bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 23:13

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 3197 posts ]  Go to page Previous  1 ... 115, 116, 117, 118, 119, 120, 121 ... 214  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Sun 15. Jul 2007 22:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 11. Sep 2002 01:19
Posts: 1898
Location: Reykjavík
http://www.gates.com/brochure.cfm?brochure=4956&location_id=544

_________________
BMW 850iA '92 E31
Mini Cooper S '03 R53
BMW K100 '85


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 15. Jul 2007 23:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Dr. E31 wrote:


Takk fyrir þetta - var búinn að finna svona stuff frá öðrum framleiðanda:
http://www.daycoproducts.com/daycoweb.nsf/DaycoAutomotiveTensionersandPulleys.pdf

Vantar bara að vita málsetningarnar á þessu.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 21:14 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Smá update á þeim bláa.

Eins og flestir vita er búið að vera vesen á reiminni sem drífur blásarana.

Ýmislegt er búið að reyna - meira að segja "óhefðbundnar lækningar"
hjá gúrúum með mikla reynslu af reimdrifnum blásurum:
Image

Image

Image

Reyndum að fá meiri strekkingu á dótið með því að breyta aðeins afstöðu
hjólanna en það dugði skammt.

Kunnuglegur þessi:
Image

Hér er smá mynd af þessu reimasystemi:
Image

Krotaði inn það sem sést ekki fyrir vatnskassanum. Sveifaráshjólið (A)
snýr þessu semsagt réttsælis og fer reimin utan um hjól (B), undir leiðarahjól (C)
utan um blásarahjól (D), yfir strekkjarahjól (E) og loks utan um hitt
blásarahjólið (F) og aftur að sveifaráshjóli (A).

Vandamálið hér er semsagt að það er ein löng/mjó reim að snúa tveimur
blásurum. Á leggnum F-A er mikið átak, sirka helmingur þess er á leggnum
D-F og svo er aðal vesenið á A-D því þar er slaki/sláttur.
Reimin hefur oftast verið að fara fram af blásarahjóli D.

Blásarahjólin hjá mér eru minni en hjá öðrum sem eru með Alutech kittið,
er að blása aðeins meiru. Kann að vera hluti af vandamálinu.

Racelogic spólvörning gerir síðan vandamálið enn vera því þá er sveifaráshjólið (A)
að breyta hratt um hraða sem sendir "bylgjur" eftir reiminni sem þýðir
að hún hoppar af hjólum.

Nú allavega - á Kraftsmílunni slitnaði alternator reimin og blásarareimin
hoppaði fram um eina ribbu. Pantaði tíma hjá Renniverkstæði Ægis fór
síðan til þeirra með bílinn:
Image

Hér er gleðin sem blasti við okkur þegar við rifum hlífina undan :)
Image

Við nánari skoðun á bílnum kom ýmislegt í ljós. T.d. kom í ljós líkleg skýring
á því hvers vegna alternator reimin hefur farið tvisvar. Ein festingin fyrir
supercharger bracketið hefur verið að nuddast við reimina í miklum látum.
Renndum aðeins utanaf hólknum þannig að nú á þetta vonandi að vera úr
sögunni (7-9-13). Hólkurinn sést hér á miðri mynd fyrir neðan alternator
reimina:
Image

Svo renndum við okkur nýtt hjól fyrir leiðarahjólið (C) og höfðum góða brík
á því í þeirri vona að hún myndi ná að stýra reiminni þannig að hún færi
ekki fram af blásarahjólinu (D).

Svo rifum við blásarahjólin af og settum skífu framaná þau:
Image

Image

Image

Image

Svo kom í ljós að trissuhjólið fyrir vatnsdæluna var brotið:
Image

Ekki til í BogL en auðvitað átti Nonni þetta til og var náð í það um kvöldið ásamt viftukúplingu :clap:

Skipt um hjólið:
Image

Hér er svo endurskoðað reimasystem - version 1:
Image

Fórum svo brattir í prufurúnt og eftir spól og læti á ónefndu plani hér í
bæ með Racelogic í gangi þá fór reimin. Hún hafði nú snúið sér á
blásarhjóli D. Reimin hefur semsagt farið upp á kantinn á leiðarahjólinu
og snúið sér.

