bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 17. Jun 2025 17:41

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 24 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2003 14:00 
Ég verð að vera sammála bebecar í þessum umræðum.


Top
  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2003 14:10 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég þarf ekki að prófa til að vita þetta. Staðreyndirnar tala sínu máli.

Finndu einhverja braut (annað en oval) þar sem mótorhjól er að ná betri tíma.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2003 14:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Þetta eru afstæð dæmi að ég tel....
Ofur keppnisbílar með öllum hugsanlegum RACE útfærslum sem til eru
og Hval fjörðurinn er ekki Það slæmur..................
EN;;;,,,,,,,,,,;;;;;;; eins og Ingvar bendir á þá er ekki öll sagan sögð.
Guðbergur Guðbergsson ((Beggi Porsche)) átti 944 Turbo svartan
(( með gömlu númerunum T 944)) og tók RUN frá afleggjaranum
frá Hveragerði við SUZUKI 600 ((að ég held)) upp á Hellisheiði og sagði að hann hefði verið kominn út úr bílnum þegar hjólið kom í mark?? :oops:

Sv.H
ps. Þetta sagði hann mér sjálfur!!!!!!!!!!!!!!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2003 14:59 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Þetta er vissulega ofur formúlubílar en líka það besta í mótorhjólum - fullkomlega sambærilegt að mínu mati. En þú sérð líka hvað tímamismunurinn er mikill.

Þetta er bara einföld staðreynd, ég veit um mann í Tékklandi sem vann veðmál svona á E34 Touring M5. Mjög ítarleg lýsing, keppti við tvö mótorhjól sem reyndu saman að halda honum fyrir aftan sig í beygjum því þau áttu ekki séns í hann.

Guðbergur hefur farið nokkuð létt með þetta trúi ég.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2003 15:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Hmm jú það er rétt ef það er mikið um s-beygjur þá eiga mótorhjólin erfitt uppdráttar en þau hafa bara gífurlega yfirburði á beina kaflanum(umfram eðlilega bíla).

Legg til að þetta verði sett í nefnd :wink:

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2003 15:41 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Þau hafa mikla yfirburði í hröðun upp að vissu marki. Það er samt ákveðið vandamál með hjól á yfir 200 kmh að þau auka ferðina ekki mjög hratt, lítið tog og mikil loftmótstaða.

En, tímarnir tala fyrir sig sjálfir.

Quote:
Radical's new SR3 Turbo, driven by touring car ace, Phil Bennett, shattered the Nordschleife lap record of 7:32, by a massive 13 seconds. The new record was made all the more impressive by the fact that the all-new 1500 turbo-engined car had only covered a small number of development miles at Lotus' Hethel test circuit, and the record was achieved during it's first and only flying lap of the awesome 14-mile German circuit.



Hér vitna ég í upplýsingarsíðu breskra bifhjólamann um Nurburgring.

Quote:
For bikers it's worth remembering that there are some very quick cars out there, especially noticeable in the tighter sections where their superior grip really gives them a speed advantage. If you hear the dreaded squeak of rubber behind you get out of the way ... you can always try to get your own back in the uphill sections!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 07. Sep 2003 20:03 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sun 13. Jul 2003 22:43
Posts: 158
Location: Kópavogur
Ég hef séð myndband frá Nurburgring tekið um borð í M5, hjólin fóru fram úr á beinu köflunum en hann náði þeim aftur í beygjunum og skildi þau eftir.
Það er rétt þau hafa mikla yfirburði á beinum köflum en þurfa að hægja duglega á sér í beygjunum á meðan þú getur svínkeyrt almennilegan bíl í gegnum beygjurnar. Hefði verið gaman að sjá Guðberg og Súkkuna

_________________
SE
Porsche 911 Carrera 3.2 ´85
Mercedes Benz ML 270 CDI ´00

Jeremy Clarkson wrote:
It's pouring down with rain because not enough people have Range Rovers.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 09. Sep 2003 08:31 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 16. Jul 2003 09:59
Posts: 26
Það er alltaf gaman af svona umræðum en það væri gaman að vita hvað margir hérna hafa átt eða eiga mótorhjól og þá hvernig. Ég á t.d. Honda CBR 600 F2 og búinn að eiga það í 11 ár. Keypti það nýtt á sínum tíma. Ég hef keppt á því í kvartmílu í nokkur ár og var íslandsmeistari á því á tímanum 10,88@122,6mph.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 09. Sep 2003 09:40 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Það eru nefnilega engar beygjur í kvartmílunni. Það hafa engir eða fáir bílar við mótorhjóli í beinni línu.

Fletir gera ráð fyrir því að mótorhjól sé sneggra almennt, en eins og sjá má af tímum og heimasíðum mótorhjólaklúbba sem heimsækja keppnisbrautir þá er það bara ekki þannig.

Bíll hefur miklu meira grip í beygju en hjól, hinsvegar er hraðatilfinning á hjóli meiri og því finnst manni kannski að það sé ekkert sem að hangi í þessu, en það er bara tilfinning.

PS, ég er að taka prófið núna og er nú ekki að næla mér í mótorhjól til að stinga bíla af, heldur er ég að þessu vegna þess að það er mun ódýrara að eiga "performance" mótorhjól en bíl - og fílíngurinn er góður.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 24 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group