Stanky wrote:jon mar:
Mér finnst fortíðin engu skipta. Það vita það allir að fiskur skilaði mestum hagnaði í den, allt frábært og gott með það. En það er ekki raunin í dag.
Nú ef við ætlum að umbuna þeim sem gerðu eitthvað gott fyrir Ísland í den, þá erum við í deep shit. Pældu bara í öllum/öllu því sem hefur eitthvað gert gott fyrir Ísland og ef við ætlum að umbuna þeim öllum núna, bara svon af því að þeir gerðu eitthvað einusinni gott fyrir Ísland eða ríkið eða ríkiskassann.
Auðvitað er ekki hægt að láta landsbyggðina sitja á hakanum, en að mínu mati er óþarfi að setja peninga í göng fyrir nokkrar hræður á kostnað ríkisins. Það ætti frekar að bjóða verkið út og þeir sem vilja nota göngin verða þá að borga fyrir notkunina.
Þegar ríkið er farið að dæla peningum í krummaskuð (afs. orðbragð) þá er eitthvað ekki rétt og það ætti að gera eitthvað annað en að nota peningana sem þjóðin á í einhvern einstök verkefni hingað og þangað sem þjóna einstaka hræðum.
ég veit ekki betur en öll þessi krummaskuð séu partur af þjóðinni, og ef það er talin þörf á því að framkvæma eitthvað, þá er væntanlega einhver fótur fyrir því.
Ég persónulega þarf að keyra á þessu svæði þarna, ég tel líf mitt meira virði en þú greinilega. Ég er viss um að þeir sem búa í krummaskuðum hafa sömu sögu að segja. Fólkið í 101 er ekki meira virði en eitthvað landsbyggðarpakk.