Þannig að upp á lyftu aftur með bílinn og nú losuðum við bracketið
til að bæta við einu hjóli:
Image

Hér er svo hjólið komið á og verið að þræða reimina á:
Image

Hér má svo sjá þetta betur. Pælingin var sú að halda reiminni upp að
hjólinu þannig að hún gæti ekki skoppað upp eftir kantinum.
Image

Notuðum síðan sénsinn að setja bolta í plenum coverið því einn hafði
brotnað.
Image

Fórum svo í prufurúnt og vorum nokkuð brattir. Þeir rennismiðir voru
pottþéttir á að þetta "gæti ekki farið eitt eða neitt". Ég reyndar varaði þá
við að þessi bíll gæti haft aðra skoðun á þessu :lol:

Allavega - korteri seinna var reimin búin að fara eins og áður og búin
að snúa sér.

Nú var tekin smá pása í þessu meðan maður lá undir feldi og spáði hvað
skyldi gera.

Viku seinna var haldið aftur áfram og nú var tekið skref til baka áður en
haldið var áfram.

Image

Settum nú original leiðarahjólið (C) aftur á því að það var nokkuð
augljóst að það væri ekki hægt að nota brík á leiðarahjólinu
til að halda við reimina - bilið B-D er bara of langt, reimin nær að slást
það mikið að hún nær að klifra upp eftir bríkinni.

Þannig að nú var lausnin að reyna ekki að halda við reimina á bilinu
B-D en hins vegar að hafa hjól báðum megin þannig að hún nái ekki að
slást mikið til.

Bracketið aftur komið niður og hér sjást á myndinni svörtu förin eftir reimina
þegar hún er að slást til:
Image

Borað fyrir nýrri festingu:
Image

Þarna er hins vegar mjög lítið pláss þannig að þetta var leyst með því að
setja bolta með 5 legum:
Image

Image

Þannig að nú snertir reimin ekki þessi 2 hjól nema mikil læti séu í gangi.
Þarna sést líka að þetta er 6 ribbu reim en allar 7 ribbu reimar voru búnar :oops:

Fórum svo í prufurúnt og tókum vel á því. Nú hélt allt á blásarahjólunum
en í staðinn hoppaði helv. reimin fram af sveifaráshjólinu. :evil:

Fórum því í það að smíða bríkur á sveifaráshjólið
Image

Image

Image

Image

Svo var það að koma helvítinu fyrir aftur:
Image

Komið í:
Image

Image

Nú vorum við orðnir helvíti góðir með okkur og fórum í prufurúnt. Keyrðum
niður hjá BogL og út á Vesturlandsveginn hjá Shell. Stóð bílinn þétt og
svaka hröðun í gangi þegar heyrðist þetta "púff" hljóð og bíllinn drepur á
sér og "ENGINE FAILSAFE MODE" í mælaborðinu.

Frábært.

Allavega - við út í kant og kíkjum í húddið. Sem betur fer var þetta ekki
alvarlegt - önnur inntakshosan hafði runnið af plenuminu. Skrúfuðum
hana á og héldum áfram. Upp í mosó fór ég að finna fyrir smá víbringi
þannig að ég fór strax út í kant og drap á bílnum. Eftir smá skoðun
kom í ljós hvað málið var..... brotinn viftuspaði. Lulluðum til baka
í BogL þar sem klukkan var orðin meira en 18 :(

En...... með smá vélabrögðum tókst okkur að komast inn á verkstæðið
og þaðan upp í varahlutaverslunina þar sem spaðinn var til á lager :)

Það sem við klikkuðum á er það að þegar við settum bríkina framaná
sveifaráshjólið þá var bilið í viftuspaðann orðið of lítið. Þegar allt dótið
fór svo að hreyfast við álag þá rakst spaðinn í og brotnaði:
Image

Þannig að við renndum skinnu sem er jafn þykk bríkinni og settum á
til að færa spaðann utar:
Image

Þá var þetta komið :)

Þessi útgáfa hefur haldið hingað til og búið að taka vel á henni.
Þakka snillingunum á Renniverkstæði Ægis fyrir þeirra vinnu - topp náungar.

