitnirfjarmognun.is/Einstak ... fault.aspx


Óverðtryggt vs. verðtryggt?

allir vilja græða...
http://www.sp.is/spportal/Template2.asp ... wnPayment=

_________________
Carrera4 964 '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 00:59 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Thu 11. Mar 2004 15:51
Posts: 300
gstuning wrote:
Kaupverð: + 3.000.000 kr.
Vextir: (Verðtryggt) 10,1 %
Innborgun: - 0 kr.
Hlutfallstala kostnaðar: 12,75 %
Stofngjald ( 3,5 %): + 110.576 kr.
Lánshlutfall: 100 %
Stimpilgjald (1,5 %): + 47.400 kr.
Heildarkostnaður: 1.302.043 kr.
Þinglýsingarkostnaður: + 1.350 kr.
Lánsupphæð: = 3.159.326 kr.
Meðalgreiðsla er: 51.214kr.

Æðislegt 1.3 millur í ekki neitt.


Já auðvitað er það ömurlegt, en það má heldur ekki gleyma því að það eru sárafáir sem taka svona há lán til þetta langs tíma sem eiga bílinn allann lánstímann. Ekki það þú ert alltaf að henda peningum útum gluggann þegra þú færð lánað.

_________________
Kristján


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 01:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
mér finnst bara vitleysa að halda því fram að maður eigi ekki bílin ef maður skuldar í honum,

maður fær allavega svo sannarlega að halda bílnum við og hugsa um hann sem eigandi. þegar ég sit undir stýri finnst mér bíllinn ekki neitt öðruvísi í akstri þótt ég skuldi í honum,

.þetta var voða issue hjá mér að eiga sem mest í bílunum.. þangað til ég skipti um skoðun, og sé mér engan gróða í því að liggja með allan peningin minn í bílnum.. ég hef veðsett bíla sem ég á, og endurfjármagnað bíla sem ég hef átt eignahlut í. og finnst ekkert af því.

einu tækin sem ég vill ekki skulda mikið í eru sona sunnu-sunnudags ísbíls hobbý einhver eins og camaroinn minn,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 02:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
en hvað ef ég versla með kreditkorti...... :lol:

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 11:03 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Fjarki wrote:
Hugsuðu svona hvernig.? Hverju breytir það að þið séuð að væla að einhverjir séu með há lán á dóti sem þeir kaupa sér.? Fer samfélagið eitthvað minna til fjandans við það.? Ég er ekki að segja að allir eigi að vera með allt á bullandi lánum í mínus. Ég er bara að benda á það að við eigum ekkert að vera nöldra í þeim sem hafa þetta svona. Við breytum ekkert einhverju sem er skeð nú þegar. Sumir kjósa að hafa þetta svona.

Ótrúlegt nazista ríki sem sumir vilja hafa. Bara stjórna öllu hvernig fólk gerir hlutina.


Ég hef nú ákveðna samúð með þínu sjónarmiði enda mikið á móti hverskonar forsjárhyggju. EN, þetta er bara ekki svona einfalt því það geta verið veruleg áhrif af því ef fólk stendur ekki undir því að borga af "eignunum" sínum. það er ekki nema eitt og hálft ár í að bankarnir geti hækkað vextina á húsnæðislánunum - ímyndið ykkur hvað gerist hjá þeim sem tóku 100% lán!

Það er náttúrulega ekki við neinn að sakast annan en fólkið sem hefur farið þessa leið, jú og kannski foreldra og skort á kennslu í almennri skynsemi. Bankarnir hefðu svo líklegast átt að gæta þess viðskiptavinir séu borgunarmenn fyrir lánunum.

En reynið að sjá þetta fyrir ykkur aðeins: úr 4,15% í kannski 6,5% vexti. Hvað myndi greiðslubyrðin hækka á mánuði á láni sem stóð í 25 milljónum þegar það var tekið? Ég er því miður ekki sérlega flynkur í að reikna svona en ég myndi giska á 70 þúsund á mánuði, miðað við 2,5% verðbólgu. Og það gerist með nánast einu pennastriki.

Endilega leiðréttið ef þið kunnið að reikna svona út :D

Það segir sig sjálft að þá er kominn upp óþægileg staða fyrir fjölda fjölskyldna, einskonar sjálftilbúnir fjötrar - við þetta bætast svo bílar, sumarhús og önnur neyslulán. Og hvað er það fyrsta sem fólk losar sig við til að standa undir þessu - líklegast bílarnir sem eru að því er virðist nú þegar veðsettir í topp.

