Þakka góðar ábendingar!
Já, það er erfitt að segja til með meðferðina - hann hefur lítið verið keyrður hérlendis og þetta er aðallega keyrsla á meginlandinu. Gæti þess vegna hafa verið þaninn kaldur en miðað við hversu ótrúlega snyrtilegur hann er - og sú staðreynd að þetta er touring sem nánast bara gamlir kallar eiga (og hundafólk eins og ég) - þá hugsa ég að eigandinn hafi a.m.k. ekki verið í rallakstri á honum
Miðað við alla sem ég er búinn að tala við þá eru flestir sammála um að þetta séu einhver leiðindi í spíss, hugsanlega óhreinindi. Ég trúi því bara ekki að þetta sé eðlilegt en hef svo sem ekki mikla reynslu af díselbílum. Hann fór allavega í tékk hjá B&L og var þar yfir nótt þannig þeir prófuðu þetta sjálfir og orðuðu það svo að þetta væri líklega eitthvað smotterý þar sem þetta kæmi ekki fram í neinum tölvum - væri hugsanlega einhver spíss með leiðindi og ráðlögðu að keyra hann á mótorhreinsi í einhvern tíma.
Það er akkurat það sem ég mun koma til með að gera. Á svo pantaðan tíma hjá TB eftir tíu daga og þeir ætla að athuga hvern spíss fyrir sig, hvort þeir eru þéttir og fínir. Þannig í besta falli þá hreinsar hann þetta út á næstu dögum, ef ekki þá geta TB menn allavega sagt af eða á hvort þetta er einhver skrambans spíss.
Ástæðan fyrir því að ég er að forvitnast hérna er að maður vill ekki lenda í því að skrúfa í sundur hálfa vélina og borga formúgur fjár fyrir ef það kæmi svo í ljós að einhver snillingurinn hérna hefði lent í þessu sama og lausnin hefði verið að herða einhverja skrúfu - eða í þá áttina.
Þetta er minn fyrsti BMW - er ekki sagt að fall sé fararheill?

Treysti á að þegar þessu hefur verið reddað þá eigi ég allavega einhverja mánuði þar sem ég get bara notið þess að keyra græjuna. Þrátt fyrir að vera station, afsakið - touring, þá er þetta ótrúlega ljúft í akstri!