Smá update á þeim bláa.
Eins og flestir vita er búið að vera vesen á reiminni sem drífur blásarana.
Ýmislegt er búið að reyna - meira að segja "óhefðbundnar lækningar"
hjá gúrúum með mikla reynslu af reimdrifnum blásurum:
Reyndum að fá meiri strekkingu á dótið með því að breyta aðeins afstöðu
hjólanna en það dugði skammt.
Kunnuglegur þessi:
Hér er smá mynd af þessu reimasystemi:
Krotaði inn það sem sést ekki fyrir vatnskassanum. Sveifaráshjólið (A)
snýr þessu semsagt réttsælis og fer reimin utan um hjól (B), undir leiðarahjól (C)
utan um blásarahjól (D), yfir strekkjarahjól (E) og loks utan um hitt
blásarahjólið (F) og aftur að sveifaráshjóli (A).
Vandamálið hér er semsagt að það er ein löng/mjó reim að snúa tveimur
blásurum. Á leggnum F-A er mikið átak, sirka helmingur þess er á leggnum
D-F og svo er aðal vesenið á A-D því þar er slaki/sláttur.
Reimin hefur oftast verið að fara fram af blásarahjóli D.
Blásarahjólin hjá mér eru minni en hjá öðrum sem eru með Alutech kittið,
er að blása aðeins meiru. Kann að vera hluti af vandamálinu.
Racelogic spólvörning gerir síðan vandamálið enn vera því þá er sveifaráshjólið (A)
að breyta hratt um hraða sem sendir "bylgjur" eftir reiminni sem þýðir
að hún hoppar af hjólum.
Nú allavega - á Kraftsmílunni slitnaði alternator reimin og blásarareimin
hoppaði fram um eina ribbu. Pantaði tíma hjá Renniverkstæði Ægis fór
síðan til þeirra með bílinn:
Hér er gleðin sem blasti við okkur þegar við rifum hlífina undan
Við nánari skoðun á bílnum kom ýmislegt í ljós. T.d. kom í ljós líkleg skýring
á því hvers vegna alternator reimin hefur farið tvisvar. Ein festingin fyrir
supercharger bracketið hefur verið að nuddast við reimina í miklum látum.
Renndum aðeins utanaf hólknum þannig að nú á þetta vonandi að vera úr
sögunni (7-9-13). Hólkurinn sést hér á miðri mynd fyrir neðan alternator
reimina:
Svo renndum við okkur nýtt hjól fyrir leiðarahjólið (C) og höfðum góða brík
á því í þeirri vona að hún myndi ná að stýra reiminni þannig að hún færi
ekki fram af blásarahjólinu (D).
Svo rifum við blásarahjólin af og settum skífu framaná þau:
Svo kom í ljós að trissuhjólið fyrir vatnsdæluna var brotið:
Ekki til í BogL en auðvitað átti Nonni þetta til og var náð í það um kvöldið ásamt viftukúplingu
Skipt um hjólið:
Hér er svo endurskoðað reimasystem - version 1:
Fórum svo brattir í prufurúnt og eftir spól og læti á ónefndu plani hér í
bæ með Racelogic í gangi þá fór reimin. Hún hafði nú snúið sér á
blásarhjóli D. Reimin hefur semsagt farið upp á kantinn á leiðarahjólinu
og snúið sér.
Þannig að upp á lyftu aftur með bílinn og nú losuðum við bracketið
til að bæta við einu hjóli:
Hér er svo hjólið komið á og verið að þræða reimina á:
Hér má svo sjá þetta betur. Pælingin var sú að halda reiminni upp að
hjólinu þannig að hún gæti ekki skoppað upp eftir kantinum.
Notuðum síðan sénsinn að setja bolta í plenum coverið því einn hafði
brotnað.
Fórum svo í prufurúnt og vorum nokkuð brattir. Þeir rennismiðir voru
pottþéttir á að þetta "gæti ekki farið eitt eða neitt". Ég reyndar varaði þá
við að þessi bíll gæti haft aðra skoðun á þessu
Allavega - korteri seinna var reimin búin að fara eins og áður og búin
að snúa sér.
