Bíllinn rásar í hjólförum og öðrum mishæðum.

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Bíllinn rásar í hjólförum og öðrum mishæðum.

Postby JonHrafn » Sun 29. Jul 2007 18:17

Já, nýi gripurinn lætur eins og hálfviti í hjólförum og öðrum mishæðum. Dekkin eru í mjög góð ástandi. Michelin pilot sport sumardekk. 225/45/17 að framan, 245/40/17 að aftan.

Hvað gæti verið að valda þessu fyrst dekkin er í fínu lagi?
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby Einarsss » Sun 29. Jul 2007 18:21

Óvanur að keyra low profile dekk (maður bara spyr)

annars gæti mér dottið í hug spacerar sem gera bílinn breiðari og henti þar af leiðandi verr í hjólför.
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby JonHrafn » Sun 29. Jul 2007 18:23

hinn 320 bíllinn minn var á 225/45/17 .. helvíti mikill munur á aksturseiginleikum fyrir 2cm að aftan, og það eru ekki spacerar á honum.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby ///M » Sun 29. Jul 2007 18:24

kíkja í hjólastillingu?
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby JonHrafn » Sun 29. Jul 2007 18:27

Já, mér sýnist að step1 hjá mér sé að koma honum á lyftu og ath spyrnufóðringar,,, síðan hjólastilling.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby slapi » Sun 29. Jul 2007 20:44

E46 vill rosalega rása í hjólförum og leita í þau , sérstaklega þegar þetta er komið á 17" felgur og ég spurði Bjarka í B&L út í þetta og hann sagði að hann hafi munað eftir þessu í nánast öllum E46 sem hann hefur keyrt þannig ða ég tek hann trúarlegan í því.
Það er mjög auðvelt að ATH hvort aftari spyrnufóðringin sé orðin slök í þessum bíl , hefur hann í smá beygju (5-10° á stýri) á sirka 60-80 km/h og taka eitt létt en ákveðið högg á bremsurnar og þá vill bremsuhöggið leiða upp í stýri , skrítin aðferð en auðveld leið að tékka á þessu í þessum bílum.
En það er mjög líklegt að þetta sé eðlilegt í þínum bíl , en alltaf gott að vera viss.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Postby JonHrafn » Sun 29. Jul 2007 20:56

já miðað við keyrslu þá ætti þetta nú að vera í lagi, en ég hendi honum á lyftu á morgun og tékk á fóðringum.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby Schulii » Sun 29. Jul 2007 21:52

E46 touring bílinn sem ég átti var mjög slæmur í hjólförum. Hann var á 17" felgum.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby jon mar » Sun 29. Jul 2007 23:36

hvað gerir það að verkum að þetta gerist?

Bara forvitinn, svona þar sem manni finnst þetta stórundarleg hegðun í nýjum bílum. Er virkilega ekki hægt að losna við þetta með hjólastillingu eða einhverju? :?
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.
jon mar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3213
Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Location: Akureyri

Postby Svessi » Mon 30. Jul 2007 03:10

Það allra, allra fyrsta sem ég myndi gera er að tjékka á loftþrýstingi í dekkjunum.

Og hafðu auðvitað í huga að ráðlagður loftþrýstingur í dekkjum er mismunandi eftir þyngd ökutækisins, þar á meðal hvort þú ekur honum oftast einn eða ert með hann yfirleitt fullann af farþegum og farangri.
Einnig þarf ekki endilega að vera sami loftþrýstingur í frammdekkjum og afturdekkjum þótt sama stærð og tegund sé undir öllum bílnum

Þið verðið að fyrirgefa mér það að ég skrifi þetta eins og þetta sé fyrir einhvern algjörann imba, það eru bara svo margir sem halda að 26pund sé það sem eigi að vera í öllum dekkjum á öllum bílum. Ég hef jafnvel séð menn sem hafa pumpað í venjuleg 14" dekk þangað til pumpan náði ekki að pumpa meira og það voru 60-70 pund í hverju dekki. Svo eru aðrir sem keyra og keyra og hugsa aldrei neitt um þetta.

Svo mæli ég með þessum nýju digital loftmælum sem komnir eru á flestar N1 stöðvar og EGÓ stöðvar (held ég sé að fara með rétt mál).
Stillir bara með + og - takka hvað þú villt hafa mikla pressu í pundum í dekkjunum, setur slönguna á, skjárinn sýnir þér þá hvað er mikil pressa í dekkinu og tekur þá loft úr eða pumpar í hvort sem við á og pípir svo þegar loftþrýsingurinn sem þú baðst um er kominn.
Mjög þægilegt og nákvæmt, mun þægilegra og nákvæmara heldur en að vera með svona hand-loftmæli.

Það er svona hálft ár síðan ég fór að nota þessa digital mæla og í dag er ég farinn að fara sirka einu sinni í viku, því bíllinn er miklu þægilegri í akstri og hann er alveg með hátt í 0,5 líternum minna í eyðslu á 100 heldur en hann var með.

Þetta er auðvitað bara ódýrasta ráðið, svo getur þetta verið svo margt. Eitthvað í bílnum, dekkjtegundin, dekkjarstærðin á þessum felgum og ýmislegt fleira.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49

Postby íbbi_ » Mon 30. Jul 2007 10:13

ég veit ekki hvort það býr að baki svörum þínum að þú skulir vera blaðamaður, en mikið skuggalega eru svörin þín alltaf löng!
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby ///M » Mon 30. Jul 2007 11:14

íbbi_ wrote:ég veit ekki hvort það býr að baki svörum þínum að þú skulir vera blaðamaður, en mikið skuggalega eru svörin þín alltaf löng!


já ég nenni aldrei að lesa svona langa pósta :oops: :lol:
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby bjahja » Mon 30. Jul 2007 11:25

Hjólastilling lagaði þetta helling á mínum
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby iar » Mon 30. Jul 2007 13:02

///M wrote:
íbbi_ wrote:ég veit ekki hvort það býr að baki svörum þínum að þú skulir vera blaðamaður, en mikið skuggalega eru svörin þín alltaf löng!


já ég nenni aldrei að lesa svona langa pósta :oops: :lol:


Þú ert líka meira svona þriggja orða maður. :P
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby Orri Þorkell » Sat 04. Aug 2007 03:24

þessar digital pumpur eru fínar á meðan þær eru í topp lagi en um leið og slangan er orði léleg þá verða þær mjög ónákvæmar eins og t.d. á egó sem er hjá löður breiðholti, svo bila þær alltaf í frostinu. þeir eru svo latir að halda þeim við hjá egó
BMW 735i E32
Subaru 1800 Turbo Yoda
User avatar
Orri Þorkell
Getawaybílstjóri
 
Posts: 710
Joined: Wed 27. Sep 2006 22:15

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests