saemi wrote:
fart wrote:
saemi wrote:
En það er svolítið asnalegt að segja að maður "eigi bíl með láni á".... þá er maður eiginlega með bílinn að láni, maður á hann ekki
Þetta er tæki sem virkar.... ekki spurning.
Æ common Sæmi. Hvað með að kaupa sér íbúð, ef maður staðgreiðir ekki er maður þá bara með íbúðina í láni?
Ef bíllinn/ íbúðin er á þínu nafni þá áttu það, alveg sama hvort þú eigir það ekki 100%.
Ef þú leigir þá leigir þú. Ef þú kaupir þá áttu því þú ert að taka eigendaáhættuna.
Að eiga snýst um eignaréttinn. Svo lengi sem menn borga afborganir af bíl sem er á 100% eru þeir eigendur bílsins.
Ég hefði kannski átt að orða þetta betur. Bílar sem eru á 100% láni, yfirtökubílarnir. Það er það sem ég á við.
Það er ekki þannig í Íbúðarmálum (eða á ekki að vera þannig réttara sagt), enda bankarnir hættir að lána 100%
Mér finnst kjánalegt að gaur segist eiga bíl sem hann er með á 100% láni .....
En.. öllum er frjálst að hafa sínar skoðanir!

Jújú..
En getur einhver lánadrottinn labbað að 100% skuldsettum bíl í skilum og tekið hann, nei því hann er ekki Eigandi bílsins. Ekkert sem bannar það að hafa skoðanir á hlutunum samt..
Ef bílinn er notaður við eitthvað brot, í hvern er hringt? Eiganda bílsins eða bankann?
Ég held að þú hljótir að vera að rangtúlka orðið "eigandi" því eins og ég sagði áðan þá snýst það um þann sem hefur ráðstöfunarrétt á hlutnum.
Mér finnst kanski bara leiðinlegt þegar menn tala nett niður til þerra sem hugsanlega kjósa að hafa bílana sína að fullu fjármagnaða af öðrum en þeim, hver veit nema þeir hafi eitthvað annað við eiginféð að gera sem er að skila mum meiri ávöxtun en fjármögnun bílsins kostar.