Nú var tekin smá pása í þessu meðan maður lá undir feldi og spáði hvað
skyldi gera.
Viku seinna var haldið aftur áfram og nú var tekið skref til baka áður en
haldið var áfram.
Settum nú original leiðarahjólið (C) aftur á því að það var nokkuð
augljóst að það væri ekki hægt að nota brík á leiðarahjólinu
til að halda við reimina - bilið B-D er bara of langt, reimin nær að slást
það mikið að hún nær að klifra upp eftir bríkinni.
Þannig að nú var lausnin að reyna ekki að halda við reimina á bilinu
B-D en hins vegar að hafa hjól báðum megin þannig að hún nái ekki að
slást mikið til.
Bracketið aftur komið niður og hér sjást á myndinni svörtu förin eftir reimina
þegar hún er að slást til:
Borað fyrir nýrri festingu:
Þarna er hins vegar mjög lítið pláss þannig að þetta var leyst með því að
setja bolta með 5 legum:
Þannig að nú snertir reimin ekki þessi 2 hjól nema mikil læti séu í gangi.
Þarna sést líka að þetta er 6 ribbu reim en allar 7 ribbu reimar voru búnar
Fórum svo í prufurúnt og tókum vel á því. Nú hélt allt á blásarahjólunum
en í staðinn hoppaði helv. reimin fram af sveifaráshjólinu.
Fórum því í það að smíða bríkur á sveifaráshjólið
Svo var það að koma helvítinu fyrir aftur:
Komið í:
Nú vorum við orðnir helvíti góðir með okkur og fórum í prufurúnt. Keyrðum
niður hjá BogL og út á Vesturlandsveginn hjá Shell. Stóð bílinn þétt og
svaka hröðun í gangi þegar heyrðist þetta "púff" hljóð og bíllinn drepur á
sér og "ENGINE FAILSAFE MODE" í mælaborðinu.
Frábært.
Allavega - við út í kant og kíkjum í húddið. Sem betur fer var þetta ekki
alvarlegt - önnur inntakshosan hafði runnið af plenuminu. Skrúfuðum
hana á og héldum áfram. Upp í mosó fór ég að finna fyrir smá víbringi
þannig að ég fór strax út í kant og drap á bílnum. Eftir smá skoðun
kom í ljós hvað málið var..... brotinn viftuspaði. Lulluðum til baka
í BogL þar sem klukkan var orðin meira en 18
En...... með smá vélabrögðum tókst okkur að komast inn á verkstæðið
og þaðan upp í varahlutaverslunina þar sem spaðinn var til á lager
Það sem við klikkuðum á er það að þegar við settum bríkina framaná
sveifaráshjólið þá var bilið í viftuspaðann orðið of lítið. Þegar allt dótið
fór svo að hreyfast við álag þá rakst spaðinn í og brotnaði:
Þannig að við renndum skinnu sem er jafn þykk bríkinni og settum á
til að færa spaðann utar:
Þá var þetta komið
Þessi útgáfa hefur haldið hingað til og búið að taka vel á henni.
Þakka snillingunum á Renniverkstæði Ægis fyrir þeirra vinnu - topp náungar.
Annars kom ég með ýmsa varahluti að utan sem ég lét þá Tauber menn
panta fyrir mig - spyrnur og fóðringar, kominn tími á þetta.
Svo er nýja plenum coverið farið að springa
Búinn að tala við þá hjá Alutech um að fá stærri blowoff ventla því að
þeir eru klárlega of litlir sem eru í bílnum.
Svo var ég líka að tala við Hr. X í dag og það getur verið að við förum
út í að smíða custom inntak á mótorinn sem þolir alvöru þrýsting - kemur
betur í ljós fljótlega.
Þannig að það verður eitthvað dundur áfram í bláa.