bebecar wrote:
Dómstóll götunnar...
Það er mjög lítið mál að missa öflugan 911 bíl, það þarf hvorki mikinn hraða til þess né óvanan ökumann (hef orðið vitni að hvorutveggja - í bílnum) - þú ert með breið dekk, læsingu, vélina aftur í og nóg afl til að rjúfa grip hvenær sem þú vilt. Kannski bregður manni og verður á að sleppa bensíngjöfinni og bingó - það getur verið nóg til að bíllinn snúist og fari út af. Það er svo enn erfiðara að grípa 911 bíla sem eru annarsvegar bara afturhjóladrifnir (og þetta öflugir) og hinsvegar RS þar sem marginan fyrir mistök er orðin eins lítil og hægt er að hafa hana.
Það er ekki langt síðan annar 911 bíll gjöreyðilagðist á mjög lítilli ferð - vegna veltu. Og aðeins lengra síðan að 964 bíll velti sömuleiðis, sem ég man ekki betur en hafi verið í sómasamlegum akstri.
Við þessar aðstæður, köld breið dekk, þá þarf ekki mikið ímyndunarafl til að sjá fyrir sér svona tjón og það þarf ALLS ekki einhvern svaka hraða.
Leiðindamál fyrir þann sem á hlut að máli. Fín áminning fyrir okkur hina um að fara varlega. Ef við stútum spes bílum (þið vitið hvað ég á við

) ) þá fáum við sömu meðferð hjá sjálfskipuðum vangaveltu sérfræðingum.
Skrifaði ekki líka einhver hér á spjallið að það hafi verið lúmskur hálkublettur þar sem bíllinn fór út af (eða heyrði ég það annarsstaðar???)
En svona bara til að byrja með
Keyrandi glænýjan 25m kr ofursportbíl á íslandi í Janúar?
Er ekki að sjá gamanið í því, fyrir utan augljósu hættuna sem því fylgir.
Ef þú hefur efni á svona dýrum bíl, hlýturu líka að eiga efni á að nota hann á betri stöðum. T.d. nurburgring, eða slíka svipaða staði
Eða t.d. vera á meira viðeigandi bíl miðað við árstíðina
Ef ég væri með svona bíl á Íslandi þá væri ég í Hvalfirðinum svo framarlega sem það væri þurrt
Ég hef fulla samúð með manninum, ómögulegt að hafa þetta á númerum, verandi nýbúin að fá þetta og þurfa að láta þetta í friði. Það er bara ekki hægt, ef það er hægt þá er viðkomandi ekki með bíladellu, undarlega skynsamur (sem gengur ekki því þá hefði bíllinn ekki verið keyptur í fyrsta lagi) eða bara eitthvað furðulegur
Áhættan er til staðar því kaldara sem það er - alveg rétt. En maður fer þá bara varlegar. Held það sé bara frísklegt að keyra svona bíl í janúar - bara svona eins og að grilla í snjóbil með höfuðljós.
En annað, er ekki algjör fjarstæða að þetta kosti 25 milljónir? Væri þetta ekki nær 15-16?