bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 24. Jun 2025 21:23

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 39 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 11:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
noyan wrote:
Kristjan wrote:
Noyan: þú ættir virkilega að athuga að kaupa þér eitthvað á veggina hjá þér. Hehe ekki illa meint. Íbúðin selst betur ef hún er smekklega innréttuð á söluauglýsingunum. Eða það hafa fasteignasalar sagt mér.


:lol: ég er nú með eina þarna uppi...Það er reyndar allt annað að sjá þetta þegar skjávarpinn er í gangi, hann fyllir alveg út einn vegg.


Mæli með Jennu í fullscreen þegar þú ert að sýna íbúðina, helst eldri hjónum. hehehehe

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 11:21 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
noyan wrote:
Kristjan wrote:
Noyan: þú ættir virkilega að athuga að kaupa þér eitthvað á veggina hjá þér. Hehe ekki illa meint. Íbúðin selst betur ef hún er smekklega innréttuð á söluauglýsingunum. Eða það hafa fasteignasalar sagt mér.


:lol: ég er nú með eina þarna uppi...Það er reyndar allt annað að sjá þetta þegar skjávarpinn er í gangi, hann fyllir alveg út einn vegg.

Þessi íbúð er barílagi!! 8)

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 12:16 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Posts: 1210
Location: Keflavík south
Ef þú ferð út í að endurnýja eldhús og bað passaðu þig þá á að vinna heimavinnuna MJÖG vel. Í flestum tilfellum kostar þetta mun meira en til stóð og tekur langan tíma.

Oft koma líka hlutir í ljós sem sáust ekki áður en hafist var handa, svosem rakaskemmdir, ónýtar lagnir etc...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 12:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Ég persónulega myndi ekki vera að modda íbúð mikið ef þú sérð bara fram á að vera í 2 ár þar.

Endurbætur selja íbúðir EN þær hækka verðið ekki á íbúðinni neitt sérstaklega mikið

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Flikka uppá
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 14:04 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Sæll.

Eins og var sagt hérna að ofan er hægt að gera þetta mjög skynsamlega. Ég keypti mér td. íbúð sem ég er að dunda mér við að taka í gegn. Til að mynda bjóst ég við að þurfa að skipta út öllu gólfefni en þegar ég fór að skoða þetta betur lét ég pússa parketið niður og ganga frá aftur. Það var rúmlega 50% ódýrara en að kaupa nýtt parket og þá miða ég við ódýrt parket frá Byko. Parketið var vandað þegar það var keypt og því má pússa það allt að fjórum sinnum.

Eldhúsið var td. ekkert sérstaklega fallegt en þar sem ég átti ekki pening fyrir nýju eldhúsi flíkkaði ég upp á gömlu innréttinguna, lakkaði hluta hennar upp á nýtt og keypti ný tæki. Þetta kostaði mig rétt rúmlega 100.000 þús. ( þá keypti ég líka ódýr tæki enda vildi ég ekki kaupa tækin sem mig langaði í þar sem ég vissi að eldhúsið væri til bráðabirgða. ) Ikea eldhúsin eru ótrúlega góð, segja smiðir mér, en þeir vara við því að kaupa borðplöturnar hjá þeim, segja plöturnar ekki vera nægjanlega góðar.

Það er hægt að gera ótrúlega margt með því að púla aðeins, massa upp og lakka, mála og skipta um, það er ekki alltaf nauðsynlegt að fá allt nýtt.

Kveðja
Þórir I.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 14:16 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Ef einhver er að spá í innréttingum þá mæli ég með að skoða Kvik.

Góðar innréttingar og alls ekki of dýrar.

Pabbi minn er smiður og ég held að hann versli nánast allar sýnar innréttingar þar! :)

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 17:20 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48
Posts: 405
Kristjan wrote:
Eggert: Já það er nokkuð til í þessu hjá þér, en ég athugaði með hússjóðinn, hann er í góðu standi, hann borgar líka fyrir þrif í blokkinni.

Við ætlum að búa þarna í 2 ár.