Já, og samfélagið færi þar af leiðandi minna til fjandans ef fólk hugsaði aðeins fram á við og hefði varan á sér - nú eða hugsaði aðeins um söguna og gerði sér grein fyrir að lífið er ekki stöðug uppsveifla.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 12:30 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Posts: 3939
Location: London
bebecar wrote:
En reynið að sjá þetta fyrir ykkur aðeins: úr 4,15% í kannski 6,5% vexti. Hvað myndi greiðslubyrðin hækka á mánuði á láni sem stóð í 25 milljónum þegar það var tekið? Ég er því miður ekki sérlega flynkur í að reikna svona en ég myndi giska á 70 þúsund á mánuði, miðað við 2,5% verðbólgu. Og það gerist með nánast einu pennastriki.


Þetta er nú kannski svolítið vel í lagt, en þó er þetta um 50 þúsund krónur mv. þessar forsendur.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 12:55 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
Svezel wrote:
en hvað ef ég versla með kreditkorti...... :lol:


Þá áttu ekki hlutina sem þú keyptir fyrr en á næsta kortatímabili...............nema þú hafir borgað hluta af þeim með peningum :lol: :wink:

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 13:29 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 07. Dec 2006 16:53
Posts: 2389
Location: keflavik
gstuning wrote:
Kaupverð: + 3.000.000 kr.
Vextir: (Verðtryggt) 10,1 %
Innborgun: - 0 kr.
Hlutfallstala kostnaðar: 12,75 %
Stofngjald ( 3,5 %): + 110.576 kr.
Lánshlutfall: 100 %
Stimpilgjald (1,5 %): + 47.400 kr.
Heildarkostnaður: 1.302.043 kr.
Þinglýsingarkostnaður: + 1.350 kr.
Lánsupphæð: = 3.159.326 kr.
Meðalgreiðsla er: 51.214kr.

Æðislegt 1.3 millur í ekki neitt.
Þetta þýðir það sama þótt að menn séu að borga af öðrum bílum seinna svipaða upphæð,. maður er alltaf að borga vexti.
Semsagt eiga bíl á lánum sem er verið að greiða cirka 50-55k á mánuði og er nálægt 100% láni.


segiru það sama um húsnæðislánið þitt??????

_________________
BMW 525D E61 07 Facelift


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 13:31 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Thu 11. Mar 2004 15:51
Posts: 300
bebecar wrote:
Fjarki wrote:
Hugsuðu svona hvernig.? Hverju breytir það að þið séuð að væla að einhverjir séu með há lán á dóti sem þeir kaupa sér.? Fer samfélagið eitthvað minna til fjandans við það.? Ég er ekki að segja að allir eigi að vera með allt á bullandi lánum í mínus. Ég er bara að benda á það að við eigum ekkert að vera nöldra í þeim sem hafa þetta svona. Við breytum ekkert einhverju sem er skeð nú þegar. Sumir kjósa að hafa þetta svona.

Ótrúlegt nazista ríki sem sumir vilja hafa. Bara stjórna öllu hvernig fólk gerir hlutina.


Ég hef nú ákveðna samúð með þínu sjónarmiði enda mikið á móti hverskonar forsjárhyggju. EN, þetta er bara ekki svona einfalt því það geta verið veruleg áhrif af því ef fólk stendur ekki undir því að borga af "eignunum" sínum. það er ekki nema eitt og hálft ár í að bankarnir geti hækkað vextina á húsnæðislánunum - ímyndið ykkur hvað gerist hjá þeim sem tóku 100% lán!

Það er náttúrulega ekki við neinn að sakast annan en fólkið sem hefur farið þessa leið, jú og kannski foreldra og skort á kennslu í almennri skynsemi. Bankarnir hefðu svo líklegast átt að gæta þess viðskiptavinir séu borgunarmenn fyrir lánunum.

En reynið að sjá þetta fyrir ykkur aðeins: úr 4,15% í kannski 6,5% vexti. Hvað myndi greiðslubyrðin hækka á mánuði á láni sem stóð í 25 milljónum þegar það var tekið? Ég er því miður ekki sérlega flynkur í að reikna svona en ég myndi giska á 70 þúsund á mánuði, miðað við 2,5% verðbólgu. Og það gerist með nánast einu pennastriki.

