Einsii wrote:
Stanky wrote:
jon mar:
Mér finnst fortíðin engu skipta. Það vita það allir að fiskur skilaði mestum hagnaði í den, allt frábært og gott með það. En það er ekki raunin í dag.
Nú ef við ætlum að umbuna þeim sem gerðu eitthvað gott fyrir Ísland í den, þá erum við í deep shit. Pældu bara í öllum/öllu því sem hefur eitthvað gert gott fyrir Ísland og ef við ætlum að umbuna þeim öllum núna, bara svon af því að þeir gerðu eitthvað einusinni gott fyrir Ísland eða ríkið eða ríkiskassann.
Auðvitað er ekki hægt að láta landsbyggðina sitja á hakanum, en að mínu mati er óþarfi að setja peninga í göng fyrir nokkrar hræður á kostnað ríkisins. Það ætti frekar að bjóða verkið út og þeir sem vilja nota göngin verða þá að borga fyrir notkunina.
Þegar ríkið er farið að dæla peningum í krummaskuð (afs. orðbragð) þá er eitthvað ekki rétt og það ætti að gera eitthvað annað en að nota peningana sem þjóðin á í einhvern einstök verkefni hingað og þangað sem þjóna einstaka hræðum.
Þú ert nú bara ósanngjarn.
Ég er mjög á móti þessum göngum núna, en ekki afþví að þau áttu aldrei að vera gerð, heldur afþví að þau eru gerð á röngum tíma. Rosalega margt annað á landsbyggðinni sem á að hafa forgang, einsog að malbika hringveiginn.
Siglufjörður er með göng, strákagöng og það sem þarf bara að gera er að passa betur upp á veginn að þeim það er hann sem er til vandræða.
Og ef fólk er að gera þessi göng afÞví að lágheiðin er svo erfið yfirferðar og snjóþung á veturna þá geta þeir bara keyrt hina leiðina frá skagafyrðinum.
held að aðal málið þessa dagana sé að siglufjörður og ólafsfjörður er sama sveitarfélag, reyndar sama bæjarfélag á pappírunum.
Náttúrlega lúaleg vinnubrögð hjá heimamönnum að sameina, klárlega til að hagræða, en líka til að ýta á eftir framkvæmdinni.
Það er margt annað sem er mikilvægara, en það má spara mikið í td vegagerð með því að gera hlutina alminnilega í fyrsta skipti og sleppa við eylíft viðhald. Örugglega einhver búinn að benda á það hér fyrr á þræðinum.
Aron Andrew wrote:
Það er samt búið að rannsaka hlíðina sem vegurinn til Siglufjarðar liggur utaní, og þetta á allt eftir að fara til fjandans á næstu árum, hlíðin er bara að gefa sig þarna. Enda sést það vel á veginum, þvílíkt jarðsig í gangi.
Hlíðin er bara á leið niðrí fjöru, þeir sem hafa keyrt þennann veg vita hvað málið snýst um. Snjóflóðahætta er mikil og þar eftir götunum.
Samt er ég þeirrar skoðunar að siglufjörður sé deyjandi svæði, en það er spurning hvort bættar samgöngur verði ekki mikil lyftistöng.
_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tækiFord Bronco '66
Bara station bílar, enginn BMW.