Þar sem þú ætlar ekki að eiga íbúðina mjög lengi myndi ég í þínum sporum taka lán með jöfnum afborgunum í stað jafngreiðsluláns (sem flestir taka).

Segjum að raunverð íbúðarinnar eftir 2 ár standi í sama stað og þú ert með jafngreiðslulán þá ertu mjög líklega ekki búinn að eignast neitt í íbúðinni.
Þetta skýrist af því að jafngreiðslulán eru þannig að þú borgar nánast bara vexti í fyrstu og ert því ekkert að minnka höfuðstólinn en þegar þú ert með lán með jöfnum afborgunum þá byrjar þú strax að eignast í íbúðinni því þú ert frá upphafi að borga af höfuðstólnum.
Á móti kemur að greiðslurnar eru hærri til að byrja með ef þú ert með lán með jöfnum afborgunum.
En heildargreiðslan af láni með jöfnum afborgunum er lægri en af jafngreiðsluláni.

_________________
BMW E34 525iA '95


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 17:45 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
Skoðaðu íbúðina með því sjónarmiði að meta hvað þú treystir þér í að
gera sjálfur, eins og Svezel bendir á þá er hægt að gera gamla hluti flotta
með smá vinnu..

Að pússa parket er ekkert sérlega mikið mál.. svo framarlega sem slitið á
því nái ekki mjög langt niður í viðinn, ef vatn sullast í kverkar og erfitt
að fiffa það á auðveldan máta. Borgar sig að prófa sig áfram með því að
byrja á fínum pappír. 3-4 umferðir af lakki ;)

Eldhús, eru í raun ekki erfið, en bara hafa í huga að böggur er að færa
niðurföll(úr vaski) og krana. Einnig hugsa út í það ef þú ætlar að skipta um
innréttingu hvort gólfefni séu lögð undir innréttingarnar. Ef ekki þarftu
væntanlega að skipta um þau líka.

Baðið, það er auðvelt að klúðra flísalagningu(tala af reynslu), þannig ef þú
hefur litla reynslu í þeim efnum þá velja flísar sem henta. Það er hægt að
eyða milljónum í bað... fáranlega upphæðir á blöndunartækjum, böðum og
tilheyrandi.. Flísar á útsölu er málið.. það detta inn útsölur á hinu dótinu
líka..

Síðan eru hlutir eins og hiti, rafmagn, sameign, gluggar, þak og fleira..
..veit ekki hvernig mat.is virkar, en það er bara flott að fá hlutlaust álit.
Tala nú ekki um að geta borið það fram ásamt tilboði sem þú
væntanlega gerir, væri sterkur leikur. Hakkað verðið eitthvað niður á við..

Síðan er eitt ráð: ef þú ert að fara að versla í Byko, Húsasmiðjunni eða
Mest þá er um að gera að semja um kjör ÁÐUR. Byko gefur þér x-afslátt og
húsasm. x-afsl. en hjá húsasmiðjunni bætist við stgr. afsl við þennan
x-afslátt. svo framarlega sem þú staðgreiðir..

Gangi þér vel við þetta.. það er fátt skemmtilegra en að föndra í svona málum.. ;)
Þrullinn

_________________
Carrera4 964 '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 17:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Það var sterkur leikur hjá mér að stofna þennan þráð, margir að koma með mjög góða og skemmtilega puntka.

Keep em comin!

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 18:06 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Wed 08. Aug 2007 10:31
Posts: 101
arnibjorn wrote:
Ef einhver er að spá í innréttingum þá mæli ég með að skoða Kvik.

Góðar innréttingar og alls ekki of dýrar.

Pabbi minn er smiður og ég held að hann versli nánast allar sýnar innréttingar þar! :)


Ég keypti innréttingar þar og get ekki tekið undir þetta. Bæði fékk ég lélega þjónustu og innréttingarnar allt of seint, og svo héldu festingarnar sem fylgdu með ekki skápunum. Þurfti að setja aukalega undir sökkulinn og auka bolta í vegginn. Loks varð ég sjálfur að grafa leiðbeiningarnar upp á netinu, fylgdu ekki með og engar ábendingar hvar þær væru að finna.

