bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 25. Jun 2025 13:50

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 126 posts ]  Go to page Previous  1 ... 5, 6, 7, 8, 9  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 10:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
bimmer wrote:
Bjarkih wrote:
bimmer wrote:
Málið er að það eru staðir út á landi sem eru að deyja og þó
að menn fái fína vegi og háhraða internet þá mun það ekki
breytast.

Af hverju að byggja upp dýran infrastrúktur sem verður ekki
notaður af neinu viti?

Þetta snýst ekki um einhverja mannvonsku heldur kalda skynsemi.


Þá verðum við að spyrja okkur hvort við viljum búa í þjóðfélagi þar sem allt miðast við peninga. Þetta er nefnilega hlutur af okkar menningu, þessi litlu þorp. Ég ætla allavega að vona að þetta fari ekki allt að elltast við peninga hérna. Og ég tek það fram að ég er alls ekki vinstri sinnaður í pólitík, ég hef bara engann áhuga á að lifa í landi þar sem öll völdin eru hjá þessu liði í Reykjavík sem sjá ekki út fyrir borgarmörkin.


Hvað verður um skattpeningana okkar er jú um peninga. Hverri
skattkrónu verður bara eytt einu sinni og því þarf að gera það
gáfulega. Vissulega væri í lagi að viðhalda einu eða tveimur þorpum
sem nokkurskonar byggðasafni til að sýna gamlan tíma. En við
getum ekki haft það sem byggðapólitík að viðhalda nostalgíu sem
á sér ekki framtíðarvon.

Þróunin þarf ekkert að vera að allt flytjist til Reykjavíkur. Alveg eins
gæti þróunin orðið sú að það byggðust upp 3-4 sterkir byggðakjarnar
út á landi sem geta veitt þá þjónustu sem fólk heimtar í dag og orðið
það stórir að þeir geti boðið upp á nógu fjölbreytt vinnuafl til að
sterk fyrirtæki þrífist þar.


Hvað eru mörg stór sjúkrahús í Reykjavík og hversu mörg eru þau úti á landi? Ef maður ætlar svo mikið sem til augnlæknis í sérhæfða skoðun þá þarf maður að taka frí frá vinnu, kaupa flugmiða suður (dýrt), þvælast um í Reykjavík (dýrt) og alls konar svoleiðis óþægindi. Og ég bý á Akureyri þar sem stærsta sjúkrahús landsins utan höfuðborgarsvæðisins er! Og reyndu ekki að segja að það séu bara skattpeningar af suðvesturhorninu sem byggðu þetta upp.
Og það sem mér finnst líka oft gleymast í þessari umræðu er að ansi stór hluti af innkomu margra fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu kemur frá þjónustu við landsbyggðina, hvað ætli vinni margir við það?

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 10:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
Mér finnst nú frekar kjánalegt að "neyða" fólk til að flytja frá stöðum sem það hefur búið á alla ævi.

Á Raufarhöfn veit ég um fullt af fólki sem vill ekkert flytja þaðan, þeim líður vel og þau vilja vera þar áfram. Þangað er hundleiðinlegur malarvegur en ég keyri hann oft og mér finnst bara einfaldlega ekkert að því, það er þess virði. Enda sættir fólk sig við að hafa þennan veg.

En það er annað mál með marga aðra staði. T.d. Sigló, ef vegurinn er að fara til helvítis þarf auðvitað að gera eitthvað í því, þekki ekki Sigló en þar búa samt sem áður 10x fleiri en á Raufarhöfn svo ég býst við að það sé óþarfi að drepa staðinn því það sé "of dýrt" að viðhalda vegi þangað :shock:
Hvað ef fólk hefur búið þarna í 50 ár, og börn þeirra frá fæðingu, vill það hugsanlega vera þar eitthvað áfram.

Ég er á því að þetta fólk hafi sama rétt og við á "háhraða" interneti, sjónvarpi, öruggum samgöngum og fl. Þeir sem hafa verið að commenta hér á undan, hve margir ykkar hafa actually búið úti á landi í litlum bæ?
Eru þeir sem mest eru á móti þessu öllu saman borgarbörn sem þekkja ekki annað? Það er nú nokkuð ómögulegt að taka mark á skoðunum þeirra sem ekki þekkja það hvernig er að búa á svona stöðum. Þeir hreinlega vita ekki hvað þeir eru að tala um og eru að bulla útí loftið.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 10:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ég er nú búsettur í höfuðborgini..

en ég hinsvegar er utan að landi, og ég man vel eftir því þegar fólk var að skammast yfir vestfjarðargöngunum og flr, en spáði ekkert í að þetta var algjör bylting í samgöngum fyrir rúmlega 5þús manns.

að sjálfsögðu er ég ekki að meina að það eigi að vera massa uppbygging í hverju skuði í hevrjum firði, en landsbygðin má ekki heldur vera bara hunsuð og leggjast af, þarna býr fólk sem er´rétt eins og í bænum búið að þræla alla ævi fyrir fasteignum og flr

