bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 17:45

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 44 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next
Author Message
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 09:22 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01
Posts: 367
Ég er á 2005 árgerð af BMW 320d (e46) sem er ekinn tæplega 120 þús og er með einhver leiðindi þegar honum er startað köldum - mjög grófur gangur fyrst um sinn og blár reykur. Eftir mínútu eða svo er hann hinsvegar orðinn ljúfur og fínn og ef ég starta honum aftur seinna samdægurs þá er það aldrei neitt mál. Þetta gerist bara þegar honum er startað á morgnana en þá hefur hann staðið í 10+ klukkustundir.

Hann fór til TB þar sem þeir skiptu um glóðarkerti en það hafði ekkert að segja. Hann fór einnig með hann í álestur til B&L og tölvan hjá þeim finnur ekkert að bílnum. Þeir mæltu með því að setja hreinsivökva út í díselolíuna og sjá hvort að það hafði eitthvað að segja.

Hann hefur nú verið á slíkri blöndu í nokkra daga en það er allavega ekki enn farið að skila árangri. Dettur einhverjum eitthvað í hug sem vert væri að skoða?

Nú hef ég ekki áður átt díselbíl en mig minnir einhvernveginn að á öðrum slíkum bílum sem ég hef keyrt þá hafi maður þurft að halda við lykilinn meðan gormurinn logaði í mælaborðinu og bíða eftir að hann slokknaði. Í þessum bíl þá kviknar á gorminum í sekúndu eða svo þegar maður setur rafmagnið á bílinn en síðan slokknar það á sama tíma og önnur ljós í mælaborðinu. Þegar maður snýr svo lyklinum lengra til að svissa á þá logar þetta ljós aldrei - á hvaða tímapunkti fer hann að hita upp olíuna? Er það þegar maður setur rafmagnið á bílinn eða er það þegar maður snýr lyklinum til að starta vélinni?

Verst að bæklingurinn með bílnum er á algjörlega óskiljanlegu tungumáli fyrir mig :x


Last edited by thisman on Tue 20. Nov 2007 09:40, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 10:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Posts: 1505
Location: Seltjarnarnes
Það á að kvikna á ljósinu þegar þú setur rafmagn á bílinn. Þá á ljósið að loga í smá stund, getur verið 1-3 sec kannski, eftir hversu kalt er. Þegar ljósið er farið þá máttu starta bílnum.

Er hann lengi í gang eða hrekkur hann strax af stað hjá þér?

_________________
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 11:13 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01
Posts: 367
Takk fyrir þetta! Já, eftir að hafa þvælt mig í gengum franska manualinn komst ég líka að þessari niðurstöðu - að ljósið ætti bara að loga þegar maður setti rafmagn á bílinn. Fínt að fá það staðfest.

En nei nei, hann rýkur alveg í gang en vélin er með mjög grófan gang og það smellur reykjabólstri aftur úr pústinu. Eftir mínútu eða svo er hann orðinn eðlilegur og er bara eðlilegur út daginn svo framarlega sem hann stendur ekki lengur en 10 klst eða svo en svo er hann aftur eins næsta morgunn.

Eftir að hafa spjallað við þá í Vélalandi (eftir ráðleggingar frá Leó M.) þá er ég að pæla í að fara með hann þangað til að láta athuga hvort forhitunin sé ekki örugglega að virka og hvort hann dragi nokkuð inn á sig loft yfir nóttina.

Einhver önnur ráð? Öll comment vel þegin þar sem ég nenni ekki að keyra um á bíl sem lætur eins og argasta drusla á morgnana.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 12:20 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01
Posts: 367
Nú ákvað ég að bjalla upp í TB til að fá að vita nákvæmlega hvað þeir gerðu sem átti ekki að hafa virkað. Þeir fundu nú ekkert út frá skráningarnúmerinu og ég var ekki með kennitölu fyrri eiganda á mér en kappinn sem ég talaði við taldi strax að einhver af spíssunum væri orðinn lélegur.

Einhver með dísel BMW sem hefur lent í einhverju sambærilegu?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 12:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Minnir að burgerking hafi verið í sama veseni með sinn 320D

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 12:29 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?p=264059&highlight=#264059

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 15:29 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
Ég er búinn að eiga 320d. Það gat nú alveg verið smá grófur gangur í honum svona fyrstu MÍNÚTUNA eftir að maður setti hann í gang eftir nætursvefninn og smá blár reykur fyrstu sekúndurnar. Spurning hvort þetta sé eitthvað óeðlilegt? Reyndar var það eftir mjög kaldar nætur og það hefur auðvitað ekkert í líkingu við það verið hérna síðustu daga eða vikur.

En hvort þetta geti verið lélegur spíss? Allavega lýsti það sér þannig hjá mér á 530d bílnum sem ég er á núna að fyrst komu nokkrir dagar þar sem hann var erfiður í gang heitur og svo á endanum var það þannig að hann fór nú í gang strax kaldur en dó svo algjörlega ef ég drap á honum og reyndi að fá hann í gang aftur næsta klukkutímann eða svo.