Þá má ég frekar biðja um IKEA ef ætlunin er að versla frekar ódýrt.

Annars er ég mjög sammála því sem kemur fram hérna, ef þú ætlar bara að búa þarna í tvö ár er um að gera að lappa frekar upp á gamlar innréttingar/gólfefni heldur en að kaupa allt nýtt. Þú færð það varla til baka þegar þú selur.

Þegar þú gerir áætlun hvað þetta á að taka langan tíma, margfaldaðu þá tímann sem þú ætlar í hvern verkþátt með pí, þá færðu eitthvað sem er nærri lagi :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 19:10 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
einarornth wrote:
arnibjorn wrote:
Ef einhver er að spá í innréttingum þá mæli ég með að skoða Kvik.

Góðar innréttingar og alls ekki of dýrar.

Pabbi minn er smiður og ég held að hann versli nánast allar sýnar innréttingar þar! :)


Ég keypti innréttingar þar og get ekki tekið undir þetta. Bæði fékk ég lélega þjónustu og innréttingarnar allt of seint, og svo héldu festingarnar sem fylgdu með ekki skápunum. Þurfti að setja aukalega undir sökkulinn og auka bolta í vegginn. Loks varð ég sjálfur að grafa leiðbeiningarnar upp á netinu, fylgdu ekki með og engar ábendingar hvar þær væru að finna.

Þá má ég frekar biðja um IKEA ef ætlunin er að versla frekar ódýrt.


Annars er ég mjög sammála því sem kemur fram hérna, ef þú ætlar bara að búa þarna í tvö ár er um að gera að lappa frekar upp á gamlar innréttingar/gólfefni heldur en að kaupa allt nýtt. Þú færð það varla til baka þegar þú selur.

Þegar þú gerir áætlun hvað þetta á að taka langan tíma, margfaldaðu þá tímann sem þú ætlar í hvern verkþátt með pí, þá færðu eitthvað sem er nærri lagi :wink:


Úff það er mjög leiðinlegt að heyra! :?

Ég hafði allavega bara heyrt góð orð um Kvik þannig að ég keypti eldhúsinnréttingu frá þeim þegar ég var að flytja inní íbúðina mína.

Allt reyndist vel og kom flott út :)

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 19:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
ætli að það þurfi ekki að setja þetta rétt saman svo þetta hangi saman :lol:

_________________
Suzuki Sidekick 33" 1977


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 20:15 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Wed 08. Aug 2007 10:31
Posts: 101
IngóJP wrote:
ætli að það þurfi ekki að setja þetta rétt saman svo þetta hangi saman :lol:


:lol:

Komst upp um mig. Nei, svona án gríns, þá brotnuðu spýturnar sem héldu þessu uppi...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 20:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Ég var að skoða eina íbúð og þvílíkur brandari.

Leigjandinn hafði ekki lagað til í mánuð, hundurinn hennar var laus, (snar ofvirkt kvikindi) leigjandinn reykti (á meðan við vorum að skoða í þokkabót) það var mygla á baðherberginu(bókstaflega allstaðar) allar innréttingar voru í mjög slæmu ástandi, eigandinn kom síðan og fór að tala íbúðina geðveikt niður, talaði um hvað það væru mikil læti þarna um helgar og hvað væri slæmt við íbúðina og svo framvegis. Ég sneri við á punktinum út og þakkaði fyrir mig.

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Sep 2007 21:12 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
Ertu að kaupa hér á ak eða fyrir sunnan ?
Finnst einsog ég hafi heyrt að þú værir að skoða eitthvað í sömu blokk og Helgi..
En annars þegar kemur að baðherberginu, þá kíkir þú bara á mig í Tengi og ég geri gott fyrir þig í þeim málum ;)

Annars eina ráðið sem ég get gefið er: kaupa nýlegt og hafa engar áhyggjur af viðhaldi vegna aldurs, það gerði ég allavega :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 39 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 34 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group