by Hlynzi » Thu 17. Jan 2008 21:04
Jæja, bíllinn var í smá inspection í gærkvöldi.
Ég giska á að við sérsmíðum hilluna afturí fyrir 6x9" hátalara, tökum gömlu grillin og hátalarana úr og var að spá í að setja svarta tusku á hilluna, eða kaupa svarta hillu. (skemmtilegri contrast afturí, hann er svo hrikalega grár þar)
Núverandi ísetning er nú ekkert alltof flott, ætla að rífa allt úr nema RCA snúrna sem er mjög vönduð.
Boxið verður sett í þannig að það verður auðvellt að rífa það úr, og mun festast þess á milli við mitt aftursætið (svo að keilan sjáist skemmtilega við armpúðann, en það á að vera auðvellt að taka það úr og fljótlegt)
Magnarana var ég að hugsa um að setja bakvið klæðninguna vinstra megin, þar virðist vera nóg pláss fyrir þá og þá sjást þeir ekki, og eru ekki fyrir neinu.
Svo er spurning með loftnetið, það er búið að sparzla það í burtu (sem er hið besta mál) en signal styrkurinn í því er ekki almennilegur, ætla að reyna að græja eitthvað betri inniloftnet, er til magnari á þau ?