Annars kom ég með ýmsa varahluti að utan sem ég lét þá Tauber menn
panta fyrir mig - spyrnur og fóðringar, kominn tími á þetta.

Svo er nýja plenum coverið farið að springa :evil:
Búinn að tala við þá hjá Alutech um að fá stærri blowoff ventla því að
þeir eru klárlega of litlir sem eru í bílnum.

Svo var ég líka að tala við Hr. X í dag og það getur verið að við förum
út í að smíða custom inntak á mótorinn sem þolir alvöru þrýsting - kemur
betur í ljós fljótlega.

Þannig að það verður eitthvað dundur áfram í bláa.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 21:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Vonandi að þetta haldi nú amk í 2 dekkjaganga að aftan :lol:

En þetta ætti vonandi að halda amk búið að reyna ýmsarleiðir greinilega.

Hvað ertu annars búinn að tæta margar reimar hingað til?

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 21:31 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Jæja hér sést svart á hvítu hvað það er greinilega mikið bras að tjúna.


Stock police 4tw :lol:

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 21:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
Kristjan wrote:
Jæja hér sést svart á hvítu hvað það er greinilega mikið bras að tjúna.


Stock police 4tw :lol:



You know it!!!

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 21:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
Það verður BARA gaman þegar þetta vesen verður allt yfirstaðið.. Og dem hvað verður hægt að fá háááátt verð fyrir hann á ebay þegar þú færð leið á honum :naughty:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 22:17 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Posts: 1445
Location: Reykjavík
úff geggjað 8)

alveg magnað hjá þér og gaman að fylgjast með þessu áfram


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 22:40 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 07. Dec 2006 16:53
Posts: 2389
Location: keflavik
þu ert ekkert smá þolinmóður eg væri löngu buinn að losa mig við bilinn :lol:

_________________
BMW 525D E61 07 Facelift


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 23:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Posts: 3733
Location: 108
ÞOLINMÆÐI!!!!!!

þrautir vinnur allar.... :wink:

Frábært mál, og vonandi að þetta haldi!

Rock on! 8)

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 23:19 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 09. Jun 2003 16:50
Posts: 1154
Location: Reykjavík
Úff, það sem búið er að eyða í þennan bíl hlýtur að vera farið að slaga hátt í nýjasta M5 bílinn :shock:
En þessi er auðvitað one of a kind 8)

_________________
BMW e53 X5
Honda CRV
Gas Gas 450 FSE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 23:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Posts: 3836
Location: Vík í Mýrdal
Djöfull held ég að þú verðir sáttur þegar þetta verður allt loksins yfirstaðið... :lol:

En þá er líka spurning hvort það komi ekki bara ný vandamál?...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 23:32 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
Úfff þvílíkt ævintýri :shock:
Vonum að þetta dugi

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 23:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 04. Sep 2002 22:02
Posts: 3236
Location: Njarðvíkingur!
Ertu ekkert orðinn pirraður á þessu ? :lol:

_________________
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05


Alpina wrote:
M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 23. Aug 2007 23:52 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Þarna erum við að tala um muninn á því að fylgja eftir hlutunum eða gefast upp.......

Bara í lagi Þórður, vona að þetta sé lausnin.

Flottar myndir lika og lýsing!

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3197 posts ]  Go to page Previous  1 ... 115, 116, 117, 118, 119, 120, 121 ... 214  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 55 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group