Skoðaðu íbúðina með því sjónarmiði að meta hvað þú treystir þér í að
gera sjálfur, eins og Svezel bendir á þá er hægt að gera gamla hluti flotta
með smá vinnu..
Að pússa parket er ekkert sérlega mikið mál.. svo framarlega sem slitið á
því nái ekki mjög langt niður í viðinn, ef vatn sullast í kverkar og erfitt
að fiffa það á auðveldan máta. Borgar sig að prófa sig áfram með því að
byrja á fínum pappír. 3-4 umferðir af lakki
Eldhús, eru í raun ekki erfið, en bara hafa í huga að böggur er að færa
niðurföll(úr vaski) og krana. Einnig hugsa út í það ef þú ætlar að skipta um
innréttingu hvort gólfefni séu lögð undir innréttingarnar. Ef ekki þarftu
væntanlega að skipta um þau líka.
Baðið, það er auðvelt að klúðra flísalagningu(tala af reynslu), þannig ef þú
hefur litla reynslu í þeim efnum þá velja flísar sem henta. Það er hægt að
eyða milljónum í bað... fáranlega upphæðir á blöndunartækjum, böðum og
tilheyrandi.. Flísar á útsölu er málið.. það detta inn útsölur á hinu dótinu
líka..
Síðan eru hlutir eins og hiti, rafmagn, sameign, gluggar, þak og fleira..
..veit ekki hvernig mat.is virkar, en það er bara flott að fá hlutlaust álit.
Tala nú ekki um að geta borið það fram ásamt tilboði sem þú
væntanlega gerir, væri sterkur leikur. Hakkað verðið eitthvað niður á við..
Síðan er eitt ráð: ef þú ert að fara að versla í Byko, Húsasmiðjunni eða
Mest þá er um að gera að semja um kjör ÁÐUR. Byko gefur þér x-afslátt og
húsasm. x-afsl. en hjá húsasmiðjunni bætist við stgr. afsl við þennan
x-afslátt. svo framarlega sem þú staðgreiðir..
Gangi þér vel við þetta.. það er fátt skemmtilegra en að föndra í svona málum..
Þrullinn