bebecar wrote:
íbbi_ wrote:
bimmer wrote:
Alpina wrote:
Nú rís E39 MAFIAN með ,,,,,,,,,,,ONNO ,,,,,,,, fremstann í flokki..
uppá afturlappirnar ,,og býst til varnar með ,,slíkum heimildartilvitnunum að annað eins mun varla hafa sést hér á spjallinu
..... EÐA HVAÐ

Nei.
Ingvar þarf að prufa E39 M5 - þá getur hann mótað sér skoðun á
bílnum byggða á reynslu.
Þangað til er eiginlega svolítið pointless að ræða þetta mál við hann

sorry bebecar "minn" en í þessum tilfelli þá verð ég að vera sammála "bimmer" þarna, það er voðalega erfitt að rökræða bíl við mann.. sem hefur aldrei keyrt hann, eða haft afnot af,
ég hef haft afnot af og keyrt nokkra E39 M5 og einmitt þessvegna v er ég sona hrifinn af þeim, það sama gildir um flesta hina hérna, ég get bara ekki verið sammála þér með þetta, því miður, E39->E34..
handsmíðin á E34 M5 er engin gæðastimpill... Wruhl talaði einmitt um í einhevrju viðtali sem ég las.. að það hefði verið svo mikill munur á milli þeirra að maður hefði þurft að prufa fleyrifleyri eintök til að finna rétta bílin..
Við verðum bara að vera ósammála þar. Það væri nú furðulegt ef ekki væri hægt að rökræða hluti án þess að hafa upplifað þá - til hvers væri menntun þá t.d?
Maður getur myndað sér skoðun út frá þeim upplýsingum sem maður hefur. Mín skoðun er að E34 M5 hafi mikinn karakter sem ég hef ekki upplifað í E39 M5 (án þess þó að hafa keyrt - hef þó setið í hjá Þórði á slaufunni og fjan.... hafi það ef það segir ekki eitthvað pínulítið allavega!). Maður gæti tekið fleiri bíla eins og t.d. Audi RS4 sem ég er mjög hrifinn af og myndi t.d. vilja frekar en E39 M5 - sá bíll hefur samt ekki sama karakter og gamall M5 hefur eða M3 t.d.
Evo testið endurspeglar þetta viðhorf, eldri bílar hafa stundum meiri karakter en nýir.
Það er ekki samasem merki á milli þess að vera betri í flestu og þess að hafa karakter - enn og aftur þá veit ég vel að E39 M5 jarðar hinn eldri á öllum sviðum, nema hvað karakter varðar - að mínu mati.
*edit - ég gæti t.d. ímyndað mér að RS4 sé svipaður og E39 M5 að mörgu leiti fyrir utan auðvitað fjórhjóladrifið og front overhang.
já við getum verið sammála um að veraósammála
kannski hefur þetta eitthvað með aldur að ger,a E34 og E39 eru samtíma bílar hjá okkur m.a við aldursmun, og eiga því kannski sömu rætur..
mér persónulega finnst E39 vera einn "flottasti" bíll sem þjóðverjaland hefur sent frá sér síðasta áratuginn, algjört skólabókardæmi um þýska ofur"flugvél" bíll sem gerir gjörsamlega allt.. og mátulega saklaus í útliti.. m.a við afl og afköst,
fyrir mig er E34 bara.. orðinn of gamall til að uppfylla það sem ég leytast eftir (í oem ástandi þ.e.a.s) of kraftlaus, of mjúk fjöðrun og flr, en engu síður magnað apparat, sem ég hef alltaf mikin áhuga á, en fyrir mér er E39 bíllin bara akkurat í mark, lúkkið aflið afköstin.. og fyrir utan þá staðreynd að mér finnst bmw E39 bara með viðkunnanlegustu akstursbílum að keyra og vera í sem ég veit um..
tímin verður bara að leiða í ljós hversu klassískur E39 m5 verður, ég held að hann verði það. þessi bíll umturnaði supesaloons floknum þegar hann kom og setti ný markmið í flestu, benz þurfti að setja 500hp/700nm mótor í næsta amg E bíl til að slá honum við.. held að þessir bílar hafi markað upphaf þessa öfga hestafla stríðs sem þjóðverjinn fór í uppúr 00, og kanin er kominn í núna með síðustu "afurðum"
btw. ég hinsvegar veit hvað þú ert að tala um með karakterinn í E34/E32, það er alveg sérstakur karakter í þeim, hinsvegar.. er bara annar karakter í E38/E39, ég gleypti ekki við því í E38 bílnum mínum en kolféll svo fyrir E39 bílnum mínum.. og svo eru nýju bílarnir orðnir ALLT öðruvísi,