Quote:
mikið er gott að það eru ennþá menn hér sem mæla af viti !
Hér eru bara eðlileg og að mér þótti skemmtileg skoðanaskipti fram að þessu. Það er nú ekki sjálfgefið að allt nýtt sé betra, það er ekki sjálfgefið að meira sé betra - nokkuð sem mér sýnist loða dálítið við yngri mennina á spjallinu.
Annaðhvort er verið að misskilja mann hérna all verulega eða þá að það er einhver réttrúnaður sem maður á að fylgja hérna og það líkar mér alls ekki. Það er mín skoðun að BMW eigi af fylgja því sem mér finnst vera þeirra fílósófía og ég er búin að færa fyrir því rök. Ég hef reyndar sagt að eðlilegt sé að hafa vel útbúna lúxusbíla og það er ekkert að því en ENN OG AFTUR þá gengur það bara ekki yfir alla línuna.
Ég held einmitt gagnstætt ykkur að BMW menn séu einmitt að átta sig á þessu og séu að bæta úr þessu núna með nýjum E46 CSL, Bini t.d. og tilvonandi 1 series sem eftir því sem segir um frumgerð þess bíls er NÁKVÆMLEGA það sem ég er að óska eftir, sömuleiðis mun nýja sexan vera nokkuð létt ásamt Z4 þó ekki séu slegin nein met í þeim efnum.
Það eru svo mörg dæmi um það að fyrirtæki fari í þann pakka að framleiða allar gerðir bíla fyrir allar gerðir kaupendahópa og það endar alltaf með útþynntum bílum af þeim gerðum sem voru vinsælastir og bestir. Svo byrja framleiðendurnir að tapa peningum á þessu og þá fer allt til fjandans.
Mér finnst líka dálítið merkilegt að sjá menn gagnrýna VW fyrir Phaeton bílinn og Porsche fyrir Cayenne jeppann en þetta er nákvæmlega það sem BMW gerði þegar þeir komu fyrst með sjöu og svo síðar með X5 og nú X3.
Auðvitað vilja menn ekki missi af auðfengnu fé, og ekki bendir neitt til þess að menn séu farnir yfir strikið ennþá. BMW má bara ekki gleyma upprunanum og sínum kjarna bílum sem eru 3 og 5 línurnar.
Hvað varðar gullár BMW þá finnst mér þau nú vera þau ár þegar BMW átti sigurvegara í kappakstri og að mínu mati eru gullárin þegar 3.0 CSL, 2002 Tii og M1 voru í framleiðslu.
Síðan koma sveiflur en BMW toppar aftur með E28 M5, E30 M3 og svo með E34 M5 að síðustu. E36 M3 var alltaf góður en ekki frábær eins og hinir.
PS... Þá finnst mér þetta ekki snúast um trúarbrögð svipað og í fótboltanum - heldur finnst mér að BMW eigi að standa með sínum kúnnum, annars fer kúnnin bara annað. Einmitt þessvegna er svona áhugamál svo mikilvægt þar sem allir ættu að geta sameinast um það að hafa áhuga á BMW á hinum ýmsu tímaskeiðum en ekki vera litnir hornauga fyrir það að fylgja ekki Toyota norminu, trúandi í blindni að þar sé allt best.
Svo vil ég nú að lokum minna á það að ég hef verið duglegur á þessu spjallsvæði við að verja Chris Bangle, en mér finnst hann einmitt vera að endurskapa útlitslega sérstöðu með BMW og ég tel að þessir bílar muni vekja athygli í framtíðinni ólíkt E46 og E39 sem eru að mínu mati minnst spennandi og minnst einkennandi BMW bílarnir útlitslega. Ég veit þeir eru góðir og að mínu mati bestu bílarnir í sínum flokki í dag (ég hef keyrt helling af þessum bílum) og E39 er jafnvel talin besti bíll í heimi - en þeir eru ekki nógu afgerandi BMW-legir útlitslega að mínu mati. Þetta er að breytast með Chris Bangle.
Að lokum læt ég fylgja með mynd af series 1 bílnum og stikla á þeim þáttum sem gera hann spennandi fyrir mig.