bimmer wrote:Bjarkih wrote:bimmer wrote:Málið er að það eru staðir út á landi sem eru að deyja og þó
að menn fái fína vegi og háhraða internet þá mun það ekki
breytast.
Af hverju að byggja upp dýran infrastrúktur sem verður ekki
notaður af neinu viti?
Þetta snýst ekki um einhverja mannvonsku heldur kalda skynsemi.
Þá verðum við að spyrja okkur hvort við viljum búa í þjóðfélagi þar sem allt miðast við peninga. Þetta er nefnilega hlutur af okkar menningu, þessi litlu þorp. Ég ætla allavega að vona að þetta fari ekki allt að elltast við peninga hérna. Og ég tek það fram að ég er alls ekki vinstri sinnaður í pólitík, ég hef bara engann áhuga á að lifa í landi þar sem öll völdin eru hjá þessu liði í Reykjavík sem sjá ekki út fyrir borgarmörkin.
Hvað verður um skattpeningana okkar er jú um peninga. Hverri
skattkrónu verður bara eytt einu sinni og því þarf að gera það
gáfulega. Vissulega væri í lagi að viðhalda einu eða tveimur þorpum
sem nokkurskonar byggðasafni til að sýna gamlan tíma. En við
getum ekki haft það sem byggðapólitík að viðhalda nostalgíu sem
á sér ekki framtíðarvon.
Þróunin þarf ekkert að vera að allt flytjist til Reykjavíkur. Alveg eins
gæti þróunin orðið sú að það byggðust upp 3-4 sterkir byggðakjarnar
út á landi sem geta veitt þá þjónustu sem fólk heimtar í dag og orðið
það stórir að þeir geti boðið upp á nógu fjölbreytt vinnuafl til að
sterk fyrirtæki þrífist þar.
Höfn, Akureyri, Egilsstaðir og Ísafjörður?
En hvað er nostalgía?