ég man vel þegar ég var púki þarna fyrir vestan þá voru á ísafirði 4+ fyrstihús, risa rækjuverksmiðja fullt af togurum og allt í gangi, enda jú bestu mið landsins þarna við bryggjukantin og eflaust með stæðstu peningavélum landsins, foreldrar mínir áttu þá verulega svert hús sem kostaði jú fullt af peningum. svo eftir breytingarnar á kvótakerfinu þá var öllu kipt undan fólkinu þarna, fyrstihúsin lokuðu, togararnir fóru, húsin hrundu í verði, við fengum einmitt smá kitru í blokk í mosó fyrir stóra húsið sem var engu ódýrara en sambærilegt hús í rvk þegar það var keypt,

það er vel skiljanleg þróun á svo litlu landi að bygðin þéttist, en mér finnst samt að maður eigi að geta haft það val að vilja búa hvar sem er á landinu, án þess að þurfa þá að sætta sig við stórlega skerta þjónustu og lífsgæði,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 11:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Bjarkih wrote:
Hvað eru mörg stór sjúkrahús í Reykjavík og hversu mörg eru þau úti á landi? Ef maður ætlar svo mikið sem til augnlæknis í sérhæfða skoðun þá þarf maður að taka frí frá vinnu, kaupa flugmiða suður (dýrt), þvælast um í Reykjavík (dýrt) og alls konar svoleiðis óþægindi. Og ég bý á Akureyri þar sem stærsta sjúkrahús landsins utan höfuðborgarsvæðisins er! Og reyndu ekki að segja að það séu bara skattpeningar af suðvesturhorninu sem byggðu þetta upp.
Og það sem mér finnst líka oft gleymast í þessari umræðu er að ansi stór hluti af innkomu margra fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu kemur frá þjónustu við landsbyggðina, hvað ætli vinni margir við það?


Til þess að það gerist sem þú vilt - þe. að þú getir fengið sérhæfða
þjónustu í heimabyggð þá þarf stærri byggðakjarna. Bæði vegna þess
að það þarf marga til að standa undir sérhæfðri þjónustu og svo líka
það að þeir sem eiga að vinna við þessi sérhæfðu störf hafa líka sínar
skoðanir á því í hverskonar umhverfi þeir vilja búa í. Flestir búnir að
búa í stærri borgum/bæjum í gegnum sitt nám/starf og sætta sig ekki við
að missa þau lífsgæði sem þeir eru vanir.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 11:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
ValliFudd wrote:
Eru þeir sem mest eru á móti þessu öllu saman borgarbörn sem þekkja ekki annað? Það er nú nokkuð ómögulegt að taka mark á skoðunum þeirra sem ekki þekkja það hvernig er að búa á svona stöðum. Þeir hreinlega vita ekki hvað þeir eru að tala um og eru að bulla útí loftið.


Er hálfur Akureyringur, á fullt af ættingjum fyrir norðan, var í sveit í
rétt hjá Húsavík í 10 sumur.

Þekki þetta ágætlega takk fyrir :wink:

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 11:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
íbbi_ wrote:
það er vel skiljanleg þróun á svo litlu landi að bygðin þéttist, en mér finnst samt að maður eigi að geta haft það val að vilja búa hvar sem er á landinu, án þess að þurfa þá að sætta sig við stórlega skerta þjónustu og lífsgæði,


Það er jú oft munur á því sem maður vildi geta gert og því sem er
raunhæft.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 12:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
bimmer wrote:
Bjarkih wrote:
Hvað eru mörg stór sjúkrahús í Reykjavík og hversu mörg eru þau úti á landi? Ef maður ætlar svo mikið sem til augnlæknis í sérhæfða skoðun þá þarf maður að taka frí frá vinnu, kaupa flugmiða suður (dýrt), þvælast um í Reykjavík (dýrt) og alls konar svoleiðis óþægindi. Og ég bý á Akureyri þar sem stærsta sjúkrahús landsins utan höfuðborgarsvæðisins er! Og reyndu ekki að segja að það séu bara skattpeningar af suðvesturhorninu sem byggðu þetta upp.
Og það sem mér finnst líka oft gleymast í þessari umræðu er að ansi stór hluti af innkomu margra fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu kemur frá þjónustu við landsbyggðina, hvað ætli vinni margir við það?


Til þess að það gerist sem þú vilt - þe. að þú getir fengið sérhæfða
þjónustu í heimabyggð þá þarf stærri byggðakjarna. Bæði vegna þess
að það þarf marga til að standa undir sérhæfðri þjónustu og svo líka
það að þeir sem eiga að vinna við þessi sérhæfðu störf hafa líka sínar
skoðanir á því í hverskonar umhverfi þeir vilja búa í. Flestir búnir að
búa í stærri borgum/bæjum í gegnum sitt nám/starf og sætta sig ekki við
að missa þau lífsgæði sem þeir eru vanir.


