Já eins og einhverjir vita þá er mótorinn hjá mér búinn að vera með eitthvað vesen.
Og núna á sunnudaginn uppá rallýkross braut byrjaði hann að reykja bláu í annað skiptið núna. Fyrst þá var skipt um olíu og sett oil catch tank og hann lét nokkuð eðlilega.
En núna er alveg í fokki. Gengur illa og er byrjaður að drepa á sér á ferð og er virkilega erfiður í gang á morgnanna.
Það sem flestir af "spekingunum" sem ég hef talað við halda að sé að eru stimpilhringir...
Að gera við það kostar mjög mikið...
Ég veit að heddið er í toppstandi og þetta er ekki það.
Er ekki það eina sem kemur til greina ef það er farinn stimpilhringur að annað hvort reyna finna aðra vél... hér eða úti.
Eða þá að láta skipta um legur og hringi hjá kistufelli..$$$$
Ég er náttúrlega algjör noob í vélaviðgerðum þannig að ekki geri ég þetta sjáflur
Hvað finnst ykkur allavega... svona miðað við lýsinguna. Hvað finnst ykkur að ég ætti að gera?
Ef ég myndi láta skipta um legur og hringi þá ætti mótorinn að vera mjög solid enda er heddið alveg bling bling.
Megið endilega reyna að hjálpa mér... algjör bömmer að vera búinn að bíða eftir bílnum í ár og lenda svo í svona aðstöðu eftir að hafa átt hann í stuttan tíma!