Endilega leiðréttið ef þið kunnið að reikna svona út :D

Það segir sig sjálft að þá er kominn upp óþægileg staða fyrir fjölda fjölskyldna, einskonar sjálftilbúnir fjötrar - við þetta bætast svo bílar, sumarhús og önnur neyslulán. Og hvað er það fyrsta sem fólk losar sig við til að standa undir þessu - líklegast bílarnir sem eru að því er virðist nú þegar veðsettir í topp.

Já, og samfélagið færi þar af leiðandi minna til fjandans ef fólk hugsaði aðeins fram á við og hefði varan á sér - nú eða hugsaði aðeins um söguna og gerði sér grein fyrir að lífið er ekki stöðug uppsveifla.[/quote]

Ég er sko alveg að sjá stöðuna fyrir mér sem margir eru og munu lenda í. En það er þetta að vera nölla í einhverjum, jafnvel einhverjum sem þú kannast ekki við um lánið á húsinu hans, bílnum hans, bústaðnum hans, leiktækjunum hans og öllu draslinu. En haldiði að hann skipti um skoðun ef þið nöllið. Heyrðu já, þetta er rétt hjá þeim, þetta er alger vitleysa, ætla bara losa mig við draslið og flytja bara aftur í Breiðholtið og fá mér gamla Corollu.

Það er eflaust fullt af fólki undir venjulegum kringumstæðum sem mun aldrei geta fengið sér bíl sem þeim langar í, hús sem þau þurfa eða langar í, eða bara snjósleðann sem leiktæki ef þau ættu að safna fyrir. Og taka minimal lán fyrir fyrir. Eða þá bara yfir ævina bara geta látið einn draum rætast. Maður lifir bara einu sinni, maður á að gera það sem maður getur og langar til, ef maður þarf að taka lán fyrir einhverju af því þá stoppar það mig ekki.

kv, Kristján

_________________
Kristján


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 14:42 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
aron m5 wrote:
gstuning wrote:
Kaupverð: + 3.000.000 kr.
Vextir: (Verðtryggt) 10,1 %
Innborgun: - 0 kr.
Hlutfallstala kostnaðar: 12,75 %
Stofngjald ( 3,5 %): + 110.576 kr.
Lánshlutfall: 100 %
Stimpilgjald (1,5 %): + 47.400 kr.
Heildarkostnaður: 1.302.043 kr.
Þinglýsingarkostnaður: + 1.350 kr.
Lánsupphæð: = 3.159.326 kr.
Meðalgreiðsla er: 51.214kr.

Æðislegt 1.3 millur í ekki neitt.
Þetta þýðir það sama þótt að menn séu að borga af öðrum bílum seinna svipaða upphæð,. maður er alltaf að borga vexti.
Semsagt eiga bíl á lánum sem er verið að greiða cirka 50-55k á mánuði og er nálægt 100% láni.


segiru það sama um húsnæðislánið þitt??????


húsið mitt fellur allaveganna ekki í verði á hverju ári ;)

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 14:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Posts: 6493
Location: Hrafnista
Þið eruð enn að já...Þetta er verk fyrir nokkra vælubíla :lol:

En þetta er nú ekki svona slæmt eins og þið haldið,Þeir sem stunda þetta og kunna þeir fylgjast með genginu og breyta í ísl og erlent eftir stöðu þess og geta með því eignast hundruði þúsunda oft á tíðum.

Sé ekki tala um að það er með öllu vonlaust að selja lánlausann eða lítið veðsettan bíl.
Þessvegna á maður að setja sem mest lán á þá til að eiga möguleika að losa þá aftur :wink:

Ég segi áfram bílalán 8)

_________________
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 14:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
///MR HUNG wrote:
En þetta er nú ekki svona slæmt eins og þið haldið,Þeir sem stunda þetta og kunna þeir fylgjast með genginu og breyta í ísl og erlent eftir stöðu þess og geta með því eignast hundruði þúsunda oft á tíðum.