Ég var nú ekki að tala um að hafa þetta út um allt. En það væri nú allt í lagi að hafa einhverja þjónustu úti á landi þannig að fólk þurfi ekki að leggja í dýr, löng og tímafrek ferðalög til að fá lögbundna þjónustu. Því þó það sé bundið í lög að allir eigi jafnan rétt óháð búsetu þá er það því miður ekki þannig, ég fékk að kinnast því þegar dóttir mín fæddist, þurftum að fara óteljandi ferðir með hana suður til lækna og í aðgerðir og það var ekki ódýr eða þægilegur kafli í mínu lífi. Svo náttúrulega er menntakerfið hér á Íslandi það lélegt að það endaði á því að við fluttum úr landi, en það er önnur saga.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 12:58 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38
Posts: 1035
leggja sveitirnar niður... komið bara öll til reykjavikur og hættið þessu rugli...

okkur vantar fleirri bila á miklubrautina klukkan 5


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 12:59 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Posts: 844
Location: Akureyri
Astijons wrote:
leggja sveitirnar niður... komið bara öll til reykjavikur og hættið þessu rugli...

okkur vantar fleirri bila á miklubrautina klukkan 5


góður... ekkert að samgönguleiðum í reykjavík meðað við annarsstaðar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 13:03 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Posts: 2674
Location: Reykjavík
Ef það fór framhjá einhverjum þá var EGÓ fyrst til að lækka í dag um 50 aura.. . .. .
www.gsmbensin.is

_________________
1990 Benz 250D W124


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 13:03 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Posts: 3828
Location: California
xtract- wrote:
Astijons wrote:
leggja sveitirnar niður... komið bara öll til reykjavikur og hættið þessu rugli...

okkur vantar fleirri bila á miklubrautina klukkan 5


góður... ekkert að samgönguleiðum í reykjavík meðað við annarsstaðar


what the fuck???

_________________
2016 BMW X3 sDrive28i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 13:07 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
///M wrote:
xtract- wrote:
Astijons wrote:
leggja sveitirnar niður... komið bara öll til reykjavikur og hættið þessu rugli...

okkur vantar fleirri bila á miklubrautina klukkan 5


góður... ekkert að samgönguleiðum í reykjavík meðað við annarsstaðar


what the fuck???


skelör þú þetta ekkeh eða?

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 13:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Þetta gengur út á valkosti.

Það er enginn neyddur að búa í rvk eða úti á landi.

Það er klárt að það er markaður fyrir hitt og þetta úti á landi,
augnlæknir gæti augljóslega starfað úti á landi, enn hann hefur líka valkosti.
Það er bæjarfélaganna skilda að fá þjónustur á staðinn og það gerir hlutina erfiða, hvernig á að fá þjónustu á staðinn, auðvitað eru ýmsar leiðir eins og afsláttur á útsvar, lægri fasteignagjöld og svo framvegis til að lokka fólk á staðinn.

Það að sitja bara í bæjar eða héraðstjórn og ætla að bíða bara eftir að hlutir gerist mun ekki ganga. Og er ég nokkuð viss um að það er að gerast sumstaðar úti á landi hvað þá í borginni og stærri sveitarfélögum.

Enn ég er sammála þórði með byggjakjarnanna, það þarf að reyna koma upp stærri kjörnum þarna úti á landi, það mun svo leiða af sér bæji í nánd.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 13:25 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Tue 01. Nov 2005 12:38
Posts: 865
Location: Höfuðstaðurinn
Svezel wrote:
///M wrote:
xtract- wrote:
Astijons wrote:
leggja sveitirnar niður... komið bara öll til reykjavikur og hættið þessu rugli...

okkur vantar fleirri bila á miklubrautina klukkan 5


góður... ekkert að samgönguleiðum í reykjavík meðað við annarsstaðar


what the fuck???


skelör þú þetta ekkeh eða?


Flámæli er töff :lol:

Mæli með að pröfa að tala flámælt í einn dag eða svo. Gott grín

_________________
Saxi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 29. Nov 2007 13:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Posts: 1721
Location: 1 2 Selfoss
Saxi wrote:
Svezel wrote:
///M wrote:
xtract- wrote:
Astijons wrote:
leggja sveitirnar niður... komið bara öll til reykjavikur og hættið þessu rugli...

okkur vantar fleirri bila á miklubrautina klukkan 5


góður... ekkert að samgönguleiðum í reykjavík meðað við annarsstaðar


what the fuck???


skelör þú þetta ekkeh eða?


Flámæli er töff :lol:

Mæli með að pröfa að tala flámælt í einn dag eða svo. Gott grín


,,Veltu sennep á pelsöna"? :lol:

_________________
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 126 posts ]  Go to page Previous  1 ... 5, 6, 7, 8, 9  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 3 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group