iar wrote:
Dúfan wrote:
gunnar wrote:
Mér finnst líka svo fáránlegt hvað Umferðastofa hefur einblínt á hraðakstur núna undanfarið (ekki það að ég sé að stuðla að honum) en mér finnst alveg vera kominn tími á að þessar unglingahraðakstursauglýsingar víki fyrir auglýsingum sem fjalla um aðal banamein í umferðinni. ÁFENGI OG EITURLYF. Það er ekkert fjallað eða auglýst um þetta af neinu viti.
Sem mér finnst til skammar!
Ha !? Aðalbanamein í umferðinni áfengi og eiturlyf ? Getur þú frætt mig um hvað það á við í mörgum af þeim 5 banaslysum sem hafa orðið í umferðinni á árinu ?
RNU er ekki búið að gefa út skýrslur fyrir slys á árinu 2007. En þú getur nálgast skýrslur fyrri ára (1998-2006) á vefnum þeirra:
www.rnu.is
Dúfan.
Núna er ég ekki með þessa skýrslu fyrir framan mig, en ég man það skýrt og klárt að yfir 4 slys á seinasta ári voru tengd til neyslu áfengis og eiturlyfja. Ég ætla ekkert að fara rekja hvaða slys það voru en það sem mér finnst bara vera svo rangt við þetta er hvað þessi eltingaleikur lögreglunnar um 10 km hámarkshraða er kominn út í öfgar.
Mér finnst gott mál að lögreglan sé meira sýnileg nú enn áður. En mér finnst líka að þeir megi sinna áfengum vörnum og taka harðar á þeim efnum.
Meðan þeir eru að sekta Jonna út í bæ fyrir að vera á 100 km hraða á Reykjanesbrautinni getur verið einhver Lalli út í bæ að keyra fullur af kránni heim og á eðlilegum hraða!