Sé ekki tala um að það er með öllu vonlaust að selja lánlausann eða lítið veðsettan bíl.
Þessvegna á maður að setja sem mest lán á þá til að eiga möguleika að losa þá aftur :wink:

Ég segi áfram bílalán 8)



Auðvitað verða að vera bílalán.. það sem ég og sumir benda á er greyðsluþyngdin er oft að sliga fólkið,, aka wannabe og be
vextirnir vega virkilega þungt,, en fyrir margann almúgann er vonlaust að eignast farartæki nema með láni,, það er staðreynd

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 15:06 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 07. Dec 2006 16:53
Posts: 2389
Location: keflavik
gstuning wrote:
aron m5 wrote:
gstuning wrote:
Kaupverð: + 3.000.000 kr.
Vextir: (Verðtryggt) 10,1 %
Innborgun: - 0 kr.
Hlutfallstala kostnaðar: 12,75 %
Stofngjald ( 3,5 %): + 110.576 kr.
Lánshlutfall: 100 %
Stimpilgjald (1,5 %): + 47.400 kr.
Heildarkostnaður: 1.302.043 kr.
Þinglýsingarkostnaður: + 1.350 kr.
Lánsupphæð: = 3.159.326 kr.
Meðalgreiðsla er: 51.214kr.

Æðislegt 1.3 millur í ekki neitt.
Þetta þýðir það sama þótt að menn séu að borga af öðrum bílum seinna svipaða upphæð,. maður er alltaf að borga vexti.
Semsagt eiga bíl á lánum sem er verið að greiða cirka 50-55k á mánuði og er nálægt 100% láni.


segiru það sama um húsnæðislánið þitt??????


húsið mitt fellur allaveganna ekki í verði á hverju ári ;)


okey :wink:

_________________
BMW 525D E61 07 Facelift


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 03. Feb 2008 17:32 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Fjarki wrote:

Það er eflaust fullt af fólki undir venjulegum kringumstæðum sem mun aldrei geta fengið sér bíl sem þeim langar í, hús sem þau þurfa eða langar í, eða bara snjósleðann sem leiktæki ef þau ættu að safna fyrir. Og taka minimal lán fyrir fyrir. Eða þá bara yfir ævina bara geta látið einn draum rætast. Maður lifir bara einu sinni, maður á að gera það sem maður getur og langar til, ef maður þarf að taka lán fyrir einhverju af því þá stoppar það mig ekki.

kv, Kristján


Þetta finnst mér nú ansi furðuleg fullyrðing. Ef maður hefur efni á því að borga himinháa vexti og önnur lántökugjöld af hverju ætti maður þá ekki að hafa efni á því að bíða í smá tíma og safna sér fyrir hlutnum?

Tala nú ekki um þegar vextir eru í hæstu hæðum eins og núna, að taka kannski 3-4 ára lán á föstum vöxtum er náttúrulega alveg ótrúlega óskynsamlegt.

Það er ekki skrítið að margt ungt fólk sé í vandræðum þegar fjármálaþekking fólks er eins takmörkuð og raun ber vitni.

Skelli inn einni frétt af mbl.is:

mbl.is wrote:
Ungt fólk sem skuldar marga tugi milljóna króna er meðal þeirra rúmlega 600 sem leituðu aðstoðar hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna í fyrra. Unga fólkið hefur gengið á milli lánastofnana og alls staðar fengið lán, að sögn Ástu Sigrúnar Helgadóttur, forstöðumanns ráðgjafarstofunnar.

„Fyrir utan húsnæðislánin sem fólk hefur tekið vegna íbúðarkaupa hefur það tekið neyslulán í miklum mæli. Það kaupir sér bíla og fer í ferðir til útlanda en þegar harðnar á dalnum sér það fram á að það ræður ekki við afborganirnar,“ greinir Ásta frá.

Hún vill efla fjármálafræðslu og segir að slík fræðsla eigi að vera námsgrein í skólum. „Fólk ber meira en áður fyrir sig vankunnáttu í fjármálum. Við teljum mikla nauðsyn á að efla þekkingu á þessu sviði.“

Framundan er eitt annasamasta tímabilið hjá ráðgjafarstofunni miðað við reynslu fyrri ára þar sem margir sjá fram á greiðsluerfiðleika þegar gera þarf upp kreditkortareikningana vegna útgjaldanna um jólin. „Vandamálið er hversu seint fólk kemur. Því lengur sem fólk er í vanskilum, þeim mun meiri verður allur kostnaður.“


Bara svona til að fyrirbyggja allan misskilning þá er ætlunin alls ekki að „dissa“ þá sem kjósa að taka sér lán, heldur einungis að benda á að það að taka lán fyrir öllu mögulegu og ómögulegu er líklegast ekki hagkvæmasta leiðin til að eignast það sem manni langar í. En ef fólk kýs þessa leið þá er það þeirra val.

_________________
BMW E34 525iA '95


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 91 posts ]  Go to page Previous  1 ... 3, 4, 5, 6, 7  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 51 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group