by Svessi » Mon 30. Jul 2007 03:10
Það allra, allra fyrsta sem ég myndi gera er að tjékka á loftþrýstingi í dekkjunum.
Og hafðu auðvitað í huga að ráðlagður loftþrýstingur í dekkjum er mismunandi eftir þyngd ökutækisins, þar á meðal hvort þú ekur honum oftast einn eða ert með hann yfirleitt fullann af farþegum og farangri.
Einnig þarf ekki endilega að vera sami loftþrýstingur í frammdekkjum og afturdekkjum þótt sama stærð og tegund sé undir öllum bílnum
Þið verðið að fyrirgefa mér það að ég skrifi þetta eins og þetta sé fyrir einhvern algjörann imba, það eru bara svo margir sem halda að 26pund sé það sem eigi að vera í öllum dekkjum á öllum bílum. Ég hef jafnvel séð menn sem hafa pumpað í venjuleg 14" dekk þangað til pumpan náði ekki að pumpa meira og það voru 60-70 pund í hverju dekki. Svo eru aðrir sem keyra og keyra og hugsa aldrei neitt um þetta.
Svo mæli ég með þessum nýju digital loftmælum sem komnir eru á flestar N1 stöðvar og EGÓ stöðvar (held ég sé að fara með rétt mál).
Stillir bara með + og - takka hvað þú villt hafa mikla pressu í pundum í dekkjunum, setur slönguna á, skjárinn sýnir þér þá hvað er mikil pressa í dekkinu og tekur þá loft úr eða pumpar í hvort sem við á og pípir svo þegar loftþrýsingurinn sem þú baðst um er kominn.
Mjög þægilegt og nákvæmt, mun þægilegra og nákvæmara heldur en að vera með svona hand-loftmæli.
Það er svona hálft ár síðan ég fór að nota þessa digital mæla og í dag er ég farinn að fara sirka einu sinni í viku, því bíllinn er miklu þægilegri í akstri og hann er alveg með hátt í 0,5 líternum minna í eyðslu á 100 heldur en hann var með.
Þetta er auðvitað bara ódýrasta ráðið, svo getur þetta verið svo margt. Eitthvað í bílnum, dekkjtegundin, dekkjarstærðin á þessum felgum og ýmislegt fleira.
Sverrir Már
Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93