B&L tóku hann og það var einn spíss farinn. Það er víst þannig að ef einn spíss nær ekki að byggja upp þrýsting þá gerist bara ekkert og bíllinn er dauður.

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 15:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
er ekki einhver kaldræsispíss í 320d E46 bílunum :?:

Minnir að það hafi verið þannig, lítur allavega út fyrir að hann sé að klikka..

Svo er spurning hvernig meðferðin hefur verið fram að þessu...

Mótorinn gæti verið óþéttur ef að hann hefur mikið verið keyrður upp á snúning kaldur :!:

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 17:32 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01
Posts: 367
Þakka góðar ábendingar!

Já, það er erfitt að segja til með meðferðina - hann hefur lítið verið keyrður hérlendis og þetta er aðallega keyrsla á meginlandinu. Gæti þess vegna hafa verið þaninn kaldur en miðað við hversu ótrúlega snyrtilegur hann er - og sú staðreynd að þetta er touring sem nánast bara gamlir kallar eiga (og hundafólk eins og ég) - þá hugsa ég að eigandinn hafi a.m.k. ekki verið í rallakstri á honum :)

Miðað við alla sem ég er búinn að tala við þá eru flestir sammála um að þetta séu einhver leiðindi í spíss, hugsanlega óhreinindi. Ég trúi því bara ekki að þetta sé eðlilegt en hef svo sem ekki mikla reynslu af díselbílum. Hann fór allavega í tékk hjá B&L og var þar yfir nótt þannig þeir prófuðu þetta sjálfir og orðuðu það svo að þetta væri líklega eitthvað smotterý þar sem þetta kæmi ekki fram í neinum tölvum - væri hugsanlega einhver spíss með leiðindi og ráðlögðu að keyra hann á mótorhreinsi í einhvern tíma.

Það er akkurat það sem ég mun koma til með að gera. Á svo pantaðan tíma hjá TB eftir tíu daga og þeir ætla að athuga hvern spíss fyrir sig, hvort þeir eru þéttir og fínir. Þannig í besta falli þá hreinsar hann þetta út á næstu dögum, ef ekki þá geta TB menn allavega sagt af eða á hvort þetta er einhver skrambans spíss.

Ástæðan fyrir því að ég er að forvitnast hérna er að maður vill ekki lenda í því að skrúfa í sundur hálfa vélina og borga formúgur fjár fyrir ef það kæmi svo í ljós að einhver snillingurinn hérna hefði lent í þessu sama og lausnin hefði verið að herða einhverja skrúfu - eða í þá áttina.

Þetta er minn fyrsti BMW - er ekki sagt að fall sé fararheill? :roll: Treysti á að þegar þessu hefur verið reddað þá eigi ég allavega einhverja mánuði þar sem ég get bara notið þess að keyra græjuna. Þrátt fyrir að vera station, afsakið - touring, þá er þetta ótrúlega ljúft í akstri!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 19:13 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Posts: 2028
Location: Reykjavík
jamm, vona að allt fari vel, 320d er bara mjög skemmtilegur bíll og skemmtilegur í akstri!

_________________
BMW 520d E61


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 19:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Djöfull er mig farið að langa í diesel til að rúnta um á milli ak og rvk..

Gæti alveg hugsað mér að eiga 320d touring

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 20:26 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Posts: 1210
Location: Keflavík south
Er hann að brenna smurolíu? Annars hljómar þetta svipað og pabbi lenti í með Trooper, ónýtar spíssaþéttingar og síðan gallaðir spíssar.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. Sep 2007 23:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 23:40
Posts: 2731
JonHrafn wrote:
Er hann að brenna smurolíu? Annars hljómar þetta svipað og pabbi lenti í með Trooper, ónýtar spíssaþéttingar og síðan gallaðir spíssar.

Hvaða vandamál blasir við þegar smurolía smitast með spíss?? Eru O-hringir slappir??


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 04. Sep 2007 00:59 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
thisman wrote:
Þakka góðar ábendingar!

Já, það er erfitt að segja til með meðferðina - hann hefur lítið verið keyrður hérlendis og þetta er aðallega keyrsla á meginlandinu. Gæti þess vegna hafa verið þaninn kaldur en miðað við hversu ótrúlega snyrtilegur hann er - og sú staðreynd að þetta er touring sem nánast bara gamlir kallar eiga (og hundafólk eins og ég) - þá hugsa ég að eigandinn hafi a.m.k. ekki verið í rallakstri á honum :)



Ég er nú hvorki gamall kall né hunda eigandi... :lol:

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 04. Sep 2007 20:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Posts: 1834
Location: Rkv
Land crúserinn sem mamma og pabbi eiga er svona líka, og svo átti einn nágranninn patrol sem var líka svona.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 44 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group